
Innan um grimmustu morðingja heims stendur Dmitry Luchin fremstur meðal jafningja.
Luchin vakti mikla athygli og óhug í Rússlandi árið 2018 þegar hann myrti kærustu sína á sérstaklega hrottalegan hátt, og fór málið eins og eldur um sinu um landið. Luchin, sem þá var aðeins 23 ára, heimsótti 45 ára gamla kærustu sína, Olgu Budunova, undir því yfirskini að ætla að fagna alþjóðlegum baráttudegi kvenna með henni. En ásetningur hans var miklu verri og ógnvænlegri.
Skömmu eftir að þau höfðu drukkið vín saman réðst hann á hana og barði vínflösku endurtekið í höfuð hennar, þar til hún lést. Að því loknu skar hann líkið í sundur á kerfisbundinn og skelfilegan hátt með kjötexi. Það sem gerðist næst var svo ómannlegt að jafnvel reyndustu lögreglumenn urðu fyrir áfalli.
Luchin steikti hluta af heila Budunova og át, og skolaði niður með glasi af blóði hennar sem hann hafði tæmt úr líkinu. Hann rauf magann, skar af henni eyrun og setti annað í munn hennar en hitt í matarskál heimiliskattarins. Hann skrifaði svo móðgandi texta á líkið með blóði hennar og fjólubláu naglalakki.
Luchin, sem sagður er dýrka Satan og stunda dulspeki, málaði djöfulleg tákn á hurðina með blóði hennar í þeirri von að kalla fram Lucifer sjálfan. Þrátt fyrir satanískar fyrirætlan sína fullyrti hann síðar við lögreglu að hann hefði smakkað heilabútana tvisvar sinnum, „því honum fannst bragðið gott“.
Saksóknarar sögðu að Luchin hefði orðið heltekinn af raðmorðingjum og eytt löngum tíma á óhugnalegum vefsíðum sem tileinkaðar voru þeim. Í réttarsalnum flutti hann undarlegt ljóð innan úr járnbúrinu sem hann var vistaður í. Þar hélt hann því fram að hann væri „hvorki geðsjúkur, morðingi né mannæta“ heldur „nemi, íþróttamaður og skáld“.
Dómari stöðvaði hann þegar hann hóf að segja frá hinum illræmda sovéska raðmorðingja, Andrei Chikatilo. Luchin var talinn sakhæfur og dæmdur fyrir morð framið með „sérstökum grimmdarhætti“. Hann hlaut 19 ára fangelsisdóm í strangri fanganýlendu.
Nágrannar Budunova sögðu að þeir myndu aldrei gleyma hinum hrottalega vettvangi í íbúðinni hennar. Einn þeirra sagði: „Þetta var eins og eitthvað úr öðrum heimi. Enginn manneskja gæti gert það sem hann gerði.“

Komment