1
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

2
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

3
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

4
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

5
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

6
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

7
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

8
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

9
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

10
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Til baka

Stephan Vilberg Benediktsson er látinn

Kerti
Mynd: Shutterstock

Stephan Vilberg Benediktsson, dóttursonur Stephans G. Stephanssonar, hins svonefnda Klettafjallaskálds, andaðist miðvikudaginn 15. október síðastliðinn í San Miguel de Allende í Mexíkó, 92 ára að aldri. Stephan var mörgum Íslendingum að góðu kunnur og kom oft til Íslands á lífsleiðinni. Mbl.is sagði frá andlátinu.

Stephan fæddist 22. júní 1933 nærri Markerville í Alberta í Kanada, einn af fjórum systkinum. Foreldrar hans voru Rósa, yngsta dóttir Stephans G., og Sigurður Vilberg Benediktsson, einnig af íslenskum ættum. Þegar Stephan var níu ára gamall lést faðir hans, og aðeins 14 ára hóf hann störf við olíuborun, starf sem varð honum ævistarfið.

Síðar lauk hann námi í olíuverkfræði og starfaði á því sviði víða um heim. Hann efnaðist vel og stofnaði eigið fyrirtæki, sem hann seldi þegar hann lét af störfum upp úr síðustu aldamótum.

Stephan var afar stoltur af íslenskum uppruna sínum og minningu afa síns. Hann stofnaði eigið bókaforlag og gaf árið 2012 út enska útgáfu af ævisögu Stephans G. Einnig gaf hann út tvær bækur með skrifum móður sinnar, Rósu, auk tveggja eigin verka, þar sem hann rifjaði upp reynslu sína úr olíuiðnaðinum og velti fyrir sér samfélagsmálum.

Hann og eiginkona hans, Adriana, fædd Kroes, studdu við ýmis menningar- og fræðastörf bæði á Íslandi og í Kanada, meðal annars með því að koma á fót styrk í nafni Stephans G. Stephanssonar við Háskóla Íslands.

Stephan kvæntist tvisvar sinnum. Fyrri kona hans var Audrey Evelyn, fædd Jones, og með henni eignaðist hann þrjú börn: synina Steph­an og David Benediktson og dótturina Susan Abbiati. Síðari kona hans, Adriana, átti fjögur börn úr fyrra hjónabandi: Alfredo, Monica, Lavan og Jonathon. Barnabörn Stephans eru sjö talsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Jóhann Páll verndar formfagran gíg
Pólitík

Jóhann Páll verndar formfagran gíg

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Frábært fjölskylduhús fáanlegt
Myndir
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ
Myndband
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu