Gríðarlega fjölmenn lögregluaðgerð átti sér stað upp úr fimm í dag í Gnoðavogi í Laugardalnum.
Tæplega tíu bílar á vegum lögreglunnar voru á vettvangi og mikill fjöldi lögreglu- og sérsveitarmanna var á svæðinu. Lögreglumenn á vettvangi vildu ekki veita neinar upplýsingar við Mannlíf.
Samkvæmt heimildum Mannlífs voru að minnsta kosti tveir handteknir í aðgerðum lögreglu. Sjá mátti lögreglumenn leita í nálægum bíl, runnum og ruslatunnum.
Sumarið 2025 voru fjórir handteknir í aðgerð lögreglu í sama húsi og var hald lagt á talsvert magn af óþekktu efni, eins og það var orðað í fréttum.
Mynd: BHJ
Mynd: BHJ
Mynd: BHJ
Mynd: BHJ
Mynd: BHJ
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…

