Einbýlishús við Logafold 55 í Reykjavík hefur verið sett á sölu fyrir 192 milljónir króna. Húsið er á tveimur hæðum, samtals 384,6 fermetrar að stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS, þar af er 35,2 fermetra innbyggður bílskúr. Húsið var byggt árið 1987 og eru möguleg skipti á minni eign.
Um er að ræða timburhús á steyptum kjallara. Efri hæðin skiptist meðal annars í um 50 fermetra stofu, um 20 fermetra borðstofu, eldhús, þvottahús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og fataherbergi. Úr stofunni er gengið út á um 50 fermetra sólpall sem snýr til suðurs og þaðan liggur stigi niður í garð.
Í bílskúrnum er rafknúin hurð og hleðslustöð fyrir rafbíl. Á gólfum efri hæðar eru meðal annars Jatoba-parket, flísar og náttúrusteinn.
Kjallarinn er steyptur og þar eru tvö stór rými, geymsla, tómstundarými, skrifstofuherbergi, forstofa og baðherbergi. Innangengt er á milli hæða en jafnframt er sérinngangur utan frá í forstofu kjallarans.
Skrifstofurýmið hefur verið nýtt undir sjálfstæða starfsemi en önnur rými kjallarans hafa meðal annars verið nýtt til íbúðar, líkamsræktar og tómstunda.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir