1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

3
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Til baka

Tileinkaði Emmy-verðlaunin blaðamönnum sem Ísraelsher hefur myrt

„Þetta eru dimmir dagar fyrir blaðamennsku.“

Josh Rushing
Josh RushingRushing með Emmy-verðlaunin
Mynd: Instagram

„Þetta eru dimmir dagar fyrir blaðamennsku.“

Þetta sagði Josh Rushing hjá Al Jazeera í áhrifamikilli þakkarræðu sinni eftir að heimildarmyndin Kids Under Fire hlaut Emmy-verðlaun fyrir bestu umfjöllun um stríð eða ofbeldisátök á News Emmy-verðlaunahátíðinni 2026.

Rushing tileinkaði verðlaunin samstarfsfólki sínu og öðrum blaðamönnum sem hafa verið drepnir á Gaza síðan þjóðarmorðið hófst eftir 7. október.

„Ég vil tileinka þetta þeim 11 blaðamönnum Al Jazeera, þessum 11 samstarfsfélögum, sem Ísrael hefur drepið á Gaza síðan 7. október, og einnig 270 öðrum blaðamönnum sem hafa verið drepnir á Gaza frá 7. október,“ sagði hann í ræðunni.

Sagði kaldhæðni felast í verðlaununum

Í ræðunni gagnrýndi Rushing einnig Bandaríkin harðlega og sagði kaldhæðni felast í því að taka við verðlaunum fyrir umfjöllun um þjóðarmorð í því landi sem hefði gert það mögulegt.

„Það ætti ekki að fara fram hjá neinum kaldhæðnin í því að taka við verðlaunum fyrir umfjöllun um þjóðarmorð í því landi sem gerði það þjóðarmorð mögulegt og hefur haldið því áfram,“ sagði hann.

Rushing minntist einnig lækna sem hefðu yfirgefið þægilegt líf til að fara til Gaza og hjálpa særðum.

Hann sagði suma þeirra hafa áttað sig á því að „sverð sannleikans“ og það að bera vitni gæti verið sterkara en skurðhnífarnir sem þeir komu með á vígvöllinn.

Fjallaði um fjögurra ára stúlku

Blaðamaðurinn nefndi sérstaklega fjögurra ára stúlku að nafni Mira sem kom fram í heimildarmyndinni og hafði fengið kúlu í heilann.

„Vegna þeirra [læknanna] er fjögurra ára stúlkan Mira, sem var með kúlu fasta í heilanum, nú í Mexíkóborg að fá aðstoð ásamt móður sinni, Isra, sem missti fótinn á meðan við vorum að taka upp myndina,“ sagði hann og beygði aðeins af.

Bætti hann síðan við:

„Þetta eru dimmir dagar fyrir blaðamennsku. Annað hvort erum við að hrynja undan fjárhagslegum þrýstingi eða við erum keypt upp af fákeppnisöflum sem taka yfir skilaboðin og móta þau eftir sínum vilja.“

Í lok ræðunnar hvatti Rushing fjölmiðlafólk til að halda áfram að berjast fyrir sannleikanum og mannúð.

„Það getur engin þjóð verið frjáls án frjálsra fjölmiðla. Haldið áfram hinni góðu baráttu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu