1
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

2
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

3
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

4
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

5
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

6
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

7
Menning

Bubbi er kominn heim

8
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

9
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

10
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Til baka

Viðar Símonarson er látinn

kerti
Mynd: Shutterstock

Viðar Símonarson, íþróttakennari, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og síðar landsliðsþjálfari, lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 2. júní síðastliðinn, 80 ára að aldri.

Viðar fæddist í Hafnarfirði 25. febrúar 1945 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Símon Marinósson matsveinn og sjómaður, og Ólöf Helgadóttir húsmóðir.

Eftir nám í heimabænum lauk Viðar prófi sem íþróttakennari árið 1965. Hann starfaði lengi við íþróttakennslu, en hann kenndi í Hagaskóla og Verzlunarskóla Íslands. Sem leikmaður með íslenska landsliðinu í handbolta átti hann glæsilegan feril en hann skoraði 203 mörk í 93 landsleikjum. Meðal minnisstæðustu augnablika hans á vellinum var jöfnunarmarkið gegn heimsmeisturum Rúmena í æsispennandi leik í Laugardalshöll árið 1971, sem endaði með jafntefli 14:14.

Viðar tók þátt í Ólympíuleikunum í München árið 1972 og var valinn handknattleiksmaður ársins árið 1974. Árið eftir var hann lykilleikmaður þegar Ísland sigraði Danmörku 20:16 í vináttuleik í Laugardalshöllinni. Á ferli sínum lék hann með Haukum og síðar FH, þar sem hann hlaut marga titla. Hann þjálfaði einnig bæði félög, og tók við þjálfun landsliðsins á árunum 1975–1976.

Sem þjálfari náði hann góðum árangri, meðal annars þegar hann leiddi karlalið Hauka til bikarmeistaratitils árið 1980 og kvennalið Stjörnunnar til sama árangurs árið 1989, fyrsti bikarmeistaratitill beggja liða.

Viðar var kvæntur Halldóru Sigurðardóttur, fyrrverandi flugfreyju, fæddri 1949. Börn þeirra saman eru Sigurður (f. 1976) og Dóra (f. 1981). Hann átti einnig dótturina Guðnýju Björk (f. 1967) með fyrri eiginkonu sinni, Guðfinnu Jónsdóttur. Viðar lætur eftir sig fimm barnabörn.

Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 18. júní kl. 13:00.

Mbl.is sagði frá andlátinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Styttist í flutning SKOR
Peningar

Styttist í flutning SKOR

Hafa verið í deilum við nágranna sína
Jens dæmdur fyrir að berja kærustu sína við bensínstöð
Innlent

Jens dæmdur fyrir að berja kærustu sína við bensínstöð

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista
Myndir
Fólk

Strandhús á höfuðborgarsvæðinu á sölulista

Lögreglan óskar eftir vitnum
Innlent

Lögreglan óskar eftir vitnum

Hestamaður fluttur á sjúkrahús
Innlent

Hestamaður fluttur á sjúkrahús

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu