Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Þingmaður segir Rósu setja stjórnina í skrýtna stöðu

Heiða Björg sagði af sér for­mennsku í SÍS í gær

Guðmundur Ari er ósáttur
Guð­mundur Ari er ósáttur Rósa ætlar ekki að hætta Mynd: Aðsend

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir galið að Rósa Guð­bjarts­dóttir ætli að sitja áfram í stjórn SÍS en hún var kosin á Alþingi fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í haust. Þá er hún einnig bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði.

„Eitt af meg­in­mark­miðum Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga felst í hags­muna­gæslu sveit­ar­fé­lag­anna gagn­vart rík­is­vald­inu. Sam­bandið mótar stefnu sveit­ar­fé­lag­anna og hefur svo náin sam­skipti við Alþingi,“ skrifar Guð­mundur í færslu á Facebook um málið. Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri sagði af sér í gær eftir mikla gagn­rýni um að hún væri borg­ar­stjóri og for­maður SÍS á sama tíma en sú staða er skil­greind sem 50% vinna.

Hins vegar telur Guð­mundur stjórn­ar­setu Rósu vera hags­muna­á­rekstur en hún hefur gefið það út að hún muni ekki segja af sér strax, geri hún það yfir­höfuð.

„Það að þing­maður sitji í stjórn sam­bands­ins er algjör hags­muna­á­rekstur og trún­að­ar­brestur við sveit­ar­fé­lögin í land­inu. Þessi ákvörðun Rósu setur alla stjórn­ina í skrýtna stöðu þar sem þau trún­að­ar­sam­töl sem fram fara í stjórn Sam­bands­ins fara nú fram með full­trúa Alþingis á fund­unum. Formaður og stjórn Sam­bands­ins þurfa að geta ráðið ráðum sínum og átt í trún­að­ar­sam­skiptum um sam­skipti við m.a. rík­is­stjórn­ina án þess að þurfa að gæta að því að full­trúar þings­ins séu við­staddir.“

Að sögn Guð­mundar hneyksl­uð­ust full­trúar Sjálf­stæð­is­manna á því að Bjarni Jónsson úr Vinstri Grænum sæti í stjórn SÍS og á Alþingi á sama tíma á síð­asta kjör­tíma­bili en hann sagði sig ekki úr stjórn­inni strax og hann tók sæti á Alþingi.

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son þing­maður

„Ég skil það vel enda sat ég sjálfur í stjórn Sam­bands­ins þegar ég var kjör­inn á þing og sagði mig strax úr stjórn­inni. Ég sagði mig líka úr bæj­ar­stjórn því fyrir mér er þing­manna­starfið fullt starf og ég treysti vel öðrum öfl­ugum full­trúum Sam­fylk­ingar til að taka sæti í bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­ness og stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Ég ætla að leyfa öðrum að ræða um launa­tölur og hvaða mán­að­ar­laun ein­stak­lingur hefur af skatt­greið­endum sem situr á Alþingi, bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar, nefndum á vegum Hafn­ar­fjarðar og stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. En það sem ég skil ekki er að Hafn­firð­ingar og Sjálf­stæð­is­menn sætti sig við að kjör­inn full­trúi á þeirra vegum dreifi kröftum sínum á þennan hátt og neiti að hleypa öðrum Sjálf­stæð­is­mönnum að trún­að­ar­störfum.“

Að lokum spyr Guð­mundur hvernig ein­stak­lingur í fullu starfi á Alþingi geti mætt á sama tíma á bæj­ar­stjórn­ar­fundi, nefnd­ar­fundi og fundi í stjórn Sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Pólitík

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun