„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentHelgarveðrið lofar góðu víða um land – Allt að 17 stiga hiti Samkvæmt spá Veðurstofu Ísland mun helgarveðrið vera með ágætasta móti. Sólarþyrstir ættu að finna rétta veðrið víða um landið. Spáin fyrir daginn í dag og morgun: „Hæg suðlæg eða breytileg átt og súld eða þokumóða á sunnanverðu landinu, en skýjað með köflum og þurrt að kalla fyrir norðan. Víða skúrir eftir hádegi, einkum inn til landsins, en súld við suðurströndina....
InnlentForstjóri Orkuveitunnar fær rúmar 3,5 milljónir á mánuði: „Í engum takti við veruleikann“ Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur sem haldinn var í lok júní síðastliðinn var samþykkt að laun forstjóra skyldu hækka um 5,5 prósent frá 1. janúar 2022. Bjarni Bjarnason forstjóri Orkuveitunnar fær þar með rúmar 3,5 milljónir á mánuði. Fær Bjarni þá að júlí loknum leiðréttingu launa sinna tæpa 1,3 milljón. Í ársreikningi OR sem lagður var fram í fyrri hluta þessa...
InnlentHöfðu hendur í hári vellyktandi búðarþjófs – Karlmaður vakti fólk í Grafarvogi Lögreglu barst tilkynning um búðarhnupl, í hverfi 103. Þá hafði karlmaður gert tilraun til að stela þremur ilmvatnsglösum. Þegar lögregla ræddi við manninn útskýrði hann að glösin væru merkt „Tester“ og að hann væri vanur, frá heimalandi sínu, að þess merkt glös mætti taka frjálsri hendi. Þrátt fyrir útskýringuna var vettvangsskýrsla rituð. Rétt rúmlega hálf tólf í gærkveldi barst lögreglunni...
InnlentBlóðugt morðið á Hverfisgötu 34: „En þú ungi maður, hefur þú kjark til að drepa mig?“ Þann 1. apríl árið 1979 var 56 ára karlmaður myrtur á heimili sínu að Hverfisgötu 34. Sá látni hét Svavar Sigurðsson. Hann hafði verið stunginn til bana með eldhúshníf. Lögreglunni var gert viðvart nokkrum klukkustundum eftir morðið, en það var morðinginn sem sjálfur gaf sig fram. Hann hét Þráinn Hleinar Kristjánsson og var 36 ára gamall. Þráinn var einnig búsettur...
InnlentJólasveinninn mætir á „Jól í júlí“ hjá Hjálpræðishernum „Jól í júlí verður haldið í fyrsta skipti hér á Íslandi núna í ár en herferðin á sér þó fyrirmynd hjá Hjálpræðishernum erlendis,“ segir Hlynur, starfsmaður Hjálpræðishersins. „Herferðin vakti mikla lukku erlendis og það er okkur sönn ánægja að halda jól í júlí enda jólin æðisleg. Aðaláhersluatriðin eru að eyða tíma saman og vekja athygli á starfsemi Hjálpræðishersins sem er...
InnlentAldís fær 17 milljónir í sex mánaða biðlaun – Þó hún sé komin með nýtt starf Aldís Hafsteinsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis og nú sveitarstjóri Hrunamannahrepps, fékk sex mánaða biðlaun og aksturstyrk frá Hveragerði þegar hún hætti sem bæjarstjóri í byrjun sumars. Samtals voru þetta um 17 milljónir króna sem Aldís fékk, þrátt fyrir að hún væri komin með nýtt starf. Fréttablaðið greinir frá þessu og vísar í fundargerð bæjarráðs. Kostnaður Hveragerðis vegna biðlauna hennar var ríflega...
InnlentSteinhjartagarðurinn varð til því Hjartagarðurinn „þótti ekki nógu fucking fínn“ Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir Hjartagarðinn, torg á milli Hverfisgötu og Laugavegs, ekki bera nafn með rentu. Torgið hefur hlotið mikla gagnrýni en Vísir fjallaði fyrr í dag um hvernig torgið hafi staðið autt frá því að framkvæmdum lauk. Þar var áður garður sem iðaði að lífi flesta daga. Sá garður var kallaður Hjartagarðurinn en torgið sem þar...
InnlentBrotist inn í bifreið Kristínar Pétursdóttur: „Þetta er meira bara persónulegt tjón“ Brotist var inn í bifreið Kristínar Pétursdóttur og þaðan stolið persónulegum munum. Biðlar hún til fólks að láta vita ef það sér eitthvað af hlutunum til sölu á netinu. DV segir frá því að Kristín Pétursdóttir, leikkona og flugfreyja, varð fyrir því leiðinlega atviki að brotist var inn í bifreið hennar í miðborg Reykjavíkur. Þjófurinn stal úr bílnum flugfreyjutösku Kristínar,...
InnlentKristinn segir Ísland aðeins lýðræðisríki að nafninu til: „Stjórnskipanin einkennist af auðræði“ Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks heldur því fram í nýrri Facebook-færslu að Ísland sé ekki lýðræðisríki nema að nafninu til. Kristinn er oft gagnrýninn á yfirvöld á Íslandi en í nýjustu færslu sinni segir hann Ísland ekki lýðræðisríki nema að nafninu til. Birti hann mynd sem hann gerði sjálfur, sem útskýrir kenningu hans. „Ég rek mig á að margir eiga erfitt...
InnlentDísa Jakobs á tónleikaferðalag með Trentemøller: „Já, þetta er nefnilega svolítið stórt“ Afmælisbarn dagsins er engin önnur en söngkonan Bryndís Jakobsdóttir eða Dísa Jakobs eins og hún er gjarnan kölluð. Þrjátíu og fimm ár eru síðan þessi fagri söngfugl fæddist. Dísa hefur ekki langt að sækja sönghæfileika sína en hún er dóttir Ragnhildar Gísladóttur og Jakobs Frímanns Magnússonar. Dísa hefur sungið með hljómsveit foreldra sinna, Stuðmönnum og Baggalúti svo fáeitt sé nefnt....
InnlentÖkuníðingur á Arnarneshæð – Faðir og synir hans slasaðir Klukkan rétt rúmlega níu í gærkveldi barst lögreglu tilkynningum um harðan árekstur tveggja bifreiða á Arnarnesbrúnni. Var annar ökumannanna sagður slasaður auk tveggja sona hans. Voru þeir allir með meðvitund þegar áhöfn sjúkrabifreiðar mætti á vettvang. Ekki er vitað nánar um líðan þeirra slösuðu. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar og tjónvaldur var handtekinn á slysstað grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis...
InnlentMorðið við Svartárvatn: Myrti ófríska ástkonu sína Guðfinna Jónsdóttir, vinnukona, fannst látin í grynningum í Svartárvatni rétt hjá Svartárkoti á Norðausturlandi, 16. september árið 1891. Hafði hún verið myrt. Guðfinna, sem var fertug, hafði átt í ástarsambandi við tvítugan vinnumann að nafni Jón Sigurðsson en vann hann á Mýri í Bárðardal. Varð Guðfinna ólétt eftir Jón sem hafði heimsótt hana daginn áður og gist um nóttina. Var...