Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jólasveinninn mætir á „Jól í júlí“ hjá Hjálpræðishernum

Hlynur hjá Hjálpræðishernum
Hlynur hjá Hjálp­ræð­is­hernum

„Jól í júlí verður haldið í fyrsta skipti hér á Íslandi núna í ár en herferðin á sér þó fyrirmynd hjá Hjálpræðis­hernum erlendis,“ segir Hlynur, starfs­maður Hjálpræðis­hersins. „Herferðin vakti mikla lukku erlendis og það er okkur sönn ánægja að halda jól í júlí enda jólin æðisleg.

Aðal­áherslu­atriðin eru að eyða tíma saman og vekja athygli á starfsemi Hjálpræðis­hersins sem er allan ársins hring og afla fjárs fyrir því starfi sem við erum að vinna svo að við getum gert það af þeim krafti sem við viljum vinna fyrir samfélagið okkar.

Jóla­sveinn sem lík­leg­ast verður með strand­pokan sinn fullan af nammi og góð­gæti fyrir krakk­ana.

Við komum saman og eyðum tíma saman, húsið okkar, Herkastalinn, býður upp á mikið pláss til þess að vera með alls konar hluti í gangi í einu og þar á meðal verður jóla­sveinn sem líklegast verður með strandpokan sinn fullan af nammi og góðgæti fyrir krakkana. Hann hvíslaði að okkur að hann langaði til þess að læra að dansa Tiktok-dans og ætlar að fá aðstoð krakkanna í Compass og þeirra sem mæta til þess að kenna sér einhver spor.“

Skapa öruggt samfélag

Hjálpræðis­herinn tekur á móti 200-300 manns daglega í opið hús og er opið hús opið í hádeginu á virkum dögum. „Á opnu húsi getur efnaminna og jaðarsett fólk fengið máltíðir endurgjalds­laust og þeir sem borga fyrir sína máltíð eru í raun að greiða fyrir sig og einhvern annan sem hefur ekki tök á því að gera það. Máltíðin kostar litlar 1700 krónur og er elduð á staðnum. Matseðill vikunnar er aðgengi­legur á herinn.is  Ásamt því erum við með Kastala­kaffi sem er kaffihús í Herkastalanum sem er með sanngjörn verð og gómsætar kökur og tertur. Svo er leikja­námskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Á námskeiðinu er mest unnið með frjálsan leik, úti og inni, ásamt föndri og stuttum ferðum. Lagt er upp með að börnin njóti sín sem best og að námskeiðið efli vináttu- og samskipta­færni. Innifalið er hafra­grautur að morgni, heitur matur í hádegi og síðdegis­hressing.“

Við erum að skapa öruggt sam­fé­lag þar sem fólk getur komið saman og notið sín.

Hlynur segir að opið hús og Hertex-kort úthlutanir séu með stærri verkefnum sem Herkastalinn sé með í gangi. „Það má samt ekki gleyma að allir okkar dagskrá­liðir eru gerðir til þess að þjóna samfélaginu og eru þeir allir mikil­vægir á sinn hátt. Við erum að skapa öruggt samfélag þar sem fólk getur komið saman og notið sín.“

Markmið Hjálpræðis­hersins segir Hlynur vera að skapa samfélag þar sem öllum finnist þeir vera velkomnir og rétta fram hjálpar­hendi til þeirra sem þurfa það hvað mest í samfélaginu.

Hjálpræðis­herinn flutti fyrr á þessu ári í nýtt húsnæði við Suður­landsbraut. „Húsið er gríðar­lega mikilvægt og var það hannað með okkar starfsemi í huga þannig að það gæti hentað starfsemi Hjálpræðis­hersins. Það voru margir sem höfðu áhyggjur af því að þetta væri of stórt en síðan við fluttum í Herkastalann hér á Suður­lands­brautinni hefur starfsemin vaxið svo mikið að húsið er í fullri nýtingu allan ársins hring.“

Ómetanlegt

Þegar starfið skiptir miklu máli fyrir stóran hóp í sam­fé­lag­inu.

Hlynur segist vinna hjá Hjálræðishernum vegna þess að hann telji að starf sitt stuðli að því að fleira fólki sé hjálpað í nærsamfélagi sínu. „Ég hef ekki þegið neina hjálp hjá Hjálpræðis­hernum. Það er hins vegar gríðar­lega gefandi að vinna hjá vinnu­veitanda sem er að láta gott af sér leiða daglega; þegar starfið skiptir miklu máli fyrir stóran hóp í samfélaginu. Það að vera partur af slíku starfi er ómetanlegt. Ásamt því er starfs­fólkið sem vinnur hjá Hjálpræðis­hernum bara ótrúlega skemmtilegt og kærleiks­ríkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið