Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Morðið við Svartárvatn: Myrti ófríska ástkonu sína

Svartárvatn
Svart­ár­vatn Mynd: svartarkot.is

Guðfinna Jóns­dóttir, vinnukona, fannst látin í grynningum í Svart­árvatni rétt hjá Svartár­koti á Norð­austurlandi, 16. september árið 1891. Hafði hún verið myrt.

Guðfinna, sem var fertug, hafði átt í ástar­sambandi við tvítugan vinnumann að nafni Jón Sigurðsson en vann hann á Mýri í Bárðardal. Varð Guðfinna ólétt eftir Jón sem hafði heimsótt hana daginn áður og gist um nóttina. Var hún þá komin hálfa leið á meðgöngunni. Eftir að Jón fór segir í blaðinu Norður­ljós árið 1891 þegar Jón hafi farið hefði Guðfinna komið inn í baðstofu og verið hin glaðasta. „Hafði hún þá orð á því, að Jón hefði verið fremur venju hlýlegur við sig.“ Bað hún svo húsmóður sína um farar­leyfi þetta kvöld og það fékk hún. Hitti hún Jón við Svart­árvatn. Var hún mjög glöð að sjá hann.

Jón hins vegar var ekki eins ánægður með fundinn en hann veittist strax að ástkonu sinni, tróð vettlingunum sínum upp í hana og hélt fyrir vit hennar þar til hún var öll. Þá henti hann Guðfinnu í ána og fór aftur til vinnu.

Þrátt fyrir að leit hófst að Guðfinnu strax daginn eftir, fannst lík hennar ekki fyrr en þremur dögum eftir morðið. Vá þá lík hennar flutt til Svartár­kots en fólkið á bænum grunaði strax að andlátið hefði ekki borið á fyrir slysni. Sent var eftir sýslu­manninum á Héðins­höfða sem reið strax af stað til Svartár­kots. Á sama tíma sendi hann amtmann sinn að sækja héraðs­lækninn á Akureyri sem kom að bónda­bænum 24. september.

Fljótlega féll grunur á Jón Sigurðsson og var tekin sú ákvörðun að hann skyldi vera viðstaddur krufninguna á Guðfinnu. Eftir hana úrskurðaði héraðs­læknirinn að orsök andlátsins væri köfnun og það af manna­völdum. Sýslu­maðurinn reið að Svart­árvatni í rannsóknar­leiðangur og fann þar fótsport. Gróf hann fótsporið upp og hafð með sér til Svartár­kots. Voru skór Jóns bornir saman við fótsporið og smell­pössuðu við.

Jón játaði loks morðið og var hann dæmur til dauða í október 1891. Hæstiréttur staðfesti dóminn árið 1893. Aftakan átti að fara fram í Kaupmanna­höfn og þangað var Jón sendur.

Árið 1893 skrifuðu blöðin fréttir þess eðlis að Jón hefði framið sjálfsvíg í fanga­klefa sínum í Kaupmanna­höfn og gerðist Þjóð­viljinn svo grófur að lýsa sjálfs­víginu. „Heila­sletturnar fóru út um allt herbergið.“

Hið rétta í málinu er það að Jón var aldrei sendur til Kaupmanna­hafnar heldur vistaður í hegningar­húsinu og árið 1904 var hann náðaður og látinn laus. Ástæðan var heilsu­leysi og góð hegðun í fangelsinu. Jafnframt væri hann undir eftirliti, eða nokkurs konar skilorði, í einhvern tíma.

Fluttist Jón til Húsavíkur og lést árið 1947.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst hjá Mannlífi 3. desember 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið