Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Forstjóri Orkuveitunnar fær rúmar 3,5 milljónir á mánuði: „Í engum takti við veruleikann“

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur

Á stjórnar­fundi Orkuveitu Reykja­víkur sem haldinn var í lok júní síðastliðinn var samþykkt að laun forstjóra skyldu hækka um 5,5 prósent frá 1. janúar 2022. Bjarni Bjarnason forstjóri Orku­veitunnar fær þar með rúmar 3,5 milljónir á mánuði. Fær Bjarni þá að júlí loknum leið­réttingu launa sinna tæpa 1,3 milljón.

Í ársreikningi OR sem lagður var fram í fyrri hluta þessa árs kom fram að Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku­veitunnar, var með rúmar 2,6 milljónir á mánuði árið 2020. Í mars 2022 voru laun hans kominn upp í rúmar 3,3 milljónir og eru núna eins og fram hefur komið rúmar 3,5 milljónir.

Gagnrýni á borgarráðsfundi

Borgarráð kom saman á fundi í gær og mætti samþykki launahækkuninnar tölu­verðri gagnrýni í bókun frá borgar­stjórnar­fulltrúum Sósíalista­flokks Íslands og benda á misræmi launa á milli stétta í launa­stefnu borgarinnar: „Laun forstjóra OR eru vel yfir 3 milljónum. Á meðan að manneskjur á lágmarks­launum og undir því eiga ekki fyrir mat út mánuðinn er verið að hækka laun forstjóra sem er á ofur­launum. Það er ljóst að launa­stefna borgarinnar og fyrir­tækja í eigu hennar er í engu takti við veru­leikann, þar sem launa­bilið á milli þeirra hæst launuðu og lægst launuðu er gríðarlegt í því stétt­skipta samfélagi sem við búum í.“

Áheyrnar­fulltrúi Flokk fólksins tekur undir í sama streng með svohljóðandi bókun: „Athyglis­vert er að í sömu fundar­gerð sé fjallað um hækkun launa forstjóra aftur­virkt og bætur vegna ólögmætra uppsagna. Flokkur fólksins finnst þessi laun vera út úr öllu korti. Allir vita hvaða ástand ríkir nú í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið eins há síðan fyrir hrun. Þurfa ekki forstjórar að axla einhverja ábyrgð eða eru þeir undan­þegnir ábyrgð sem öðrum er gert að axla? Það er ekkert lögmál að forstjórar eigi að vera á ofur­launum. Rökin fyrir svo háum launum forstjóra eru oft á þá leið að þeir séu að standa sig svo vel í starfi. Þetta eru undarleg rök, eins og það sé ekki beinlínis sjálf­gefið að forstjóri standi sig vel. Forstjórar orku­fyrirtækja eru sárafáir en þeir eru í höfrunga­hlaupi hver við annan og hækka á víxl í launum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið