Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Dísa Jakobs á tónleikaferðalag með Trentemøller: „Já, þetta er nefnilega svolítið stórt“

Dísa Jakobsdóttir
Dísa Jak­obs­dóttir Mynd: Ellen Loftsdóttir

Afmælis­barn dagsins er engin önnur en söngkonan Bryndís Jakobs­dóttir eða Dísa Jakobs eins og hún er gjarnan kölluð. Þrjátíu og fimm ár eru síðan þessi fagri söngfugl fæddist.

Dísa hefur ekki langt að sækja söng­hæfileika sína en hún er dóttir Ragnhildar Gísla­dóttur og Jakobs Frímanns Magnússonar. Dísa hefur sungið með hljómsveit foreldra sinna, Stuð­mönnum og Baggalúti svo fáeitt sé nefnt. Sólóplata Dísu samnefnd henni kom út árið 2008 og varð til upp úr samstarfi hennar og Moses Hightower, en hún hefur einnig gefið út plötu í samstarfi við Mads Mouritz.

Mannlíf heyrði í Dísu hljóðið og spurði hana út í afmælis­daginn.

„Ég er að fara að fá fjöl­skylduna heim til mín í brunch og svo er ég að fara í eitthvað surprise sem ég veit ekki hvað er, með vinum mínum og svo ætlum við nokkrir vinir að hittast í kvöld og fara út að borða,“ svaraði Dísa og var greini­lega spennt fyrir deginum.

En hvað er svo á döfinni hjá afmælis­barninu á næstunni? „Heyrðu, ég er að fara á tónleika­ferð með Trentemøller sem er vel þekktur raftónlistar­maður. Við erum að fara til Ameríku og túra um alla Evrópu.“ Þegar blaða­maður Mannlífs segir með aðdáun að þetta sé sem sagt mjög stórt mál svaraði Dísa: „Já, þetta er nefnilega svolítið stórt.“

En hefur Dísa ferðast eitthvað utan í sumar eins og annar hver Íslend­ingur eða hefur hún látið sér nægja að skoða Ísland?

„Sko, ég er búinn að vera úti í Danmörku út af þessu tónleika­ferðalagi og ég var eiginlega bara að koma heim og hef verið í svona kósý hérna í bænum með strákunum mínum. Við erum aðeins búin að fara í Adrenalín­skemmtigarðinn á Nesja­völlum og í Reykja­dalinn, bara svona stuttar fjall­göngur, reyna að hreyfa sig eitthvað,“ svaraði Dísa kát.

Mannlíf óskar Dísu innilega til hamingju með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið