Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kristinn segir Ísland aðeins lýðræðisríki að nafninu til: „Stjórnskipanin einkennist af auðræði“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks heldur því fram í nýrri Facebook-færslu að Ísland sé ekki lýðræðis­ríki nema að nafninu til.

Kristinn er oft gagn­rýninn á yfirvöld á Íslandi en í nýjustu færslu sinni segir hann Ísland ekki lýðræðis­ríki nema að nafninu til. Birti hann mynd sem hann gerði sjálfur, sem útskýrir kenningu hans.

„Ég rek mig á að margir eiga erfitt með að átta sig á þeirri staðreynd að Ísland er ekki lýðræðis­ríki nema að nafninu til. Dró því upp einfalda mynd til glöggvunar. Flestir finna vitaskuld fyrir merkjunum og verkjunum, en reyndin er sú að stjórn­skipanin einkennist af auðræði eða ólígarkisma. Lýðræðið er blekking eða Pótemkin-tjöld sem ætlað er að fela þessa mynd. Það gengur illa.“

Myndin sem Kristinn setti upp til útskýr­ingar.

Á sjötta tug manna hefur líkað við færsluna og er sú tala rísandi. Nokkrir þjóð­þekktir einstaklingar hafa einnig tjáð sig í athuga­semdum við færsluna.

Þar á meðal er Helga Vala Helga­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar: „Það sem er í raun verst er hversu samdauna lítið samfélag er. Það er þegar lesnar eru erlendar bækur og erlendar fréttir af svipuðu ástandi og heima að rennur upp fyrir manni að þetta er ekki eðlilegt.“

Jóhann Hlíðar Harðarsson, fyrrum frétta­maður minnist á ESB í svari sínu: „Þetta er helsta ástæða þess að „valdið“ vill ekki sjá Evrópu­sambandið.“

Þá tjáir Gunnar Smári Egilsson Sósíalista­foringi, sig einnig en aukreitis deilir hann færslu Kristins. „Þetta kallast alræði auðvaldsins. SA og Verslunarráð leggja línurnar, stjórn­málaflokkar og fjöl­miðlar hlýða flautinu þaðan. Margir sjá í gegnum þetta en kjósa að þegja og spila með. Andstaðan er of dýr, fólk missir vinnu og orðspor.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið