„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentSvandís vill ekki tjá sig fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur lokið skoðun Áhyggju- og gagnrýnisraddir heyrast víða í samfélaginu vegna fyrirhugaðra kaupa Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi. Forsætisráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af samþjöppun í sjávarútvegi en matvælaráðherra, sem sjávarútvegsmál heyra undir, telur ekki tímabært að tjá sig um málið fyrr en Samkeppniseftirlitið lýkur skoðun sinni. Talsvert hefur verið fjallað um yfirvofandi kaup Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi í Grindavík í vikunni. Samherji á...
InnlentUng stúlka í lífshættu á bílastæði sjúkrahúss – Kvartaði yfir vanlíðan eftir drykkju og dópneyslu Um síðastliðna helgi þurfti að gera endurlífgunartilraunir á ungri stúlku á bílastæði sjúkrahúss á Suðurlandi. Stúlkan hafði leitað til lögreglunnar vegna vanlíðunar eftir neyslu fíkniefna og áfengis. Sunnlenska segir frá málinu á vef sínum en þar kemur fram að stúlka hafi leitað aðstoðar til lögreglunnar um síðustu helgi, vegna vanlíðunar eftir að hafa neytt fíkniefna og áfengis. Lögreglan keyrði því...
InnlentTwitter logar vegna orðalags dómara í nauðgunarmáli: „Gagnrýni er byggð á villandi fréttaflutningi“ Dómur féll nýlega í Héraðsdómi Norðurlands eystra þar sem maður var dæmdur í þrjú og hálft ár fyrir að nauðga dóttur sinni. Orðalag í dóminum vakti gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum en fjölmargir voru hreinlega orðlausir. En svo virðist sem um misskilning sé að ræða. Í frétt Vísis um dóminn er vitnað í úrskurðinn en þar segir orðrétt: „Þvert á móti...
InnlentHandboltahetja verður bæjarstjóri – „Hefur sýnt það og sannað að hann er leiðtogi“ Meirihluti bæjarstjórnar í Hveragerði mun leggja fram tillögu á næsta bæjarstjórnarfundi að Geir Sveinsson verði ráðinn sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og mun hann hefja störf í upphafi ágústmánaðar. Geir Sveinsson er landsmönnum þekktur sem einn af landsliðsmönnum Íslands í handbolta og þjálfari. Geir er 56 ára og er með MBA próf frá Háskóla Íslands auk menntunar á markaðssetningu á netinu og...
InnlentReiknað með vaxtahækkunum út árið – Fólk borgar tugum þúsunda meira af láninu sínu „Ég held að það séu allar líkur á því að vextir haldi áfram að hækka,“ sagði Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Hún sagðist eiga von á frekari inngripum frá Seðlabanka Íslands og að vextir bankans myndu sennilega hækka út árið meðan verðbólgan er jafn mikil og raun ber vitni. „Það mun bara verða...
InnlentÓmar telur rússneska flotann verða áberandi á höfunum – Gamall draugur Kalda stríðsins ber á dyr Ómar Ragnarsson telur rússneska flotann muni herja meira á höfin á næstunni. Ómar Ragnarsson, skemmtikraftur og fyrrum fjölmiðlamaður, skrifaði færslu í dag á bloggsíðu sinni en færsluna kallar hann Endurómur Kalda stríðsins. Hlekkjar Ómar við færsluna frétt um beiðni bandaríska flughersins um milljarða fjárfestingu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Segir Ómar að þessar auknu framkvæmdir líkist því að gamall draugur Kalda...
InnlentFótboltabulla sofnaði á klósetti og missti af flugi – Gamalmenni á reiðhjóli læst inni í fangaklefa Langferðabílstjóri lenti í vandræðum með farþega sem læsti sig inni á salerni rútunnar og missti þar meðvitund vegna ölvunar. Atvikið varð þegar umræddur maður og félagar hans voru að fara í Leifsstöð. Um var að ræða stuðningsmann knattspyrnuliðs sem var á leið til síns heima. Bílstjórinn óskaði eftir aðstoð lögreglu við að koma manninum til meðvitundar. Það tókst en þá...
InnlentGuðjón stóð af sér Vítalíumálið Fráfarandi stjórn Festi hf. hlaut ekki eitt einasta atkvæði frá tveimur af þremur stærstu hluthöfum félagsins. Guðjón Reynisson stjórnarformaður var þó endurkjörinn. RÚV greinir frá þessu. Þetta var niðurstaða hluthafafunds sem haldin var í hádeginu en ástæða hans var mál Vítalíu Lazarevu. Nánar tiltekið þá var fundurinn boðaður í kjölfar uppsagnar Eggerts Þórs Kristóferssonar sem forstjóra Festis. Ólga var meðal...
InnlentEinbýlishús við Huldubraut 211 milljónum dýrar en fyrir sjö árum Einbýlishús við Huldubraut 46 í Kópavogi hefur hækkað í verði um ríflega 200 milljónir króna á einungis sjö árum. Uppsett kaupverð fyrir hana er nú 297 milljónir króna en við síðustu sölu, árið 2015, var eignin seld á 86 milljónir króna. Fréttablaðið greinir frá þessu. Þessi gífurlega hækkun í verði á svo stuttum tíma er að nokkru leyti lýsandi fyrir...
InnlentDýraníðingur í Breiðholti trylltist yfir hlandi í blómabeði Hundaeigandi í Breiðholt hafði fyrr í dag samband við lögreglu og tilkynnti dýraníðing sem varð á vegi hans. Hundaeigandinn kvað manninn hafa sparkað bæði í sig og hundana hans. Að sögn hundaeigandans hafði maðurinn í fyrstu gert athugasemdir við að einn af hundunum væri að spræna í blómabeð við hús hans, en þær aðfinnslur enduðu með þessum hætti. Lögregla rannsakar...
InnlentLind Draumland Staða þeirra sem þjást af geðrænum veikindum að öllu leyti óásættanleg Lind Draumland Völundardóttir er nýráðinn skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. Hún hefur starfað við skólann í fjögur ár, segist þekkja starfsemina og fannst hún eiga fullt erindi til að sækja um. Á hvað vill hún leggja áherslu í starfinu svo sem varðandi nýjungar og þróun skólans? „Það hefur verið unnið frábært starf í FAS á undanförnum árum og áratugum. Forverar mínir...
InnlentSólveig tilbúin að láta sverfa til stáls – Elítan geti „ekki látið eins og börnin passi sig sjálf“ Óhætt er að segja að það sé baráttuhugur í Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, ef marka má pistil sem hún birtir á Facebook. Þar segist hún ekki óttast komandi kjarabaráttu, því öllum sé ljóst að hennar fólk skapi verðmæti samfélagsins. Hún segir ekki kvíða kjarasamningum, því þeir séu „pólitískt tækifæri til að ná efnahagslegum árangri“. „Ég hef ekki áhyggjur af...