Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Twitter logar vegna orðalags dómara í nauðgunarmáli: „Gagnrýni er byggð á villandi fréttaflutningi“

Héraðsdómur Norðurlands eystra
Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands eystra Mynd: skra.is

Dómur féll nýlega í Héraðs­dómi Norður­lands eystra þar sem maður var dæmdur í þrjú og hálft ár fyrir að nauðga dóttur sinni. Orðalag í dóminum vakti gríðar­lega athygli á samfélags­miðlum en fjölmargir voru hreinlega orðlausir. En svo virðist sem um misskilning sé að ræða.

Í frétt Vísis um dóminn er vitnað í úrskurðinn en þar segir orðrétt: „Þvert á móti bar honum við þessar aðstæður, úr því hann ákvað að fylgja eftir þeim annarlegu hvötum sínum að eiga kynferðismök við dóttur sína, að ganga ríkt eftir því að skýrt og ótvírætt samþykki lægi fyrir.“

Þessi orð fóru fyrir brjóstið á fjölmörgum á samfélags­miðlum á borð við Twitter og Facebook og var fólk fljótt að fordæma þau enda skjóta þau skökku við hjá venju­legum leik­mönnum sem ekki þekkja tungumál lögfræðinnar upp á hár.

Á þetta bendir Aldís Coquillon laganemi, á Twitter en hún segir málið á misskilningi byggt. „Mikil gagnrýni á forritinu á þennan dóm í dag, byggt á málsgrein sem Vísir birtir úr niður­stöðu hans. Ef dómurinn er lesinn sést að máls­greinin er fengin úr umfjöllun um samþykki og ásetnings­stig þegar kemur að heim­færslu brotsins til 194. gr. (nauðgunar).“

Aldís heldur svo áfram með færsluna í athugasemd þar sem hún tekur upp hanskann fyrir dómaranum í málinu. „Umfjöllunin snýr að grundvallar­atriði í refsirétti og þessi dómari er virkilega að vanda sig þannig að sakfellingin muni halda. Þessi gagnrýni er byggð á villandi frétta­flutningi og er virkilega ómakleg í garð dómara.“

Villa nokkur skrifar athugasemd við færslu Aldísar og bendir á hvað lagamál getur verið í litlum tengslum við raun­veruleikann. „Þetta er mjög áhugavert en það er samt ekkert skrýtið að orðalagið hafi stuðað. Þetta sýnir kannski bara vel hvað lagamál getur verið í litlum tengslum við raun­veruleikann og jafnvel sært þess vegna“

Heiðar svarar einnig og segist enn hneikslaður á orða­laginu. „Kaupi það, er samt enn hneykslaður á orða­laginu. Eða kannski þá frekar hneykslaður að ef einhver þarna ætlar að gera rétt þurfi að orða hlutina svona. Orðhengils­háttur í dóms­kerfinu hefur reyndar pirrað mig í mörg ár. Allt snýst um orðalag en ekki brotin sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram