Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Guðjón stóð af sér Vítalíumálið

Eggert Þór Kristófersson, forstjóra Festar og Vítalía Lazareva. Samsett mynd
Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóra Festar og Vítalía Lazareva. Samsett mynd

Fráfar­andi stjórn Festi hf. hlaut ekki eitt einasta atkvæði frá tveimur af þremur stærstu hluthöfum félagsins.  Guðjón Reynisson stjórnar­formaður var þó endur­kjörinn. RÚV greinir frá þessu. Þetta var niður­staða hluthafafunds sem haldin var í hádeginu en ástæða hans var mál Vítalíu Lazarevu.

Nánar tiltekið þá var fundurinn boðaður í kjölfar uppsagnar Eggerts Þórs Krist­óferssonar sem forstjóra Festis. Ólga var meðal hluthafa í félaginu vegna ákvörðunar fráfar­andi stjórnar að reka Eggert en fyrst héldu menn því fram að hann hefði hætt. Ljóst er að Eggert var rekinn vegna máls Vítalíu og hvernig hann tók á því.

Eggert virðist hafa staðið með henni, ólíkt öðrum, og því verið látinn fjúka. Vítalía hefur sjálf sagt að Eggert hafi verið einn fárra sem hlustaði á hana eftir að hún sakaði Þórð Már Jóhannesson, þáverandi stjórnar­formann Festi, um að hafa, ásamt öðrum, brotið gegn sér kynferðis­lega í líklega umtöluðustu sumar­bústaðar­ferð Íslands­sögunnar.  Lögregla rannsakar nú bæði kæru hennar um kynferðis­brot og ásakanir á hennar hendur um fjárkúgun.

Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins, sem á stærsta hlutinn í Festi, og Lífeyris­sjóður verslunar­manna, sem á þriðja stærsta hlutinn, hunsuðu í dag alla frá fráfar­andi stjórn á fundinum í dag og greiddu henni ekki eitt einasta atkvæði. Sigurlína Ingvars­dóttir, Magnús Júlíusson og Hjörleifur Pálsson eru nýir stjórnar­menn en Guðjón Reynisson og Margrét Guðmunds­dóttir halda sæti sínu.

Í kvöld­fréttum RÚV sagði Guðjón að hann teldi væringar undan­farna mánaða ekki hafa skaðað félagið. „Það er aldrei gott að vera svona mikið í fréttunum. En ég held að þetta hafi ekkert skaðað okkur þannig að þetta sé ekki eitthvað sem við getum lagað bara með okkar góðu vinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram