Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Svandís vill ekki tjá sig fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur lokið skoðun

Svandís Svavarsdóttir henti sprengju inn í ríkisstjórnarsamstarfið.
Svandís Svav­ars­dóttir henti sprengju inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Áhyggju- og gagnrýnis­raddir heyrast víða í samfélaginu vegna fyrir­hugaðra kaupa Síldar­vinnslunnar á útgerðinni Vísi. Forsætis­ráðherra hefur lýst yfir áhyggjum af samþjöppun í sjávar­útvegi en matvæla­ráðherra, sem sjávarútvegsmál heyra undir, telur ekki tímabært að tjá sig um málið fyrr en Samkeppnis­eftirlitið lýkur skoðun sinni.

Talsvert hefur verið fjallað um yfir­vofandi kaup Síldar­vinnslunnar á útgerðinni Vísi í Grindavík í vikunni. Samherji á ráðandi hlut í Síldar­vinnslunni og ef viðskiptin ganga eftir munu fisk­veiði­heimildir félaga með tengsl við Samherja nema meira en 25 prósentum af heildar­kvótanum.

Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af kaupunum, ýmist vegna aukinnar samþjöppunar í sjávar­útvegi eða í tengslum við tortryggni í garð þeirrar yfir­lýsingar að starfsemin muni áfram vera í Grindavík og ekki fara úr byggðar­laginu.

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, tjáði sig um málið í vikunni og lýsti yfir áhyggjum sínum af því að samþjöppun í sjávar­útvegi yrði of mikil eftir kaup Síldar­vinnslunnar á Vísi. Hún sagðist hafa þá skoðun að það þyrfti að endur­skoða reglu­verkið, bæði varðandi kvótaþak og tengda eigendur. Fyrir­tækið mun ekki fara yfir löglegt kvótaþak eftir sameininguna, þar sem Samherji telst ekki tengdur aðili. Til þess að útgerðir teljist tengdar þurfa þær eða eigendur þeirra að eiga meira en helmings­hlut hvor í annarri. Samherji á ráðandi hlut í Síldar­vinnslunni, 32,64 prósent.

Katrín sagðist einnig hafa áhyggjur af áhrifum á byggðar­lögin í landinu. Hún nefndi sömuleiðis tilflutning auðs sem ætti sér stað í kringum viðskipti af þessu tagi. Katrín sagði það vekja spurningar um gjaldtöku og bætti því við að um væri að ræða eitt þeirra atriða sem til skoðunar væru hjá matvæla­ráðherra, Svandísi Svavars­dóttur.

Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra, virðist ekki á sömu skoðun og forsætis­ráðherra. Hann sagðist ekki sjá ástæðu til þess að hafa áhyggjur af kaupum og sölu Vísis.

Aðilar að viðskiptunum bíða nú eftir samþykki Samkeppnis­eftirlitsins, sem er með þau til skoðunar.

Blaða­maður Mannlífs hafði samband við Svandísi Svavars­dóttur, matvæla­ráðherra, vegna málsins. Af skriflegu svari frá upplýsinga­fulltrúa matvæla­ráðuneytisins að dæma telur Svandís ekki tímabært að tjá sig um viðskiptin.

„Ráðherra telur eðlilegt að Samkeppnis­eftirlitið skoði málið í heild sinni áður en hún tjáir sig,“ segir í svarinu. Þar kemur einnig fram að allsherjar endur­skoðun á fiskveiði­stjórnunar­kerfinu sé nú í gangi.

„Þegar er farin af stað vinna við að rýna fiskveiði­stjórnunar­kerfið og undir í þeirri vinnu er allsherjar endur­skoðun á kerfinu – t.d. eigna­tengsl, gagnsæji, samþjöppun, byggða­kvótar og strand­veiðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram