Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sólveig tilbúin að láta sverfa til stáls – Elítan geti „ekki látið eins og börnin passi sig sjálf“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/skjáskot RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Óhætt er að segja að það sé baráttu­hugur í Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, formann Eflingar, ef marka má pistil sem hún birtir á Facebook. Þar segist hún ekki óttast komandi kjara­baráttu, því öllum sé ljóst að hennar fólk skapi verðmæti samfélagsins. Hún segir ekki kvíða kjara­samningum, því þeir séu „pólitískt tækifæri til að ná efnahags­legum árangri“.

„Ég hef ekki áhyggjur af komandi kjara­baráttu. Ég myndi kannski hafa áhyggjur ef að verka og láglaunafólk væri enn fast í því ástandi sem ríkti fyrir ekki svo löngu, þegar búið var að ákveða að „stöðug­leiki“ næðist fyrst og fremst með því að „þjóðar­sátt“ ríkti um að vinnu­aflið fengi úthlutað nákvæmlega þeim brauð­molum sem að reikni­meistarar valdsins náðu niður­stöðu um að væru nægilega margir. En við Eflingar-fólk höfum náð raun­verulegum árangri í að komast undan þessu ástandi, ástandi sem skapaðist vegna og var viðhaldið af getuleysi og áhuga­leysi forystu vinnandi fólks gagnvart því að sýna metnað, dirfsku, vinna vinnuna sína. Sem er hver? Jú, að gera allt sem hægt er til að tryggja að máttur verka og láglaunafólks, og geta, séu sem allra mest þegar að því kemur að semja um það sem mestu máli skiptir; hvað fólk fær fyrir að selja aðgang að vinnu­aflinu sínu, hvaða lífskjör boðið er upp á í samfélaginu,“ segir Sólveig.

Hún segir fyrri forystu ekki hafa haft áhuga á öðru en að viðhalda óbreyttu ástandi. „Forysta verka og láglaunafólks hér á höfuð­borgar­svæðinu hafði ekki áhuga á þessu verkefni. Hún hafði áhuga á því að viðhalda óbreyttu ástandi, fölskum stöðug­leika og því að taka „samtalið“ við valda­stéttina, framhjá vinnu­aflinu. Hún hafði áhuga á að tilheyra stétt stjóranna, ekki því að vera í fylkingar­brjósti raun­verulegrar og árangurs­ríkrar stétta­baráttu. Hún hafði áhuga á stétta­samvinnu, ekki stétta­baráttu,“ segir Sólveig.

Hún segir elítu landsins ekki geta látið eins og gólfin skúri sig sjálf eða börnin passi sig sjálf. „Raun­veruleg stétta­barátta byggir upp pólitískan mátt vinnu­aflsins svo að hann sé í samræmi við grund­vallar-mikilvægi verka­fólks í þjóðhagslegri verðmæta­framleiðslu. Það gerir hún með því að kenna okkur samstöðu og dirfsku, og með því að sýna okkur hvað ber árangur. Hún gerir okkur ljóst að ef við erum óvirk og ósýnileg uppskerum við ekkert nema meiri jaðar­setningu, meiri ósýni­leika, sífellt minni völd, þangað til að við endum á þeim stað að þau eru engin. Hún kennir okkur að ef við erum virk og sýnileg getum við raun­verulega skapað ástand þar sem að valda­stéttin getur einfald­lega ekki lengur látið eins og við séum ekki til. Getur ekki látið eins og börnin passi sig sjálf, vegirnir leggi sig sjálfir, húsin byggi sig sjálf, matvaran framleiði sig sjálf, kaffi­húsin og hótelin reki sig sjálf. Gólfin skúri sig sjálf. Getur ekki látið eins og hinn efnislegi veruleiki þjóð­félags okkar sé ekkert annað en sjálfsögð niður­staða afburða hæfileika þeirra til að vera einhverskonar meritókratísk yfirstétt (!).“

Sólveig segir raun­verulega sigra innan seilingar. „Raun­veruleg stétta­barátta getur skapað ástand þar sem að öllum verður það algjör­lega augljóst hver vinna vinnuna sem skapar verðmætin og hver vinna vinnuna sem gerir verðmæta­sköpunina mögulega. Það er tilgangur raun­verulegrar stétta­baráttu. Hún skapar ástand þar sem að grundvallar­mikilvægi vinnu verka­fólks í þjóð­félaginu getur engum dulist og þau sem viðurkenna ekki grundvallar­mikilvægið verða sjálfum sér til skammar með því að opinbera heimsku sína og/eða óheiðarleika. Hún skapar ástand þar sem að raun­verulegir sigrar eru mögulegir.“

Hún segist nú þegar hafa náð árangri, sem aðrir innan verkalýðs­hreyfingarinnar vildu gefa eftir. „Við, félags­fólk Eflingar, höfum háð raun­verulega stétta­baráttu. Og við höfum náð raun­verulegum árangri. Eitt dæmi um þann árangur er sú staðreynd að það var staðfesta Eflingar sem stöðvaði áhlaup valda­stéttarinnar á kjara­samnings­bundnar hækkanir vinnu­aflsins í Covid-faraldrinum. Valda­stéttin taldi víst að hægt væri að fá verkalýðs­hreyfinguna til að gefa eftir hækkanirnar, enda sýndi reynslan úr Hruninu að fátt var auðveldara en að fá verkalýðs-stjórana til að gefa eftir hagsmuni vinnu­aflsins (allt í nafni stöðug­leikans). Innan hreyfingarinnar var sannarlega vilji til þess að kippa hækkununum úr sambandi.“

Hún segir muninn á sér og öðrum að hún er tilbúin til að láta sverfa til stáls. „En Efling sagði Nei, kemur ekki til greina. Hversvegna virkaði Nei-ið okkar? Vegna þess að við höfðum sýnt að við stóðum saman, að við sjálf skildum grund­vallar-mikilvægi okkar og að við vorum tilbúin til að láta sverfa til stáls, ef að þess var krafist. Vegna þess að við vorum búin að byggja upp nægilega mikinn mátt og getu; vorum ekki óvirk og ósýnileg heldur fær um að senda skýr pólitísk skilaboð. Vorum fær um að senda skilaboð um að dagar stétta­samvinnu á kostnað verka­fólks væru liðnir, að þau sem réðust að okkur þyrftu þá að vera tilbúin í raun­veruleg og hatrömm átök.“

Hún segist því ekki kvíða kjara­samningum. „Ég kvíði ekki komandi kjara­baráttu. Hún verður raun­veruleg stétta­barátta. Og félags­fólks Eflingar mun mæta til leiks með allra mikil­vægustu vitneskju vinnu­aflsins í farte­skinu: Vinna okkar skapar verðmæti samfélagsins og gerir sköpun þeirra möguleg með því að halda uppi umönnunar­kerfunum. Fólk sem veit þetta, fólk sem skilur að það er ómissandi að öllu leiti þarf ekki að kvíða. Það mætir stjórum þessa lands hnarreist og segir: Við sættum okkur ekki við að vellystingar ykkar séu á kostnað okkar. Við krefjumst réttlætis og við krefjumst þess að okkar hagsmunir séu settir í fyrsta sæti.

Sá tími er liðinn að Eflingar-fólk kvíði kjara­samningum. Fyrir okkur eru þeir pólitískt tækifæri til að ná efnahags­legum árangri. Og er það ekki frekar augljóst um leið og þið hugsið um það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram