Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Lind Draumland Staða þeirra sem þjást af geðrænum veikindum að öllu leyti óásættanleg

Lind Draumland Völundardóttir
Lind Draum­land Völ­und­ar­dóttir

Lind Draumland Völundar­dóttir er nýráðinn skóla­meistari Framhalds­skólans í Austur-Skafta­fellssýslu. Hún hefur starfað við skólann í fjögur ár, segist þekkja starfsemina og fannst hún eiga fullt erindi til að sækja um.

Á hvað vill hún leggja áherslu í starfinu svo sem varðandi nýjungar og þróun skólans?

„Það hefur verið unnið frábært starf í FAS á undan­förnum árum og áratugum. Forverar mínir í starfi hafa ekki verið neinir meðalmenn og mun ég halda því góða starfi áfram. Áherslur mínar tengjast því að efla list, verk- og tækninám og efla fjarnáms­möguleika, styrkja fjalla­mennsku­námið sem er einstakt nám á Íslandi og síðast en ekki síst taka lengra tilrauna­verkefni sem hefur verið starfrækt innan skólans síðastliðnar þrjár annir. Verkefnið heitir „Jákvæð heilsu­efling“ en þar erum við að hlúa meðal annars að velferð með aðferðum núvitundar, jóga og mark­þjálfunar.“

Að gera gott betra

Grunn­menntun Lindar tengist iðnnámi en hún er kjóla­meistari. „Eftir það nám þá fór ég í myndlistarnám við Lista­háskóla Íslands og í framhaldsnám í Hollandi þar sem ég ílengdist, stundaði myndlist, gifti mig og gerði fleira skemmtilegt,“ segir Lind sem er með fjöl­breytta menntun en hún er með MA í menningar­stjórnun frá Háskólanum á Bifröst, M.Ed. í kennslu­fræði frá Háskóla Íslands og auk þess kennslu­réttindi frá Háskóla Íslands. Þá er hún með diplómu í jákvæðri sálfræði frá Endur­menntun Háskóla Íslands og svo hefur hún lokið mark­þjálfun, ACSTH, frá Profectus. Lind lýkur síðar á þessu ári  M.S.-námi í jákvæðri sálfræði við Buckinghamshire New University.

Lind var forstöðu­maður búninga­deildar Íslensku óperunnar á árunum 2011-2015. Hún hefur starfað sem verkefna­stjóri félags­lífs hjá Framhalds­skólanum í Austur-Skafta­fellssýslu frá árinu 2018 þar sem hún hefur meðal annars unnið að mótun lista- og menningar­sviðs skólans. Þá hefur hún samanlagt níu ára kennslu­reynslu bæði á grunn­skóla- og framhalds­skólastigi.

Heima­gangar á mínu heim­ili voru meðal ann­ars Alfreð Flóki, Dagur Sig­urð­ar­son, Pétur Pálsson og Jónas Svafár.

Hvers vegna þessar áherslur í náms­leiðum?

„Mitt bernsku- og uppvaxtar­umhverfi var list­umhverfið og það lá einhvern veginn beinast við að fara í þá átt; skrifa ljóð, búa til myndlist og falleg föt. En á leiðinni áttaði ég mig á því að hamingja, velferð og fegurð voru aðal­viðfangs­efnin. Pabbi minn, Völundur Draumland Björnsson, var myndlistar­maður og heima­gangar á mínu heimili voru meðal annars Alfreð Flóki, Dagur Sigurðarson, Pétur Pálsson og Jónas Svafár og allt hafði þetta fólk mikil áhrif  og töluverða viðveru á æsku­heimilinu þar sem pabbi var alltaf með vinnu­stofu heima.

Félagslegar aðstæður ráða miklu um velferð fólks en þær aðstæður er hægt að bæta mikið með menntun. Við erum svo heppin í þessu landi að búa við opinbert skóla­kerfi sem á að tryggja öllum einstaklingum sömu menntun; það er grunn­stefið. Ég er þeirrar skoðunar að í skóla­starfi leggjum við of mikla áherslu á mæli­kvarða sem hafa ekkert með menntun að gera. Kennslu­fræði, stjórnun, mark­þjálfun og jákvæð sálfræði eiga mjög margt sameiginlegt, til dæmis það að setja manneskjuna í miðjuna og kraft hennar til að hafa áhrif á eigin líf. Í öllum þessum greinum er lögð áhersla á afl breytinga, að gera gott betra og miklu betra. Við getum sagt að „besta“ allt.“

Pírati

Lind var í framboði fyrir Pírata til Alþingis í Suður­kjördæmi í fyrra. Hvers vegna Píratar og hvers vegna gaf hún kost á sér?

„Ef við fylgjumst með pólitík þá er auðvelt að sjá kosti Pírata; málefnin ráða ferðinni, gagnsæi er baráttumál, heiðarleg stjórnmál og vönduð vinnu­brögð. Það er helst þetta; fyrir utan það hversu frábærir Píratar eru. Eins og okkar ágæti heim­spekingur Páll Skúlason sagði svo fallega eitthvað á þessa leið: „Við tökum öll þátt í pólitík alla daga, hvort sem við viljum það eða ekki.“ Þannig að gefa kost á sér, taka þátt, bjóða fram krafta sína til góðs og vera þátt­takandi en ekki áhorfandi í lífi sínu og mótun umhverfisins.“

Segir hún að „þátt­taka“ sé mottóið.

Lind hefur sinnt ýmsu í gegnum árin þegar kemur að félagsmála­starfi og segir hún að „þátttaka“ sé mottóið.

Listir, sköpun og menning

Lind er úr Reykjavík.

Ég ætl­aði að bjarga plánet­unni en á ung­lings­árum þá trúði ég á kraft ljóðs­ins til þess verks.

„Þorpið 101 Reykjavík eru mínar æsku­slóðir en móðir mín, Steinunn Svein­bjarnar­dóttir, fæddist í Svefn­eyjum á Breiða­firði en bjó í Flatey til fermingar­aldurs. Faðir hennar var eyjamaður en móðir hennar var frá Mjóafirði á Austur­landi. Faðir minn fæddist hins vegar og ólst upp í Reykjavík, 101 Reykjavík, en var frá Horn­ströndum í móðurætt og Langanesi í föðurætt. Í minni bernsku var kjarnorku­váin það hræðilegasta og ég ætlaði að bjarga plánetunni en á unglings­árum þá trúði ég á kraft ljóðsins til þess verks.“

Draumland. Hver er tilurð nafnsins?

„Þetta var milli­nafnið hans pabba míns. Okkur í fjöl­skyldunni finnst það fallegt svo sum okkar höfum tekið það upp. Þetta nafn var hins vegar mála­miðlun því amma vildi að hann héti Völundur Brosandi land en presturinn þvertók fyrir það þannig að Draumland var lendingin.“

Lind á fjögur uppkomin börn og býr með eigin­manni sínum, Tim Junge, og íslenska hundinum þeirra, Káti, á Höfn.

Hver eru áhuga­málin?

„Listir, sköpun og menning eru aðal­áhugamálin. Á Höfn rekum við hjónin heima­galleríið MUUR í samvinnu við Menningar­miðstöð Horna­fjarðar. Við höfum einnig, ásamt elstu dóttur minni, Perlu Torfa­dóttur, gefið nokkrum sinnum út lista­dagatalið List í 365 daga þar  sem 365 listaverk eru til sýnis á jafnmörgum síðum.“

Langt á eftir

Það er ýmislegt sem mótar fólk á lífs­leiðinni og aðspurð um það segir Lind:

„Það er svo margt sem mótar mann á lífs­leiðinni; verkefnin sem líta út fyrir að vera óyfirstíganleg eru oft þau sem móta mann mest. Það var í mínu ungdæmi nær ómöguleg tilhugsun að stíga fram vegna kynbundins óréttlætis og áreitni. Þau áföll átti maður sjálfur og einn. Það voru ekki einu sinni til orð um þá reynslu. Það gefur svo mikla von að fylgjast með því hvernig hugrakkt fólk um allan heim hefur verið að opna á óréttlæti og kúgunar­mynstur. Ég legg þeirri baráttu alltaf lið.“

Við erum langt á eftir í mann­rétt­inda­málum.

Barnabarn Lindar greindist með geðsjúkdóm á sínum tíma.

„Staða þeirra sem þjást af geðrænum veikindum á Íslandi í dag er að öllu leyti óásættanleg. Við erum langt á eftir í mann­réttinda­málum og lækninga­aðferðum þegar litið er til þessa hóps. Veikindi eru alltaf áföll en við erum ekki áföllin sem við lendum í heldur miklu frekar vegurinn til bata og að þessu sögðu þá er ég sannfærð um að við þurfum að hætta að einblína á sjúk­dóminn en einbeita okkur að bata­ferlinu. Allir eiga rétt á góðu lífi.“

Hverjir eru draumar nýráðins skóla­meistara?

„Að menntun geri okkur að því besta sem við getum orðið, að stríðin í heiminum hætti og að okkur takist að bjarga plánetunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram