„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentÍslenskur karlmaður í 8 ára fangelsi á Spáni – Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum Ómar Traustason, var dæmdur í átta og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega á að minnsta kosti sex börnum í borginni Cartagena á Spáni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið á átta börnum, en hann viðurkenndi brot gegn sex þeirra. Brotin fela meðal annars í sér óviðeigandi kynferðislega hegðun, tilraunir til kynferðisbrota og að hafa sýnt...
InnlentVala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags SÞ: „Ég vil setja mitt mark á veröldina“ „Ég var í nokkur ár hjá UNICEF á Íslandi og var svo heppin að ég fékk að prófa mörg ólík verkefni. Ég vann bæði í síma- og þjónustuveri og naut þess að tala við alls konar fólk. Svo sá ég um neyðarsafnanir og Sannar gjafir og fékk þá heilmikla innsýn í vefsíðuvinnu, bakenda og skýrslugjöf. Með Sönnum gjöfum UNICEF fékk...
InnlentSkuggaskýrsla um mismunum gagnvart konum: Fulltrúar íslenska ríkisins munu sitja fyrir svörum Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Öfgar, UN Women á Íslandi og Öryrkjabandalag Íslands hafa skilað inn sameiginlegri skuggaskýrslu til nefndar sem starfar á grundvelli samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum (Kvennasáttmálans). Nefndin undirbýr nú fund þar sem fulltrúar íslenska ríkisins munu sitja fyrir svörum um framkvæmd Kvennasáttmálans. Útrýma mismunun Framkvæmd Íslands á Kvennasáttmálanum verður tekin fyrir á fundi...
InnlentÍbúðir rjúka upp í borginni fyrir fiðruðu vinina – Nú er bara að fara í göngutúr og hafa augun opin Í miðborginni hafa fjölmargar nýjar íbúðir risið upp á síðkastið. Nýju íbúðirnar eru fyrir fiðruðu vini okkar, en 12 fuglahús hafa verið sett upp við göngugötur, græn svæði eða torg í miðborginni. Tilgangurinn er að vekja athygli á mikilvægi fugla í umhverfinu okkar og ekki síður mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni í borgarumhverfinu. Staðsetning þessara hreiðurhúsa er í öllum tilfellum við gönguleiðir...
InnlentGunnar Smári um laun nýja bæjarstjórans í Kópavogi: „Það vantar margt í þetta lið“ Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands vekur gjarnan athygli er hann skrifar Facebook-færslur enda kjarnyrtur í skrifum og skemmtilega kaldhæðinn. Í nýjasta færslunni talar hann um laun bæjastjóra Kópavogs. Laun bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu eru afar há á heimsvísu eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum en virðist það ekki ætla að breytast á næstunni. Sjá einnig: Laun íslenskra bæjarstjóra...
InnlentBjarni Ben mun halda velli á landsfundi flokksins: „Bara nauðaómerkilegur samkvæmisleikur“ Mbl.is sagði frá því í dag að komin væri dagsetning á 44.landsfund Sjálfstæðisflokksins. Verður hann haldinn 4. til 6. nóvember næstkomandi og fer fram í Laugardalshöll. Samkvæmt mbl.is ákvað miðstjórn flokksins þetta en landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins en þar er einning stefna hans mótuð. Þeir sem seturétt eiga á landsfund eru flokkráðsfulltrúar flokksins sem og fulltrúar...
InnlentSeðlabankinn breytir reglum um íbúðalán: Þyngir róður fasteignakaupenda Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gaf frá sér yfirlýsingu í dag. Ber þar helst að nefna töluverðar breytingar sem verða á skilmálum nýrra fasteignalána. Breytingarnar munu taka gildi frá og með morgundeginum. Lækka hámark lána fyrstu kaupenda Ákveðið hefur verið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur í 85% sem áður hefur verið 90%. Viðmið vaxta í greiðslumati Viðmið vaxta við útreikning...
InnlentÖssur vill nýjan formann í stað Loga: „Flokkurinn hefur hrakist eins og sprek“ „Hvenær ætlar Samfylkingin að kalla þessa efnilegustu konu íslenskra stjórnmála til forystu?“ spyr Össur Skarphéðinsson, fyrrum formaður Samfylkingarinnar, og alþingismaður og ráðherra til margra ára. Spurninguna ber hann upp í pistli sem hann skrifar á Facebook-síðu sína og vísar þar til Kristrúnar Frostadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar. „Hnífskarpur greinandi með pólitíska framtíðarsýn sem hefur svo sárlega skort síðustu árin, þegar flokkurinn hefur...
InnlentBirgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“ Forstjóri flugfélagsins Play harmar upplifun farþega sem sendir voru á hótel sem uppfyllti vægast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru strandaglópar í París eftir að flugferð félagsins var aflýst. Vísir greinir frá þessu. Birgir Jónsson, forstjóri Play, er sammála því að hótelið sem farþegunum var boðið upp á í París hafi verið óviðunandi. „Ég er bara sammála þessu fólki sem...
InnlentStaða leigjenda: „Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur farið lækkandi“ Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur gefið út nýja mánaðarskýrslu. Í henni er bent á að ýmsir mælikvarðar bendi á að ástandið á leigumarkaði sé betra en oft áður. „Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur farið lækkandi á föstu verðlagi frá því í byrjun árs. Nú er leiguverðið orðið lægra en fyrir ári síðan og hefur það ekki mælst lægra að raunvirði síðan í...
InnlentLandspítalinn vill fá útskýringu frá feðginunum sem veltu milljörðum króna „Þessar tölur vekja athygli og ég geri ráð fyrir því að við munum eiga samtal við Lyru,“ sagði Ólafur Darri Andrason, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landpítalanum, í samtali við Fréttablaðið. Rætt var við Ólaf í kjölfar frétta af gríðarlegum hagnaði fyrirtækisins Lyra, sem fram kom í ársreikningum þeirra. Lyra seldi fyrir fjórfalt hærri upphæð í fyrra, samanborið við árinu áður, en...
InnlentKarlmaður í annarlegu ástandi í Hlíðunum reyndist vopnaður Það var annasöm nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla handtók karlmann í Hlíðahverfi í gærkvöldi en sá var í mjög annarlegu ástandi. Skömmu áður en átti að vista manninn í fangaklefa fannst rafstuðbyssa í forum hans. Verður maðurinn kærður fyrir brot á vopnalögum. Seinna um nóttina, í Hlíðahverfi, keyrði ökumaður í veg fyrir lögreglu og inn á bílastæði. Bíllinn var...