Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bjarni Ben mun halda velli á landsfundi flokksins: „Bara nauðaómerkilegur samkvæmisleikur“

|
|

Mbl.is sagði frá því í dag að komin væri dagsetning á 44.landsfund Sjálfstæðis­flokksins. Verður hann haldinn 4. til 6. nóvember næst­komandi og fer fram í Laugar­dalshöll.

Samkvæmt mbl.is ákvað miðstjórn flokksins þetta en lands­fundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins en þar er einning stefna hans mótuð.

Þeir sem seturétt eiga á landsfund eru flokk­ráðs­fulltrúar flokksins sem og fulltrúar sem félög og fulltrúaráð kjósa til setu á fundinum.

Fundurinn er haldinn í skugga sílækkandi fylgi flokksins í skoðana­könnunum en í nýjustu könnun Frétta­blaðsins er Sjálfstæðis­flokkurinn með 18,5% og er þar við hlið Pírata sem eru með 17,5% og Framsóknar­flokksins sem er með 17,3%. Þrátt fyrir að Sjálfstæðis­flokkurinn sé enn stærsti flokkur landsins hefur hann tapað gríðar­legu fylgi allt frá hruninu 2008. Í síðustu kosningum var flokkurinn með um 24% fylgi.

Helgi Áss Grétarsson, vara­borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins talaði um það í viðtals­hlaðvarps­þætti Reynis Trausta­sonar, Mannlífið að Sjálfstæðis­flokkurinn þurfi að fara í mikla endur­skoðun. „Ef þeir halda að þetta sé bara í lagi, að flokkurinn eigi að halda áfram að stefna niður á við og það sé ekki ástæða til að endur­skoða starfs­aðferðir, endur­skoða fyrir hvað við stöndum, hvernig við lítum út og hvernig við komum skila­boðum á framfæri þá held ég að fólk sé á villigötum.“

Mannlíf heyrði í Eiríki Bergmann stjórnmála­fræðingi og bað hann um hans álit á stöðu Bjarna Benedikts­sonar í forystu Sjálfstæðis­flokksins. Taldi Eiríkur staða hans fín þrátt fyrir hneikslismál og fylgistap. „Ég held að staða hans sé bara sterk. Þrátt fyrir allt. Það er allavegana ekki kominn neinn áskorandi fram sem að sækir að honum. Þannig að á meðan svo er ekki getur maður ekki annað sagt en að staðan sé sterk. En hinsvegar hefur flokkurinn tapað mjög miklu fylgi en að stærsta hluta til bara í takt við almenna stjórnmála­þróun. Það koma fram fleiri og fleiri flokkar og atkvæðin deilast víðar. Og á meðan Sjálfstæðis­flokkurinn er augljós­lega stærsti flokkurinn á landinu, sem hann er nú ennþá, þá held ég að menn geti alveg litið svo á að staðan sé ekkert hörmuleg.“

Aðspurður um það hver gæti verið líklegur til að skora Bjarna á hólm, til að mynda vara­formaður flokksins, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir sagði Eiríkur: „Ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að nokkur sem er í forystu flokksins núna, ætli sér að skora formanninn á hólm. Og allar vanga­veltur í einhverri umræðu þar af lútandi eru ekkert annað en bara nauða­ómerkilegur samkvæmis­leikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá