„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentBændasamtökin ósátt við að fella niður tolla á vörum frá Úkraínu: „Neikvæð áhrif á íslenskar vörur“ Stjórnarfrumvarp um niðurfellingu tolla á vörur sem upprunnar eru í Úkraínu var samþykkt á Alþingi í gær. Í umsögnum um frumvarpið var að finna umsögn frá Bændasamtökum Íslands. „Í ljósi erfiðrar stöðu í íslenskum landbúnaði sökum gríðarlegra hækkana á aðföngum hafa samtökin eðlilega áhyggjur af því hvaða áhrif innflutningurinn kann að hafa á félagsmenn.“ Þar segjast samtökin meta það svo...
InnlentBrugghúsdagurinn – sala áfengis heimiluð frá framleiðslustað: „Breytingar í takt við nýja tíma“ „Það er stundum sagt að dropinn holi steininn og ég held að það eigi alveg sérstaklega við í þessu máli. Hér eru tímamót í þessum málum og ég vil fagna því alveg sérstaklega hvað það er mikil samstaða um þessar breytingar í þinginu,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra, við atkvæðagreiðsluna. Brugghúsdagurinn Bruggarar eru himinlifandi með áfangann en vona að þetta sé...
InnlentSkilnaðarferlið auðveldað: „Stórt réttlætismál fyrir fólk sem býr við viðkvæmar aðstæður“ Í gær samþykkti Alþingi einróma frumvarp sem auðveldar skilnaðarferlið fyrir fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka síns eða býr á heimili þar sem barn hefur verið beitt ofbeldi. Í frumvarpinu felst líka að hjón sem eru sammála um að slíta hjúskap geta fengið skilnað án undangengins skilnaðar að borði og sæng. „Það er eðlilegt frelsismál enda á...
InnlentNý lög-Foreldrar sem missa barn tryggður réttur til sorgarleyfis: „Mamma leiddi mig í gegnum allt“ Frumvarp um sorgarleyfi var samþykkt einróma við þinglok í gær og er nú orðið að lögum. Lögin tryggja foreldrum sem missa barn sitt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap. Karólína Helga Símonardóttir, stjórnarformaður Sorgarmiðstöðarinnar kom í viðtal hjá Mannlífi fyrir skemmstu þar sem hún sagði frá sinni sögu og hvað...
InnlentKörfuboltakonan lýsir heimsókn eftir tapleik gegn Keflavík: „Little black nigger bitch“ Árið 2017 tapaði kvennalið Skallagríms í körfuknattleik nokkuð stórt í fimmta leik í úrslitakeppninni gegn Keflavík. Eftir leikinn fékk lykilleikmaður Skallagríms heimsókn frá Ámunda Sigurðssyni, fyrrverandi lögreglumanni, sem þá var formaður meistaraflokksráðs kvenna. Með honum í för var Ásmundur Einar Daðason, ráðherra, sem þá var formaður kvennaráðs Skallagríms. Heimsóknin var engin kurteisisheimsókn en þar var hún sökuð um að hafa...
InnlentUmfangsmesta dýravelferðarmál Íslands – „Engar upplýsingar um hvort bóndinn er kominn til starfa“ Eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál sem komið hefur upp hér á landi, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi. Þetta staðfesti Jón Sigurður Ólason, lögreglustjóri á Vesturlandi, í samskiptum við blaðamann Mannlífs í dag. „Það er í rannsókn og verið að afla gagna.“ Líkt og Mannlíf greindi frá fyrr á árinu, kærði Matvælastofnun málið til lögreglu í febrúar síðastliðnum,...
InnlentStjórnvöld hafna inngripi vegna hækkana – „Verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur“ Verð á bensíni er víða komið yfir 350 kr. á lítrinn í kjölfar gegndarlausra hækkana síðastliðna mánuði. Í samtali við Mannlíf segir Runólfur Ólafsson, formaður FÍB: „Við höfum aldrei séð svona verð áður, þess vegna erum við að sjá þessi viðbrögð hjá stjórnvöldum í nágrannalöndunum. Það er verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur.“ Í mars síðastliðnum þrýsti...
InnlentSæunn er afar ósátt við Seðlabanka Íslands: „Fyrstu kaupendur eru ekki vandamálið“ Sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að lækka veðsetningarhlutfall á fyrstu kaupendur á fasteignamarkaði úr 90% í 85% hefur sætt mikillar gagnrýni í samfélaginu, sem má sjá á samfélagsmiðlum sem og í pistlagreinum blaðanna. Sæunn I. Marínósdóttir viðskiptafræðingur bjó til þráð á Twitter-reikningi sínum þar sem hún gagnrýnir Seðlabankann harðlega. Segir hún hvorki fyrstu kaupendur né verðtrygginguna vera vandmálið. Sæunn gaf Mannlífi...
InnlentSvona skaltu klæða þig fyrir 17. júní þetta árið Sumarblíðan verður á Egilsstöðum í dag en búist er við sextán stiga hita og heiðskíru veðri. Á höfuðborgarvæðinu verður heldur þungbúið framan af degi en styttir upp seinnipartinn. Á morgun, 17. júní, er búist við hinu klassíska „17. júní-veðri.“ Ef marka má spá Veðurstofu Íslands er regngalli ef til vill vænlegasti kosturinn. „Á föstudag (lýðveldisdagurinn): Norðaustan 5-10 m/s og rigning,...
InnlentTekjulaust fyrirtæki hagnaðist skyndilega um tæpar 130 milljónir í fyrra Arctic Therapeutics ehf., sem rekur hraðprófunina covidtest.is, velti alls 399,7 milljónum króna í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins var 127,2 milljónir króna en félagið hafði í fyrsta sinn tekjur á því ári. Eigendur félagsins eru Hákon Hákonarson, David H. Moskiwitz og Philip Harper en þeir síðarnefndu eru báðir Bandaríkjamenn. Íslenska ríkið greiddi Arctic Therapeutics fjögur þúsund krónur fyrir hvert hraðpróf fyrir einstaklinga...
InnlentKona lagði á flótta eftir að brjóta glas á höfði manns – Saumuð saman og læst inni Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás seint í gærkvöldi. Kona hafði brotið glas á höfði manns inni á veitingastað og flúði af vettvangi. Lögregla fann konuna stuttu síðar á öðru veitingahúsi en var hún flutt á bráðadeild vegna sára á fingrum. Þegar hafði verið gert að sárum hennar var hún látin gista fangaklefa. Keyrt var á tvær fimmtán ára stúlkur á...
InnlentHollywood-stjarna tapaði skák fyrir þernu á Keflavíkuflugvelli – „Hann lét rútuna bara bíða.“ „Það var snjófjúk úti á Park Lane þegar ég vaknaði snemma síðasta daginn minn í London við hófaslátt er lífverðir drottningarinnar voru á leið heim í herbúðimar í morgunrofanum. Ég mætti á réttum tíma út á Heathrow en flugvélinni minni seinkaði um klukkustund. Síðan bilaði einn hreyfill hennar yfir Skotlandi og loks lentum við á Íslandi í heimskautsnóttinni. Ég sat...