Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Körfuboltakonan lýsir heimsókn eftir tapleik gegn Keflavík: „Little black nigger bitch“

Tavelyn James (þá Tillman)
Tavelyn James (þá Tillman)

Árið 2017 tapaði kvennalið Skallagríms í körfu­knattleik nokkuð stórt í fimmta leik í úrslita­keppninni gegn Keflavík. Eftir leikinn fékk lykil­leikmaður Skallagríms heimsókn frá Ámunda Sigurðs­syni, fyrr­verandi lögreglu­manni, sem þá var formaður meistara­flokksráðs kvenna. Með honum í för var Ásmundur Einar Daðason, ráðherra, sem þá var formaður kvenna­ráðs Skallagríms. Heim­sóknin var engin kurteisis­heimsókn en þar var hún sökuð um að hafa viljandi tapað leiknum fyrir Skallagrími með lélegum leik.

Tavelyn Tillman (nú James) er bandarísk körfu­knattleiks­kona sem lék meðal annars í landsliði Banda­ríkjanna og í WNBA deildinni. Lék hún með Skallagrími á tíma­bilinu 2016-2017 en hún var með betri leik­mönnum deildarinnar með 24,4 stig að meðaltali í leik og þar með fjórða stiga­hæsti leikmaður deildarinnar, það tímabil. Þrátt fyrir gott tímabil lagði hún körfubolta­skóna á hilluna og flutti aftur til Banda­ríkjanna eftir tímabilið.

Í samtali við Mannlíf lýsir Tavelyn heim­sókninni sem hafði mikil áhrifa á hana.

„Ég var svo sjokkeruð að þeir tveir skyldu koma heim til mín,“ sagði hún og hélt áfram. „Þeir sökuðu mig um að hafa viljandi skotið illa svo liðið myndi tapa fimmta leiknum gegn Keflavík. Ámundi kallaði mig „a little black nigger bitch“. Ég reyndi að taka heim­sóknina upp á ipadinum mínum en hann sló hann úr höndunum á mér. Þeir sögðust hafa heyrt mig tala í síma fyrir leik þar sem ég á að hafa sagst ætla að tapa leiknum svo ég kæmist heim um páskana.“

Aðspurð hvort Ásmundur Einar hefði verið dónalegur við hana líka neitaði hún því. „Hann var reyndar sá rólegi. Hann kom almennt ekki illa fram við mig, að minnsta kosti ekki þannig að ég tæki eftir því.“

Blaða­maður Mannlífs spurði Tavelyn hvort hún hefði verið látin hætta hjá Skallagrími en því neitaði hún. „Tímabilið var búið eftir leikinn og ég hefði ekki viljað halda áfram hvort sem er.“

Tavelyn hætti í körfu­bolta eftir þetta tímabil með Skallagrími. Hún var þá orðin 32 ára en átti enn mikið eftir á tankinum enda með 24,4 stig að meðaltali í leik með Skallagrími, auk þess sem hún tók 5,9 fráköst og sendi 3,9 stoð­sendingar.

Aðspurð hvort hún hefði hætt vegna aldurs eða vegna heim­sóknarinnar svaraði hún: „Bæði vegna aldursins og þessa atviks ef ég á að vera hrein­skilin. Maður veit, þegar maður gefur svo mikið af sér fyrir liðið og gerir sitt allra besta en ert svo sakaður um óheilindi og síðan kallaður negri, er bara komið nóg.“

Mannlíf hringdi í Ámunda Sigurðsson og bar þessa frásögn undir hann en hann neitaði harðlega.

„Það getur bara ekki verið því hún fór bara beint til útlanda eftir þann leik, hvaða kjaftæði er þetta? Það er bara kjaftæði. Þetta er vinkona mín,“ svaraði Ámundi.

Er Mannlíf bar undir hann hvort hann hefði kallað Tavelyn „little black nigger bitch“ neitaði Ámundi: „Ég get ekki einu sinni borið það fram svo er nú hæpið að ég hafi kallað hana það.“

Ekki náðist í Ásmund Einar Daðason við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá