Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sæunn er afar ósátt við Seðlabanka Íslands: „Fyrstu kaupendur eru ekki vandamálið“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Sú ákvörðun Seðla­banka Íslands að lækka veðsetningar­hlutfall á fyrstu kaupendur á fasteigna­markaði úr 90% í 85% hefur sætt mikillar gagnrýni í samfélaginu, sem má sjá á samfélags­miðlum sem og í pistla­greinum blaðanna. Sæunn I. Marínós­dóttir viðskipta­fræðingur bjó til þráð á Twitter-reikningi sínum þar sem hún gagnrýnir Seðla­bankann harðlega.

Segir hún hvorki fyrstu kaupendur né verð­trygginguna vera vandmálið. Sæunn gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta þráðinn í heild sinni. Þráðurinn byrjar á eftir­farandi orðum:

„Ég er viðskipta­fræðingur af fjármála­sviði, löggiltur verðbréfa­miðlari, master í alþjóða­viðskiptum. Skrifaði BS ritgerð um verð­tryggingu íbúðalána, hand­reiknað greiðslu­flæði ýmiss konar lána. Þori að fullyrða að FYRSTU KAUPENDUR ERU EKKI VANDAMÁLIÐ OG EKKI VERÐTRYGGINGIN HELDUR.“

Sæunn hélt svo áfram:

„Eigna­myndun einstaklinga í fasteignum er miklu tengdari hækkun markaðs­verðs en niður­greiðslu höfuðstóls. Við borgum flest leigu eða lána­afborganir af heimilum okkar. Það ætti að vera sjálfsagt að fá að borga minna af eigin húsnæði (lán) en meira af fasteign annarra (leiga). Það að hindra innkomu fólks á fasteigna­markað og festa það endanlega í klóm leigu­markaðarins veldur enn meiri neyð og fátækt. Seðla­bankinn er að viðhalda og auka stétta­skiptingu í þessu landi í stað þess að slá á putta hinna ríku sem græða á breytingunum.“

En hvaða lausn er Sæunn þá með fyrir landann? Hún nefnir í þræðinum fjórar leiðir sem hægt væri að fara:

„Hvað með að: 1) skatt­leggja rækilega hagnaðar­drifna útleigu íbúðar­húsnæðis, 2) skatt­leggja íbúðaeign einstaklinga umfram eina, 3) liðka verulega fyrir byggingu smáíbúða non-profit félaga, 4) taka greiðslu­sögu leigjenda gilda sem sönnun á greiðslu­getu afborgana…“

Bætir hún svo við dæmum um fólk sem staðið hefur í skilum á 250 þúsund króna leigu­greiðslum í mörg ár.

„Ef man núvirðir allar framtíðar afborganir húsnæðis­láns kemur í ljós að það skiptir litlu máli hvernig lán er tekið, heildar­endur­greiðslan er svipuð. Bankinn fær þá ávöxtun sem hann ætlar, sama hvernig lánið er strúktúrað. Þetta veit seðla­bankastjóri þó hann haldi öðru fram.

Ímyndum okkur fólk sem hefur staðið skil á 250þ leigu­greiðslum í mörg ár. Í gær fengu þau greiðslumat upp á 115þ kr afborgun á mánuði, mánaðarleg byrði lækkar um 135þ. Í dag þurfa þau að standast mat upp á 180.000 kr til að vernda hagkerfið og fá því ekki lán. Make it make sense. Verð­bólgan er að sjálfsögðu reiknuð inn í óverðtryggðu lánin með hærri vöxtum. „The house always wins“. Það að fólk megi ekki lengur taka verð­tryggt lán með lægri afborgun án þess að standast greiðslumat fyrir allt aðrar og hærri forsendur er bilun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá