Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Bændasamtökin ósátt við að fella niður tolla á vörum frá Úkraínu: „Neikvæð áhrif á íslenskar vörur“

Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. Samsett mynd
Vigdís Häsler fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna. Samsett mynd

Stjórnar­frum­varp um niður­fellingu tolla á vörur sem upp­runnar eru í Úkraínu var sam­þykkt á Al­þingi í gær. Í um­sögnum um frum­varpið var að finna um­sögn frá Bænda­sam­tökum Ís­lands.

„Í ljósi erfiðrar stöðu í ís­lenskum land­búnaði sökum gríðar­legra hækkana á að­föngum hafa sam­tökin eðli­lega á­hyggjur af því hvaða á­hrif inn­flutningurinn kann að hafa á fé­lags­menn.“

Þar segjast sam­tökin meta það svo að lausn á vanda Úkraínu sé falin í því að bundinn verði endir á stríðs­á­tökin sem þar geisa. Karen Kjartans­dóttir, al­manna­tengill benti á umsögnina á twitter síðu sinni.

Karen segir, að henni hafi ekki fundist greining Bænda­samtakanna,  á vanda Úkraínu hafa fengið næga athygli. Greiningin sem birtist, að hennar sögn, óvænt í umsögn samtak­anna við frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fjallar um að fella niður tolla af vörum frá Úkra­ínu.

„Þá er það af­staða Bænda­sam­taka Ís­landa að lausn á vanda Úkraínu felist í því að bundinn verði endir á stríðs­á­tökin sem þar geisa. Ís­land eigi því að beita sér á al­þjóða­vett­vangi fyrir því að gert verði vopna­hlé eða með öðrum hætti bundinn endi á stríðs­á­tökin,“ segir í um­sögn Bænda­sam­takanna.

Sam­tökin segjast vera til­búin að koma að málinu og hjálpa til við að enda stríðið:

„Verði þess óskað eru full­trúar sam­takanna reiðu­búnir til frekari að­komu að máli þessu til frekari um­ræðu og skoðana­skipta.“

Bænda­sam­tökin taka undir varnar­orðin í greinar­gerð frum­varpsins um að ef það verði sam­þykkt, líkt og gerðist, þá geti það leitt til þess að fluttar yrðu til Ís­lands land­búnaðar­vörur frá Úkraínu í meira mæli en nú. Samkvæmt samtökunum gæti það haft nei­kvæð á­hrif á verð og fram­boð ís­lenskra land­búnaðar­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá