Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hollywood-stjarna tapaði skák fyrir þernu á Keflavíkuflugvelli – „Hann lét rútuna bara bíða.“

Charlton Heston
Charlton Heston

„Það var snjófjúk úti á Park Lane þegar ég vaknaði snemma síðasta daginn minn í London við hófaslátt er lífverðir drottningarinnar voru á leið heim í herbúðimar í morgun­rofanum. Ég mætti á réttum tíma út á Heathrow en flug­vélinni minni seinkaði um klukku­stund. Síðan bilaði einn hreyfill hennar yfir Skotlandi og loks lentum við á Íslandi í heimskauts­nóttinni. Ég sat í heldrimannastofunni í kaldri flug­stöðinni þar til gert hafði verið við vélina. Á meðan tefldi ég skák við glæsilega íslenska þernu sem var allt of góð fyrir mig (þ.e. í skák),“ skrifaði Charlton Heston, leikari, í ævisögu sinni In The Arena.

Bruce Dern og Charlton Heston árið 1969

Margir muna eflaust eftir leik­aranum sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í kvik­myndunum Ben-Hur, El Cid og The ten commandments, en var hann tilnefndur til Golden globe verðlauna fyrir hlutverk sitt í þeirri síðustu. Ævisaga Charlton var gefin út árið 1995 og var þar sutt frásögn leikarans um heimsókn hans til Íslands. Frásögnin vakti athygli og reyndi DV að hafa uppi á þernunni, sem tókst þó ekki. Þrátt fyrir það fannst viðtal við Charlton frá árinu 1968, sem tekið var á Hótel Sögu, þar sem hann var gestur á meðan dvölinni stóð. Jón Birgir Pétursson, þáverandi frétta­stjóri Vísis, tók viðtalið við stór­leikarann og sagði í samtali við DV að hann hafi munað vel eftir deginum.

Charlton með fjöl­skyldu sinni

„Ég man að þetta var á laugar­degi og ég fór eldsnemma á sunnudags­morgninum með Braga Guðmunds­syni, sem þá var ljós­myndari, á Hótel Sögu. Við fórum upp í Grill og þar sat Charlton Heston með áhöfninni af þotunni,“ sagði Jón Birgir og bætti við að þrátt fyrir að leikarinn hafi verið að undirbúa sig undir heim­ferðina, hafi hann samt tekið viðtalinu vel og gefið sér tíma. „Við töluðum saman í lobbíinu og farþegarnir voru komnir út í rútu en það var greini­lega enginn asi á honum. Hann lét rútuna bara bíða.“

Jón sagði það greinilegt að Charlton vissi sitt hvað um land og þjóð og spurði hann leikarann því hvers vegna íslendinga­sögurnar væru ekki gerðar að kvik­myndum. Sagðist hann oft hafa velt því fyrir sér og haft þá Leif heppna í huga. „Mynd um hann(Leif heppna) gæti orðið stór­brotið verk en mjög erfitt að vinna það og dýrt,“ sagði stór­stjarnan á Íslandi en Jón Birgir lýsti kappanum sem kátum, bráð­hressum og alþýðu­legum.

Heimildir: Tímarit.is – DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá