Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Stjórnvöld hafna inngripi vegna hækkana – „Verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur“

Mynd/Envato Elements
Mynd/Envato Elements Mynd: Steve Allen Photography

Verð á bensíni er víða komið yfir 350 kr. á lítrinn í kjölfar gegndar­lausra hækkana síðastliðna mánuði. Í samtali við Mannlíf segir Runólfur Ólafsson, formaður FÍB: „Við höfum aldrei séð svona verð áður, þess vegna erum við að sjá þessi viðbrögð hjá stjórn­völdum í nágranna­löndunum. Það er verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur.“

Í mars síðastliðnum þrýsti Félag íslenskra bifreiða­eiganda á stjórn­völd að bregðast við með skattaívilnunum eða styrkjum. Aðspurður segir Runólfur um svar stjórn­valda: „Þau hafa í raun hafnað, fram að þessu, inngripi sem lýtur að því að lækka skatta á eldsneyti – til þess að lina þessar miklu hækkanir sem eru að lenda á neytendum og fyrir­tækjum.“

Sjá einnig: Írar og Svíar lækka skatta á eldsneyti – Hækkun á bensín­verði kostar Selfyssinginn 50 þúsund krónur

Vona enn að ríkið stígi inn

Í flestum nágranna­löndum okkar hafa stjórn­völd stigið inn og gripið til aðgerða til að sporna við því að frekari hækkanir lendi beint á neytendum – hvort heldur beinum eða óbeinum. „Þróunin virðist vera, því miður, áfram í sömu átt þ.e.a.s. allt er að hækka – en við bindum vonir við að einhvern tíma komi að því að þau [stjórn­völd innsk. blm.] grípi til aðgerða. Við sjáum allt í kringum okkur, í nágranna­ríkjunum, að stjórn­völd hafa verið að grípa til ráðstafana; að lækka skatta í flestum tilvikum, og svo líka til hliðar­ráðstafana eins og auka skatta­frádrátt til þeirra sem hafa um lengri veg að sækja vinnu eða þjónustu – en svo höfum við líka séð aðgerðir sem lúta að því að gera allan aðgang og kostnað við almennings­samgöngur mun minni en áður. Þannig að það er verið að gera ýmislegt – en svolítið bara setið hjá af íslenskum stjórn­völdum,“ segir Runólfur.

Sjá einnig: Bensín­verð lækkar í Þýska­landi – Runólfur hjá FÍB: „Hér heyrist ekkert“

Bitnar mest á þeim sem minna eiga

Aðspurður hvernig hljóðið sé í bifreiða­eigendum, segir Runólfur: „Við heyrum að fólk hefur miklar áhyggjur af þessari stöðu, enda kemur þetta langverst niður á þeim sem hafa minna aflögu.“

Eins og vel er kunnugt hafa margir flúið hátt leigu- og fasteigna­verð höfuð­borgarinnar og flutt í nágranna­sveitar­félög, t.d. Akranes, Reykja­nesbæ og Hvera­gerði. Runólfur bætir við: „Við höfum fengið nokkur símtöl frá fólki sem hálft í hvoru neyddist til að flytja frá höfuð­borgar­svæðinu til nágranna­sveitar­félaga, […] og er nú að lenda í því að nú er orðinn ansi mikill auka kostnaður við að keyra til vinnu. Það eru ekkert alltaf einhverjir valkostir, eins og almennings­samgöngur, svo skiljanlega hefur fólk miklar áhyggjur af ástandinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá