Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Brugghúsdagurinn – sala áfengis heimiluð frá framleiðslustað: „Breytingar í takt við nýja tíma“

„Það er stundum sagt að dropinn holi steininn og ég held að það eigi alveg sérstak­lega við í þessu máli. Hér eru tímamót í þessum málum og ég vil fagna því alveg sérstak­lega hvað það er mikil samstaða um þessar breytingar í þinginu,“ segir Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra, við atkvæða­greiðsluna.

Brugghúsdagurinn

Bruggarar eru himin­lifandi með áfangann en vona að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að frjálsum áfengis­markaði á Íslandi.

Bjór og annað á­fengi hefur aldrei mátt kaupa neins staðar á Ís­landi nema í ríkinu. Það er að segja ef menn vilja taka það með sér heim og njóta þess þar.

Næstu mánaða­mót verður breyting á þessu en með lögum sem Al­þingi sam­þykkti í gær­kvöldi verður sala á­fengis heimil frá fram­leiðslu­stað; öllum brugg­húsum sem fram­leiða minna en 500 þúsund lítra á ári. Það gildir um öll smærri brugg­hús landsins nema Kalda eins og staðan er í dag.

Hildur Sverris­dóttir þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði loksins loksins, opnast glufa í þá átt að afnema einokun ÁTVR. Hildur vill kalla daginn brugghús­daginn.

„Ég ætla að leyfa mér að segja að ég held að af þessu tilefni ættum við að ákveða að fimmtándi júní eða jafnvel sextándi júní eftir atvikum, verði haldinn hátíð­legur eins og við höfum haldið uppá bjór­daginn frá 1. mars 1988 og kalla hann brugghús­daginn, sagði Hildur Sverris­dóttir á Alþingi í kvöld.

Innleiða breytingar í takt við nýja tíma

Jón sagði að samþykkt frum­varpsins markaði tímamót. Frumvarp dómsmála­ráðherra um að heimila sölu áfengis á framleiðslu­stað, var samþykkt sem lög frá Alþingi í kvöld með 54 samhljóða atkvæðum. Frum­varpið öðlast gildi 1. júlí næst­komandi.

Jón sagði ljóst að löngu tímabært væri að endur­skoða núgildandi löggjöf og innleiða breytingar.

„Þær breytingar sem orðið hafa í okkar samfélagi og í kringum okkur gera kröfu til þingsins um að axla þá ábyrgð að innleiða hér breytingar í takt við nýja tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá