Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skuggaskýrsla um mismunum gagnvart konum: Fulltrúar íslenska ríkisins munu sitja fyrir svörum

Kven­réttinda­félag Íslands, Mann­réttinda­skrifstofa Íslands, Öfgar, UN Women á Íslandi og Öryrkja­bandalag Íslands hafa skilað inn sameiginlegri skugga­skýrslu til nefndar sem starfar á grund­velli samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum (Kvenna­sáttmálans).

Nefndin undirbýr nú fund þar sem fulltrúar íslenska ríkisins munu sitja fyrir svörum um framkvæmd Kvenna­sáttmálans.

Útrýma mismunun

Framkvæmd Íslands á Kvenna­sáttmálanum verður tekin fyrir á fundi nefndarinnar í Genf í febrúar 2023. Þá býðst frjálsum félaga­samtökum að skila inn svokallaðri „skugga­skýrslu,“ þar sem bent er á hvað betur má fara í starfi ríkisins til að útrýma mismunun gagnvart konum.

Hægt er að lesa nýjustu skýrslu íslenska ríkisins hér.

Undirritaður en ekki innleiddur

Ísland undir­ritaði Kvenna­sáttmálann (e. CEDAW: Convention on the Elimination of All Forms of Discrimination Against Women) á kvenna­ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmanna­höfn 1980, en hann var full­giltur af Alþingi 1985 eftir mikinn þrýsting frá kvenna­samtökum. Samningurinn hefur þó ekki enn verið innleiddur í íslensk lög. Í dag eru 189 ríki aðilar að sátt­málanum.

Kvenna­sáttmálinn inni­heldur 30 ákvæði og inngangsorð, sem eru grunn­reglur um jafnrétti og áætlanir ríkja til að koma í veg fyrir mismunun gegn konum. Reglulega eru aðildar­ríki að sátt­málanum kölluð á fund nefndarinnar sem hefur eftirlit með því að aðgerðir þeirra, áætlanir eða laga­setningar samræmist Kvenna­sáttmálanum. Fyrir þessa athugun skila ríki inn formlegri skýrslu um framkvæmd á ákvæðum samningsins.

Undirfjármagnaður málaflokkur

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að:

  • Hækka þarf fjármagn fæðingar­orlofssjóðs. Síðan fjármagn til sjóðins var lækkað hefur hlutfall feðra sem taka fæðingar­orlof einnig lækkað.
  • Samtökin hvetja stjórn­völd til þess að gera kynja­fræði að skyldu­fagi á öllum stigum skóla­kerfisins.
  • Samtökin lýsa yfir áhyggjum yfir því að skortur á fjármagni kemur í veg fyrir að stjórn­völd geti sinnt skyldum sínum í jafnréttis­málum. Má þar nefna að jafnréttis­stofa hefur verið undir­fjármögnuð til fjölda ára.
  • Samtökin lýsa einnig yfir áhyggjum þegar kemur að réttar­kerfinu á Íslandi vegna lágs hlutfalls sakfellinga, hvernig gerendur geta beitt réttar­kerfinu gegn þolendum sínum, langs máls­meðferðar­tíma, vægra refsinga og fyrningar­frests á kynferðis­brotum.
  • Samtökin hvetja stjórn­völd til þess að innleiða Kvenna­sáttmálann í íslensk lög.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá