Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Íslenskur karlmaður í 8 ára fangelsi á Spáni – Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum

Ómar Traustason.
Ómar Trausta­son.

Ómar Traustason, var dæmdur í átta og hálfs árs skilorðs­bundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðis­lega á að minnsta kosti sex börnum í borginni Cartagena á Spáni.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið á átta börnum, en hann viðurkenndi brot gegn sex þeirra. Brotin fela meðal annars í sér óviðeigandi kynferðis­lega hegðun, tilraunir til kynferðis­brota og að hafa sýnt börnum kynferðislegt myndefni.

Frá þessu er greint í spænska vefmiðlinum Murcia Today, en DV greindi fyrst frá hér á landi. Ómar var hand­tekinn í fyrravor og brotin áttu sér stað í fyrra og hitteðfyrra. Ómar gekk undir nafninu El Ingles eða Sá enski í heimabæ sínum, San Cayatano í héraðinu Torre Pachero í suðaustur­hluta Spánar og ávann sér traust barnanna meðal annars með því að leyfa þeim að leika við hund sinn.

Bauð börnunum heim og króaði þau þar af braut á þeim

Í frétt spænska blaðsins segir að hann hafi boðið börnum heim til sín, króað þau þar af og brotið þar á þeim.

Árið 2013 dæmdi Héraðs­dómur Reykjaness Ómar til þriggja ára fangelsis­vistar fyrir kynferðis­brot gegn unglings­pilti. Þá var hann dæmdur árið 1993 fyrir kynferðis­brot gegn fjórum 9-12 ára piltum.

Sendi þeim kynferðislegar myndir

Þá bauð hann börnum fé, allt að 100 evrur, fyrir kynlíf. Hann hafði samskipti við nokkur barnanna í gegnum samskipta­forritið WhatsApp og sendi þeim þar kynferðislegar myndir.

Dóms­úrskurðurinn er skilyrtur því að Ómar brjóti ekki af sér eða hafi samskipti við börnin sem hann var dæmdur fyrir að brjóta á. Þá er honum gert að inna af hendi samfélags­þjónustu.

Utan­ríkis­ráðuneytinu er kunnugt um málið, samkvæmt talsmanni þess. Hann segir að ekki hafi verið leitað liðsinnis ráðuneytisins vegna þessa máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá