Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags SÞ: „Ég vil setja mitt mark á veröldina“

Vala Karen (t.h.) og Elisabeth Haslund hjá flóttamannastofnun SÞ með heimsmarkmiðin í bakgrunni.
Vala Karen (t.h.) og Elisa­beth Haslund hjá flótta­manna­stofnun SÞ með heims­mark­miðin í bak­grunni.

„Ég var í nokkur ár hjá UNICEF á Íslandi og var svo heppin að ég fékk að prófa mörg ólík verkefni. Ég vann bæði í síma- og þjónustu­veri og naut þess að tala við alls konar fólk. Svo sá ég um neyðar­safnanir og Sannar gjafir og fékk þá heilmikla innsýn í vefsíðu­vinnu, bakenda og skýrslu­gjöf. Með Sönnum gjöfum UNICEF fékk ég að vera skapandi í herferðar­pælingum fyrir mismun­andi tilefni, svo sem afmæli, jól, páska og bollu­daginn. Einnig tók ég svo að mér rekstur síma­versins, þar sem þá voru 14 manns, en mér þótti frábært að vinna með ungu, efnilegu fólki með áhuga á mannúðar­starfi, en það var virkilega skemmtilegt og fjöl­breytt,“ segir Vala Karen Viðars­dóttir, framkvæmda­stjóri Félags Sameinuðu þjóðanna.

Þau heyrðu af Íslend­ingnum með sér­fræði­þekk­ingu í fjár­öflun í gegnum Genf.

„Maðurinn minn fékk svo óvænta stöðu hjá Marel í Slóvakíu svo að við ákváðum að taka stökkið og flytja. Það var samt erfitt að því leytinu til, að ég var virkilega ánægð í vinnunni. Það höfðu orðið miklar breytingar hjá lands­nefnd UNICEF í Slóvakíu og þau heyrðu af Íslend­ingnum með sérfræði­þekkingu í fjáröflun í gegnum Genf og ég fékk fljótlega hlutverk í Bratislava. Það var alls ekki planið upphaf­lega. Ég var orðin ófrísk á þessum tíma, en vildi alls ekki missa af þessu góða tækifæri svo ég tók að mér stöðu sem verkefna­stjóri í fjáröflun og kynningum. Fjáröflunar­umhverfið er þó allt öðruvísi á þessum slóðum svo það var talsverður lærdómur. Ég vann þar til ég var gengin 34 vikur á leið, en almennt er ekki mælt með að konur vinni lengur en það á meðgöngu þar ytra. Við vorum úti í þrjú ár og ég naut þess að búa þar og sérstak­lega að geta verið heima fyrstu tvö árin með yngstu dótturina.

Fjöl­skyldan í Brat­islava 2020.

Á þriðja árinu okkar úti var ég farin að líta pínu í kringum mig svo sem varðandi hver yrðu mín næstu skref. Mér bauðst svo að ganga inn í framkvæmda­nefnd Women Power, en ég heillaðist alveg af hugsjóninni og vinnu samtak­anna og áherslu á að vinna í gras­rótinni. Hún Anna Elísabet, stofnandi samtak­anna, er algjör kjarna­kona, en hún stofnaði leikskóla fyrir börn í þorpinu Bashay í Tansaníu. Samhliða því hefur hún svo í samstarfi við konur í þorpinu hlustað á þarfir þeirra og þannig urðu samtökin til, en þau snúa að vald­eflingu kvenna og forsenda þess er að þær geti elt drauma sína er að börnin séu með örugga dagvistun. Stofnaður var lána­sjóður þar sem konur geta sótt um framkvæmdalán og hefur hann orðið til þess að konur hafa farið í margs konar rekstur meðal annars að rækta svín og korn og opna hárgreiðslu­stofu. Aukin tækifæri fyrir konur ýta undir jafnrétti og það skilar sér svo sannarlega til samfélagsins. Næst á dagskrá er að setja á laggirnar frumkvöðla­námskeið og þjálfun fyrir konur og svo vonandi kvenna­ferð sem hefur verið á döfinni í nokkurn tíma. Það er fallegt samvinnu­verkefni þar sem íslenskar konur í atvinnu­lífinu fá tækifæri til þess að deila sérfræði­þekkingu sinni með konum í Tansaníu og öfugt.“

Fræðsla og menntun er lyk­ill­inn út úr fátæk.

Hver er markmiðið og draumurinn varðandi þetta?

„Það má segja að það sé bara að opna á samtalið og brúa bilið milli samfélaga og skapa þannig tengingar milli fólks í alþjóða­samhenginu. Fræðsla og menntun er lykillinn út úr fátækt og ég vil setja mitt mark á veröldina og skapa pláss fyrir alla. Draumurinn er að einn daginn verði lífið á jörðinni okkar orðið sann­gjarnara fyrir alla og sjálf­bærara. Að mannkynið geti lifað í sátt og samlyndi við umhverfið og hvert annað,“ segir Vala Karen sem er mann­fræðingur að mennt. „Ég endaði í mann­fræðinni eftir að hafa prófað bæði lögfræði og hjúkrunar­fræði, enda sá ég mig alltaf vinna með fólki eða fyrir fólk. Í mann­fræðinni lærir maður svo ótrúlega margt, bæði samskipti og hegðun mannsins í tímans rás og ólíkum samfélögum í hnattrænu samhengi. Mann­fræðin kennir manni að sjá hluti út frá ólíkum sjónar­hornum og sérstak­lega sjónar­horni annarra. Ég tel að ég muni alla tíð búa að þeim grunni sem mann­fræðin gaf mér.“

Sinna fræðslu

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var stofnað árið 1948, stuttu eftir stofnun Sameinuðu þjóðanna. Fyrsti forseti þess var Ásgeir Ásgeirsson svo að það á sér langa sögu, enda gamalt og rótgróið félag sem var stofnað af áhuga­sömum aðilum um SÞ og skref Íslands í þátttöku á alþjóða­vettvangi. „Markmiðin hafa eflaust breyst í gegnum tíðina, en það má segja að það sé enn rekið af áhuga og ástríðu á alþjóð­legum málefnum. Mér finnst gott að líta á félagið sem eins konar brú milli almennings og stjórn­valda í tengslum við stofnanir SÞ, alþjóða- og þróunar­samvinnu Íslands og heims­markmiðin. Við sinnum fræðslu í skólum, fyrir almenning, fyrirtæki og samtök um öll þessi málefni sem falla þar undir.“

Ég er opin í sam­skiptum og elska hrein­lega að vinna með fólki.

Vala Karen hefur gegnt starfi framkvæmda­stjóra félagsins í tæpt ár. „Ég fékk tíma­bundna ráðningu þar sem forveri minn fór í ársleyfi. Það hefur verið mikill lærdómur fólginn í vinnu minni síðastliðið ár og ég er bæði þakklát og stolt af að stjórn félagsins hafi séð hvað ég hef fram að færa og boðið mér áfram­haldandi starf. Ég tel að ég hafi mikla orku og kraft til þess að keyra félagið inn í breytta tíma. Ég er opin í samskiptum og elska hreinlega að vinna með fólki og brenn fyrir alþjóða­málum, sem er gott þar sem ég fæ að hitta fólk úr öllum áttum og vinna að málefnum sem virkilega skipta mig máli. Ég hef alltaf haft áhuga á málefnum sem snúa að heims­samfélaginu, en það var í starfi mínu hjá UNICEF á Íslandi sem ég raun­verulega fann fyrst að ég væri á réttum stað.“

Í vinnu­ferð fyrir utan Félag SÞ í Danmörku ásamt nor­rænum sam­starfs­fé­lögum.

Mikil áhrif líkamlega og andlega

Vala Karen er frá Ísafirði og segir hún að það hafi mótað hana mikið að vera frá litlu bæjar­félagi; hún nefnir umhverfið í kringum Ísafjörð og nálægðina við fjöruna og fjöllin. Hún talar líka um frelsið.

„Foreldrar mínir fluttu þangað áður en ég fæddist, en þau eru frá Siglu­firði og Ólafs­firði. Ég ólst því upp langt frá nánustu ættingjum og hitti ömmur og afa sjaldan. Ég lærði því snemma að meta þessar fáu stundir og það var gott veganesti, sérstak­lega þegar við fluttum til Slóvakíu. Þó svo að ég hafi ekki í huga að búa aftur úti á landi þá fylgir þessi lífs­reynsla manni alltaf og mér þykir vænt um uppeldið mitt í samfélaginu fyrir vestan og elska að heimsækja heima­hagana, en foreldrar mínir búa þar enn.“

En að ganga með þau hefur alltaf haft mikil áhrif á mig lík­am­lega og and­lega.

Framkvæmda­stjórinn er gift, þriggja barna móðir. „Eitt af því erfiðasta sem ég hef gert var að ganga í gegnum meðgöngu. Ég er svo heppin að eiga þrjú börn og að fæða þau var ekkert mál, en að ganga með þau hefur alltaf haft mikil áhrif á mig líkamlega og andlega.“

Hvað með áhugamál konunnar sem alþjóða­málin kalla á?

„Mín helstu áhugamál eru ferðalög, hreyfing og að verja tíma með vinum og fjöl­skyldu. Við ferðumst mikið saman, fjöl­skyldan, og leggjum mikið upp úr því að börnin upplifi heiminn með okkur. Einnig erum við öll miklir fjör­kálfar svo að við elskum að hafa eitthvað fyrir stafni og reynum að rækta vina- og fjöl­skyldubönd eins mikið og við getum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá