InnlentHoltavörðuheiði harðlokuð í nótt Hringveginum um Holtavörðuheiði var lokað í nótt vegna óveðurs. Lokunin var vegna mikils vatnsaga að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Röð umferðaróhappa urðu á heiðinni. Reiknað er með að vegurinn verði opnaður í morgunsárið. Gert er ráð fyrir að veður gangi niður um miðjan dag.
InnlentRaðdólgur fór á milli veitingahúsa með uppsteyt – Gangandi vegfarandi ekinn niður Nóttin var með rólegra móti hjá lögreglunni í gær og nótt. Búðarþjófar voru mest áberandi þar sem um afbrot var að ræða. Aðeins tveir eru í fangageymslum og bíða þess að standa fyrir sínum málum þegar skímar að nýjum degi. Miðbæjarlögregla var kölluð til vegna þjófnaðar í tveimur verslunum. Málin voru leyst á vettvangi. Tilkynnt um aðila sem fór inn...
InnlentLætur Guðlaug Þór fá það óþvegið: „Það stelur enginn kyrrstöðu“ Björn Birgisson lætur Guðlaug Þór Þórðarsson hafa það óþvegið og tekur um leið upp hanskann fyrir arftaka hans í orkumálaráðuneytinu. „Staðreyndirnar geta verið óþægilegar þegar litið er um öxl. Guðlaugur Þór var að monta sig af miklum árangri í orkumálum frá árinu 2017 – 2024.Síðasta stórvirkjun sem tekin var í notkun var þeistareykjavirkjun árið 2017 og viðbót við Búrfell 2018.“...
InnlentBárðarbunga rumskar – Óvissustig Almannavarna lýst yfir Óvissustigi Almannavarna vegna aukinnar skjálftavirni í Bárðarbungu hefur nú verið lýst yfir. Var það gert af ríkislögreglustjóra í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi Eystra, Suðurlandi og Austurlandi. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir: „Það að lýsa yfir óvissustigi þýðir að eftirlit er haft með atburðarás sem gæti á síðari stigum leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar...
InnlentSúfistinn lokar eftir 30 ára rekstur: „Nú er komið að leiðarlokum“ Kaffihúsið Súfistinn í Hafnarfirði lokar fyrir fullt og allt föstudaginn 17. janúar. Þar með líkur 30 ára starfsemi kaffihússins. Eigendur Súfistans tilkynntu í gær að rekstri kaffihússins yrði hætt þann 17. janúar en hjónin Birgir Finnbogason og Hrafnhildur Blomsterberg stofnuðu Súfistann árið 1994. Síðustu árin hefur kaffishúsið verið rekið af dætrum hjónanna en Súfistinn hefur verið í sama húsi öll...
InnlentNokkuð margir óttast fuglaflensu Undanfarna mánuði hafa greinst fleiri og fleiri fuglaflensusmit í fuglum hérlendis og þá greindist kettlingur á landinu fyrir stuttu með fuglaflensu og dó hann af völdum hennar. Þá fundust tæplega 20 dauðar gæsir í Vatnsmýri um helgina og talið er líklegt að þær hafi dáið vegna fuglaflensu. MAST hvetur almenning til að snerta ekki dauð dýr sem það finnur en...
InnlentVarar við Grænlandsdraumi Trumps: „Minna grín fyrir okkur Íslendinga en fólk áttar sig á“ Atli Þór Fanndal segir „Grænlandsdraum“ Donalds Trump ekkert gamanmál fyrir Ísland. Í Facebook-færslu sem Atli Þór Fanndal, fyrrum framkvæmdarstjór Íslandsdeildar Transparency, bendir hann á mikilvægi GIUK-hliðsins fyrir Ísland en það er svæðið á milli Grænlands, Íslands og Bretlands, sem gengt hefur gríðarlegu mikilvægri stöðu í varnarmálum Vesturlandanna gagnvart Rússlandi. Varar Atli Þór við því að fólk hlæji að draumi Donald...
InnlentBorgin fær tíu milljónir í styrk til að auka öryggi hinsegin fólks: „Alið á rangfærslum“ Mannréttinda- og lýðræðisskrifastofa borgarinnar, í samvinnu við samtökin Nordic Safe Cities, hefur hlotið styrk úr norræna LGBTI-sjóðnum hjá NIKK sem er samnorræn samstarfsstofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Þetta er í fyrsta sinn sem veittur er styrkur til þessa verkefnis en greint er frá þessu á heimasíðu borgarinnar. Styrkurinn er upp á rúmar 9,7 milljónir króna og er til tveggja...
InnlentVinnuvélar í Tjörninni vekja athygli – Framkvæmdum lýkur í maí Margir Reykvíkingar hafa eflaust litið undrandi á hólminn í Tjörninni fyrstu daga ársins en mátti sjá vinnuvélar vera keyra fram og til baka á ísnum út í hólminn. Framkvæmdirnar sem eiga sér þar stað munu eflaust gleðja marga borgarbúa en þeim er ætlað að bæta varpland fyrir endur og verða bakkavarnir endurnýjaðar. Ákveðið var að nýta frostið til að fjarlægja...
InnlentÍslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum „Þjóðir heims verða að regluvæða vímuefni til þess að ná aftur stjórninni. Vímuefni geta verið varasöm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heimsótt er auðveldara fyrir börn að kaupa ólögleg vímuefni en áfengi og tóbak,“ segir leynilögreglumaðurinn fyrrverandi Neil Woods í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins, en Woods hélt erindi á alþjóðlegri ráðstefnu sem félagið stóð fyrir...
InnlentRagnheiður er látin Ragnheiður Torfadóttir, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík, er látin en hún var 87 ára gömul. Mbl.is greinir frá andláti hennar. Ragnheiður fæddist á Ísafirði árið 1937 en fluttist ung til Reykjavíkur. Foreldrar hennar voru Torfi Hjartarson og Anna Jónsdóttir. Eftir grunnskólagöngu fór hún í MR þar sem hún lauk námi árið 1956. Hún hélt áfram menntaferli sínum í Háskóla Íslands...
InnlentTilkynningum um heimilisofbeldi fækkar á milli ára Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fyrir árið 2024 hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. Á landsvísu fékk lögregla 2.379 tilkynningar um slík mál árið 2024. Er það tæplega tvö prósent aukning samanborið við síðustu þrjú ár á undan. Ef aðeins er litið er til ársins 2023 var þrjú prósent...