InnlentArnar ráðinn landsliðsþjálfari – KSÍ sagt borga 15 milljónir Arnar Gunnlaugsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu en Arnar hefur á undanförnum árum þjálfað Víking með mjög góðum árangri. Arnar var sjálfur landsliðsmaður á sínum yngri árum og spilaði 32 landsleiki fyrir hönd Íslands. Þá var hann atvinnumaður í mörg ár erlendis og spilaði meðal annars í hollensku og ensku úrvalsdeildunum. Fyrstu leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars...
InnlentÞrýst á stjórn og hluthafa Sýnar að reka forstjórann: „Þetta er alveg svakalega alvarlegt“ Óánægðir starfsmenn Sýnar þrýsta á stjórn og hluthafa að bregðast við því sem þeir kalla ófremdarástand í fyrirtækinu. „Þetta er alveg svakalega alvarlegt,“ segir einn heimildarmanna Mannlífs um stöðuna. Hann vill ekki láta nafns síns getið af ótta við að verða refsað. Mikil óánægja er innan fyrirtækisins og hafa lykilmenn úr hópi stjórnenda sagt upp störfum og eru á förum...
InnlentEnginn svaf hjá lögreglunni Glæpamenn höfuðborgarsvæðisins létu lítið fyrir sér fara í nótt og enginn hvílir í fangageymslum lögreglunnar þegar þessi dagur rís. Smáafbrot voru þó til staðar eins og fyrri daginn og stöku búðarþjófur við iðju sína. Lögregla var kölluð til vegna þjófnaðar í tveimur verslunum. Mál búðarþjófanna voru leyst á vettvangi. Ökumaður var stöðvaður í akstri, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis...
InnlentBrottvísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð Búið er að fresta brottvísun Emmu litlu, þriggja ára stúlku frá Venesúela, fram yfir mjaðmaliðhlaupsaðgerðar. Vísir segir frá málinu. Fjölskylda Emmu fékk upprunalega synjun um dvalarleyfi frá kærunefnd útlendingamála í nóvember en þau koma frá Venesúela. Lögmaður fjölskyldunnar, Jón Sigurðsson, sótti þá um leyfi frá Útlendingastofnun svo að fjölskyldan fengi dvalarleyfi á landinu þar til Emma kæmist í bráðnauðsynlega skurðaðgerð....
InnlentBýður sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins: „Mig dreymdi að Ólafur Thors rétti mér epli“ Snorri Ásmundsson hefur ákveðið að bjóða sig fram í formannssæti Sjálfstæðisflokksins. Listamaðurinn Snorri Ásmundsson sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu þar sem hann tilkynnir framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins. Snorri, sem er þekktur fyrir sérstakan húmor sinn og gjörninga, segist hafa dreymt að Ólafur Thors hafi komið til hans og rétt sér epli. Í draumnum var einnig Margaret Thatcher...
InnlentEinbýlishús með einu stærsta DVD-safni landsins sett á sölu – Stytta af frægu illmenni í stofunni Sumir telja eign á DVD-myndum sé furðuleg á tímum Netflix, Disney+ og fleiri streymisveitum en eigendur Helgadalsvegar 10 virðast vera mjög ósammála því fólki ef marka má fasteignaauglýsingu af eignunum. Húsin á lóðinni eru bæði til sölu og er þar að finna eitt stærsta safn DVD-mynda á landinu. Þá er stytta af Darth Maul í stofunni í hinu húsinu en...
InnlentStjórn Solaris fordæmir fyrirhugaða brottvísun á Emmu og skorar á ráðherra að beita sér Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi fordæmir brottvísun á Emmu, þriggja ára stúlku frá Venesúela, sem á að ganga í gegn á morgun. Í yfirlýsingu frá samtökunum er sagt frá Emmu, en hún er þriggja ára stúlka frá Venesúela sem kom til Íslands í leit að alþjóðlegri vernd sumarið 2023 ásamt ungum foreldrum sínum. Skömmu eftir komuna til...
InnlentJóhann Páll ræður annan lögfræðing í vinnu Jóna Þórey Pétursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra samkvæmt tilkynningu frá stjórnarráðinu. „Jóna Þórey er lögmaður og hefur starfað hjá Rétti lögmannsstofu frá árinu 2022 og einkum sinnt málum á sviði umhverfis- og eignaréttar. Hún hefur verið stundakennari í meistaranámi við lagadeild Háskóla Íslands á sviði umhverfisréttar. Þá starfaði Jóna hjá Landsvirkjun sumarið 2021...
InnlentÍ hvaða sæti lendir Ísland á HM í handbolta? Íslenska karlalandsliðið á handbolta hefur leik á HM í handbolta á morgun og hafa væntingarnar oft verið meiri. Í fyrsta leik mætir liðið Grænhöfðaeyjum og mun svo spila við Kúbu og Slóveníu í fyrsta riðli. Fyrir ári síðan lenti liðið í 10. sæti á Evrópumótinu en það voru talsvert meiri væntingar til árangurs þá. En við spyrjum lesendur Mannlífs: Í...
InnlentLögreglan skaut sex manns til bana í verslunarmiðstöð Þórhildar: „Fara um og ræna fólk út á götu“ Fjölmiðlakonan Þórhildur Ólafsdóttir hefur síðan árið 2023 búið í Úganda ásamt eiginmanni sínum og börnum. Búa þau saman í höfuðborginni Kampala en eiginmaður Þórhildar starfar fyrir utanríkisþjónustu Íslands. Hún mætti í morgun í viðtal á Rás 1 þar sem hún sagði frá ótrúlegum atburði sem átti sér stað verslunarmiðstöð sem hún sækir reglulega. Svo virðist vera að lögreglan í borginni...
InnlentHerdís huggar starfsmenn Sýnar í skugga uppsagna: „Þetta er fjarri lagi“ Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, sendi starfsmönnum fyrirtækisins bréf í kjölfar umfjöllunar Mannlífs um fyrirtækið í síðustu viku. Í bréfinu reynir forstjórinn að hugga starfsmenn og heldur því fram að umfjöllun Mannlífs sé röng. Í bréfinu fullyrðir forstjórinn að ekki hafi komið til tals að loka fréttastofu Stöðvar 2 og ekki standi til að breyta nöfnum á útvarpsstöðum fyrirtæksins. Hún...
InnlentÖnnur Til hamingju vara innkölluð – Inniheldur ofnæmisvald Önnur vara frá Til hamingju hefur verið innkölluð en í þetta sinn er um að ræða Chili jarðhnetur. Mannlíf sagði frá því á dögunum að saxaðar döðlur frá Til hamingju hafi verið innkallaðar þar sem þær voru taldar óhæfar til neyslu. Nú hefur Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, nú stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Chili...