InnlentHolur í borginni skemmdu yfir 20 bíla Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna tjóns á minnst þemur bifreiðum eftir að þeim hafði verið ekið í holu á vegi í íbúðarhverfi í austurborginni. Haft var samband við veghaldara og honum gert að gera ráðstafanir. Þá bárust ítrekaðar tilkynningar vegna tjóna á bifreiðum eftir að þeim hafði verið ekið í holur á stofnbraut í austurborginni. Um var að ræða...
InnlentSérsveitin handtók fimm í vopnaðri aðgerð í heimahúsi á Akureyri Fimm aðilar voru handteknir í heimahúsi á Akureyri í dag með aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra. Rétt í þessu lauk lögreglan á Norðurlandi eystra ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra aðgerðum í Glerárhverfi á Akureyri þar sem fimm einstaklingar voru handteknir í heimahúsi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar. Þar kemur fram að tilkynning hefði borist um líkamsárás og hótanir þar sem vopnum var beitt....
InnlentJarðskjálfti á óvenjulega miklu dýpi mældist í dag við Grjótárvatn – Fannst á Mýrum Íbúar á Mýrum fundu fyrir jarðskjálfta sem varð við Grjótárvatn í dag. Klukkan 17:19 í dag mældist jarðskjálfti upp á 2,9 að stærð við Grjótárvatn á Mýrum en um er að ræða einn stærsta skjálfta sem hefur mælst í virkni sem hófst á svæðinu í ágúst. Á miðvikudaginn mældist annar stór skjálfti. Að sögn RÚV hafa nokkrir haft samband við...
InnlentSólveig Anna svarar SVEIT fullum hálsi: „Aumingja mennirnir að vera svona vitlausir“ Deilur Eflingar við SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði eru farin að harðna enn meira en lögreglan var kölluð til í Kringluna í gær en meðlimir Eflingar höfðu efnt til mótmæla fyrir utan veitingastaðinn Finnsson. Sólveig Anna Jónsdóttir skýtur föstum skotum á framkvæmdarstjóra og lögmann SVEIT í nýrri Facebook-færslu. „Hvort komu Eflingarmeðlimir saman fyrir utan veitingastaðinn Finnsson í gær vegna sjúkrar...
InnlentBjörn Leví segir skort á gegnsæi skemma fyrir hagræðingatillögum Fjármál hins opinbera eru ekki nægilega gagnsæ svo að fólk geti með góðu móti lagt fram tillögur til hagræðingar sem byggja á dæmum um sóun eða verkefni sem falla mættu niður. Þessu heldur Björn Leví Gunnarsson fram í færslu í samráðsgátt stjórnvalda. Alls hafa tæplega 2.900 tillögur verið sendar inn í samráðsgáttina af almenningi en Björn Leví, sem er fyrrverandi...
InnlentSlagsmál brutust út eftir að vandræðagemlingi var vísað út af skemmtistað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti frekar rólega nótt samkvæmt dagbók hennar. Á tímabilinu frá klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun voru 57 mál bókuð hjá lögreglunni en tveir gista í fangageymslu lögreglunnar. Hér koma nokkur dæmi. Ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna. Reyndist hann einnig án gildra ökuréttinda. Var honum sleppt eftir hefðbundið...
InnlentÍsraelsher heimilar áætlun um að hverfa frá stórum svæðum á Gaza Ísraelska dagblaðið Haaretz greinir frá því að ísraelski herinn hafi gefið grænt ljós á þá ráðstöfun að „hraða afturköllun“ hermanna frá stórum hlutum Gaza-svæðisins eftir því sem viðræður um vopnahlé eflast. Herinn rannsakaði fjölmargar leiðir til að draga hermenn út úr palestínsku hólmlendunum (e. enclave), þar á meðal í gegnum Netzarim ganginn (e. Netzarim Corridor), sagði blaðið. Hinn fjögurra kílómetra...
InnlentFjölmargir mættu á kröfufund til stuðnings Palestínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“ Um þúsund manns safnaðist saman við Hlemm í dag og gengu samstöðugöngu á Austurvöll til stuðnings Palestínu. Fjölmargir mættu á kröfufundinn.Mynd: Björgvin Gunnarsson Félagið Ísland-Palestína boðaði til samstöðugöngu frá Hlemmi að Austurvelli klukkan 14:00 í dag en um þúsund manns mætti en á Austurvelli var síðan haldinn kröfufundur. Á fundinum var þess krafist að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, standi við...
InnlentÁramótaterta sprakk framan í tíu ára son Alexöndru: „Plís hendið öllu sprengjudraslinu“ Tíu ára sonur Alexöndru Johansen slasaðist á andliti þegar flugeldakaka sem hann hafði fundið úti, sprakk framan í hann. Biðlar hún til fólks að henda „öllu sprengjudraslinu“. „Elsku mosfellingar….. Langar að biðja ykkur um að fjarlægja allar sprengjur/tertur eftir ykkur eða það sem að þið sjáið úti.“ Þannig hefst færsla Alexöndru Johansen sem hún birti á íbúasíðu Mosfellsbæjar en færslan...
InnlentÍsland með tvo rétti á lista yfir versta mat í heim: „Er það ekki afrek hjá fámennri þjóð?“ Gunnar Smári Egilsson furðar sig á lista yfir versta mat heims en Ísland á þar tvo rétti á lista. Afmælisbarn dagsins, Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaforingi, skrifaði færslu í gær þar sem hann birtir lista yfir 100 verstu rétti í heimi, samkvæmt einkunnargjöf á síðunni TasteAtlas.com. Furðar hann sig á því að á listanum eigi smáríkið Ísland tvo rétti af þeim...
InnlentSigurjón dæmdur fyrir ítrekaðar nauðganir á fatlaðri konu – Starfaði sem verslunarstjóri Hagkaupa Sigurjón Ólafsson, sem dæmdur var í gær í átta ára fangelsi fyrir að nauðga ítrekað andlega fatlaðri konu, starfaði sem verslunarstjóri í Hagkaupum um árabil. Þá var hann verslunarstjóri Byko í skamma stund áður en málið kom á borð lögreglu. Sigurjón Ólafsson, ríflega fimmtugur, hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað nauðgað andlega fatlaðri konu á...
InnlentKröfufundur vegna þjóðarmorðsins í Palestínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin loforð!“ Félagið Ísland-Palestína boðar samstöðugöngu með palestínsku þjóðinni í dag klukkan 14:00. Gengið verður frá Hlemmi að Austurvelli í samstöðu með palestínsku þjóðinni og þess krafist að nýja ríkisstjórnin efni gefin loforð og grípi til aðgerða gegn þjóðarmorði Ísraels í Palestínu. Á Austurvelli verður síðan samstöðu- og kröfufundur. Í viðburðarlýsingu Félagsins Ísland-Palestína segir eftirfarandi: „Í baráttunni gegn þjóðarmorðinu höfum við öll...