Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sólveig Anna svarar SVEIT fullum hálsi: „Aumingja mennirnir að vera svona vitlausir“

Sólveig Anna svarar SVEIT fullum hálsi: „Aumingja mennirnir að vera svona vitlausir“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar – Mynd: Efling

Deilur Eflingar við SVEIT, sam­tök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði eru farin að harðna enn meira en lög­reglan var kölluð til í Kringl­una í gær en með­limir Eflingar höfðu efnt til mót­mæla fyrir utan veit­inga­stað­inn Finnsson. Sólveig Anna Jóns­dóttir skýtur föstum skotum á fram­kvæmd­ar­stjóra og lög­mann SVEIT í nýrri Facebook-færslu.

„Hvort komu Efl­ing­ar­með­limir saman fyrir utan veit­inga­stað­inn Finnsson í gær vegna sjúkrar fégræðgi Eflingar, eins og Aðalgeir Ásvalds­son fram­kvæmda­stjóri SVEIT heldur fram, eða vegna þess að ég elska að góla í gjall­ar­horn, eins og lög­maður SVEIT Sigurður G. Guð­jóns­son, hélt fram við Stöð 2 í gær?“ Þannig hefst Facebook-færsla Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur for­manns Eflingar sem hún birti í morgun.

Svarið sem Sólveig Anna kemur með er eft­ir­far­andi:

„Hvorugt. Hvorugt er rétt. Aumingja menn­irnir að vera svona vit­lausir. Við í Eflingu mót­mæltum í gær fyrir utan veit­inga­stað­inn Finnsson, í eigu Óskars Finns­sonar, vegna þess að Óskar Finnsson hefur skráð fólk í svika-stétt­ar­fé­lagið Virðingu, félag stofnað af atvinnu­rek­endum, til að lækka laun fólks og ráð­ast að flestum mik­il­væg­ustu rétt­indum vinn­andi fólks á Íslandi, líkt og veik­inda­rétt, rétt til að vera með veikum börnum, orlofs­rétt, rétt­indum barns­haf­andi kvenna og svo mætti áfram telja. Stað­reyndin er sú að gervi­kjara­samn­ingur svika-stétt­ar­fé­lags­ins Virð­ingar brýtur bæði gegn íslenskum lögum og Evr­ópu­sam­bands­reglu­gerðum og -til­skip­unum. Til við­bótar við þetta gerir ráðn­ing­ar­samn­ingur sá sem svika-stétt­ar­fé­lagið Virðing og SVEIT hafa útbúið ráð fyrir per­sónunjósnum atvinnu­rek­enda á starfs­fólki, en lög­menn Eflingar hafa sent Per­sónu­vernd kvörtun vegna máls­ins. Það er mat lög­manna að umrætt per­sónunjósna-ákvæði í ráðn­ing­ar­samn­ingnum brjóti gegn per­sónu­vernd­ar­lögum og einnig gegn reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins um vernd ein­stak­linga í tengslum við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga.“

Segir Sólveig Anna enn­fremur að hlut­verk Eflingar sé að „standa vörð um kjör, rétt­indi og hags­muni verka­fólks á félags­svæði félags­ins“.

„Þetta eru ástæð­urnar fyrir því að við í Eflingu mót­mæltum fyrir utan veit­inga­stað­inn Finnsson í gær. Hlutverk Eflingar er að standa vörð um kjör, rétt­indi og hags­muni verka­fólks á félags­svæði félags­ins. Það munum við ávallt gera. Enda er Efling raun­veru­legt verka­lýðs­fé­lag, ekki svika-félag stofnað af atvinnu­rek­endum til að níð­ast á vinn­andi fólki. Í bar­áttu okkar fyrir rétt­indum og hags­munum verka og lág­launa­fólks beitum við öllum þeim aðferðum sem við teljum réttar og lík­legar til árang­urs. Við í Eflingu munum ekki hætta aðgerðum okkar fyrr en að við getum full­vissað okkur um að Óskar Finnsson, eig­andi Finnsson og aðrir sem við fáum fregnir af að séu að skrá starfs­fólk í svika-stétt­ar­fé­lagið Virðingu, láti af brotum sínu gegn verka­fólki og fylgi gild­andi, lög­legum kjara­samn­ingi Eflingar og SA um störf á veit­inga­mark­aði.“

Að lokum hvetur Sólveig Anna fólk til þess að standa með Eflingu í bar­áttu við SVEIT og Virðingu:

„Ég hvet ykkur til að standa með okkur í Eflingu í bar­átt­unni við SVEIT og Virðingu. Með því eruð þið að standa vörð um kjör og rétt­indi okkar allra. Það skal ekki ger­ast á okkar vakt að atvinnu­rek­endur kom­ist upp með að stofna gervi-stétt­ar­fé­lag til að níð­ast á sak­lausu fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ