Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölmargir mættu á kröfufund til stuðnings Palestínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“

Fjölmargir mættu á kröfufund til stuðnings Palestínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“
Fjöl­margir mættu á kröfufund­inn. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Um þús­und manns safn­að­ist saman við Hlemm í dag og gengu sam­stöðu­göngu á Aust­ur­völl til stuðn­ings Palest­ínu.

Fjöl­margir mættu á kröfufund­inn.

Félagið Ísland-Palest­ína boð­aði til sam­stöðu­göngu frá Hlemmi að Aust­ur­velli klukkan 14:00 í dag en um þús­und manns mætti en á Aust­ur­velli var síðan hald­inn kröfufundur. Á fund­inum var þess kraf­ist að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra, standi við gefin kosn­inga­lof­orð gagn­vart þjóða­morð­inu á Gaza.

Fjöl­margir mættu á kröfufund­inn.

Hér má sjá kröfur fund­ar­ins:

1. Að Ísland styðji ákæru Suður-Afríku á hendur Ísra­els­ríkis fyrir brot á Sáttmála Sam­ein­uðu þjóð­anna gegn þjóð­ar­morði

2. Að Ísland komi á við­skipta­þving­unum gegn Ísrael í sam­starfi við Norð­ur­löndin og önnur ríki eins fljótt og auðið er

3. Að stjórn­mála­sam­bandi við Ísrael verði slitið

4. Að Ísland beiti sér fyrir alþjóð­legu vopna­sölu­banni til Ísraels

5. Að þeir aðilar sem hafa tekið þátt í, fyr­ir­skipað eða hvatt til þjóð­ar­morðs­ins á Gaza verði dregnir fyrir íslenska dóm­stóla ef þeir koma til lands­ins eins og lög um refs­ingar fyrir hóp­morð, glæpi gegn mannúð, stríðs­glæpi og glæpi gegn friði segja til um. Athugið að þessir glæpir fyrn­ast aldrei.

Auðvitað.

Ræðu­maður fund­ar­ins var Sveinn Rúnar Hauksson, fyrr­ver­andi for­maður Félags­ins Ísland -Palest­ína en hann sagði meðal ann­ars frá heim­sókn sinni nýverið á Vest­ur­bakk­ann þar sem hann heim­sótti palest­ínska vini sína. Sagði hann ástandið á Vest­ur­bakk­anum miklu verri en hann hafði gert sér í huga­lund.

Sveinn Rúnar Hauksson
Magnús Magn­ús­son

Magnús Magn­ús­son, gjald­keri Félags­ins Ísland – Palest­ína flutti einnig til­finn­inga­þrungna ræðu sem má lesa hér fyrir neðan í heild sinni:

„Áður en við slítum þessu í dag vil ég þakka ykkur öllum aftur fyrir að koma og sýna stuðn­ing ykkar í verki. Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að gef­ast ekki upp og ég þakka ykkur fyrir úthald ykkar.

Síðustu 15 mán­uðir hafa verið martröð. Í símunum okkar höfum við horft á útrým­ing­ar­her­ferð Ísraela á Gaza í beinni. Á hverjum degi sjáum við fleiri myrt börn, fleiri sjúkra­hús sprengt og fleiri tjöld brenna. Lífs­nauð­syn­legum innviðum tor­trímt.Við fylgj­umst með óstjórn­ar­legum kval­ar­losta Ísra­el­skra her­manna. Stoltir sýna þeir okkur skrið­dreka sína og jarð­ýtur skreytta með leik­föngum myrtra barna. Flissandi taka þeir myndir af sér í und­ir­fötum palest­ínskra kvenna. Hug­rakkir ráð­ast þeir inná sjúkra­hús og skóla og brenna og brenna og brenna allt. Þegar Ísra­elskum her­mönnum var bannað að nauðga Palest­ínskum föngum í pynt­ing­ar­dýflissum sínum þá réð­ust þér á eigin dóm­stóla. Ásetn­ingur þeirra er klár bæði í orðum og gjörðum. Öllu sem við­heldur lífi á Gaza á að eyða og öllum Palest­ínu­mönnum á að útrýma.Á sama tíma hafa leið­togar okkar og stofn­anir brugð­ist okkur full­kom­lega. Enginn nema almenn­ingur og verka­lýðs­hreyf­ingin þora að sýna sam­stöðu með Palest­ínu. Palest­ínskir fánar fá ekki að blakta við ráð­húsið, ljós Hörpu eru aldrei í palest­ínsku fána­lit­unum. Ráðafólk er ennþá að hugsa málið og hefur miklar áhyggjur af ástand­inu en það full­vissar okkur um að þá sé of snemmt að grípa til aðgerða og að þjóð­ar­morð sé aðeins laga­tækni­legt orð sem sé ekki hægt að nota fyrr en eftir úrskurð Alþjóða­dóm­stóls­ins. Þrátt fyrir að sami dóm­stóll hafi fyr­ir­skipað Ísrael að hætta öllum hern­að­ar­að­gerðum á Gaza fyrir tæp­lega ári síðan, þrátt fyrir að virt­ustu mann­rétt­inda­sam­tök heims segi að Ísrael sé að fremja þjóð­ar­morð og þrátt fyrir að Alþjóð­legi glæpa­dóm­stóll­inn hafi gefið út hand­töku­skip­anir gegn ráða­mönnum í Ísrael.En við ætlum ekki að gef­ast upp gagn­vart verk­efn­inu framundan. Við ætlum ekki að láta von­leysið ná tökum. Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!Við höfum unnið marga sigra á sein­asti ári og við ætlum að halda áfram að vinna. Rík­is­stjórn Íslands skal beita sér fyrir við­skipta­þving­unum og brott­vísun Ísraels úr alþjóða­sam­starfi. Fyr­ir­tæki skulu draga fjár­fest­ingar sínar burt frá Ísrael. Ísra­elskir her­menn munu ekki geta ferð­ast vegna hand­töku­skip­ana. Palest­ínu­menn eiga skilið frelsi og rétt­læti, þeir eiga skilið hug­rekki okkar allra!Við ætlum ekki að gef­ast upp!Frjáls Frjáls Palest­ína!“

Skýr skila­boð.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð