InnlentÖlvuð móðir kastaði hundi í lögreglumann Ýmislegt er að frétta úr dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að venju Einstaklingi var vísað út af neyðarskýli Reykjavíkurborgar sökum æsings. Tveimur klukkustundum seinna var sami aðili tilkynntur að hafa ráðist á annan skjólstæðing gistiskýlisins með flösku eftir að sá síðarnefndi sló hann. Þeir báðir mjög ölvaðir og ekki í ástandi til að vera meðal almennings. Báðir mennirnir voru síðan vistaðir...
InnlentKristrún segir stjórnarmyndurnarviðræðurnar ganga vel: „Ákveðin ábyrgð í því sem við leggjum fram“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, ræddi við fjölmiðla eftir að hafa fundað með Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, formanni Viðreisnar, í allan dag til þess að ná saman í von um að geta myndað nýjan ríkisstjórn. Samkvæmt Kristrúnu voru ýmiss konar ágreiningsmál rædd og nefnir til dæmis ESB í því samhengi. „Við erum búin að ræða á...
InnlentÁkvörðun um ákæru á hendur Sigurði Fannari tekin í næstu viku – Sagður hafa banað dóttur sinni Ákveðið verður á mánudaginn hvort Sigurður Fannar Þórsson verður ákærður fyrir að hafa banað tíu ára dóttur sinni þann 15. september en Sigurður hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Ákvörðun þessi er í höndum héraðssaksóknara en Vísir greindi frá málinu. Sigurður var handtekinn af lögreglu eftir að hann hringdi og tilkynnti að hann hafi banað dóttur sinni en hann var handtekinn...
InnlentBrynjar Níelsson vill dæma fólk Í nóvember auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjaness og Hins vegar er um að ræða setningu dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sett verður í það embætti frá og með 1. janúar 2025, eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um...
InnlentHvað finnst þér um ákvörðun Bjarna Ben að veita leyfi til hvalveiða? Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og matvælaráðherra, hefur gefið út leyfi til hvalveiða til Hvals hf. og til Tjaldtanga ehf. en leyfið er veitt til fimm ára. Ákvörðun Bjarna hefur þótt umdeild í ljósi þess að alþingiskosningar eru nýafstaðnar og hann er ráðherra í starfsstjórn sem ætti helst ekki að taka stórar ákvarðanir. Bjarni vill hins vegar meina að hann sé einungis...
InnlentÁrni er fallinn frá Árni Indriðason, menntaskólakennari og sagnfræðingur, er fallinn frá en mbl.is greinir frá andláti hans. Árni var 74 ára gamall. Árni fæddist í Reykjavík árið 1950 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hann fór í MR og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1970 og kláraði sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1977. Sama ár hóf Árni að kenna sögu í sínum gamla menntaskóla og...
InnlentHörður vill þér vel Fátt er skemmtilegra en íslensk tónlist og það er vegna þess að Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á þessu sviði. Eina sem er betra en íslensk tónlist er ný íslensk tónlist og hefur Mannlíf valið fimm nýleg íslensk lög sem allir þurfa að hlusta á um helgina. Hörður Már Bjarnason – I Wish You Well Kristján I – Lonely Christmas Andrés...
InnlentJón Nordal lést í gær Jón Nordal, tónskáld og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, er látinn, 98 ára að aldri. Hann var á meðal virtustu tónskálda Íslands og lætur eftir sig fjöldann allan af perlum á tónlistarsviðinu. Jón Nordal fæddist í Reykjavík 6. mars 1926 og lést 5. desember s.l. Foreldrar hans voru Ólöf Nordal og Sigurður Nordal prófessor. Systkini hans voru Bera, og Jóhannes....
InnlentKlausturkarlinn Ólafur Ísleifsson hjólar í Ingu Sæland: „Krefst árásar á félagsmenn lífeyrissjóða“ Ólafur Ísleifsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins, telur Ingu Sæland, sinn fyrrverandi formann, standa fyrir atlögu að því fólki sem á lífeyrissjóðina. Hann fordæmir væntanlegt samstarf Viðreisnar og Samfylkingar við Ingu og flokk hennar. „Tveir flokksformenn standa í viðræðum um ríkisstjórn við formann flokks sem krefst árásar á félagsmenn lífeyrissjóða, vinnandi fólk og fólk horfið af vinnumarkaði. Atlagan felur í sér...
InnlentTortryggilegir menn í Kópavogi Lögregla var kölluð til vegna slagsmála í verslunarmiðstöð. Óljóst um átsæður átakanna. Málið er í rannsókn. Ökumaður gat ekki framvísað ökuskírteini eftir að hafa lent í umferðaróhappi. Málið er í rannsókn. Tilkynnt um mann sem er að reyna komast inn í hús. Lögregla fór á staðinn og ræddi við einstaklinginn. Þarna var um deilumál að ræða og leystist það á...
InnlentHvalveiðarBjarni leyfir hvalveiðar til næstu fimm ára Bjarni Benediktsson hefur gefið út veiðileyfi á langreiðum til Hvals hf, auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14, sem Tjaldtangi ehf. á. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Forsætis- og matvælaráðherra, Bjarni Benediktsson veitir veiðileyfin til fimm ára, líkt og gert var 2009, 2014 og 2019. Framlengjast leyfin um eitt ár...
InnlentÞórdís telur Ísland hafa takmörkuð áhrif á Ísrael: „Mann skortir orð til að lýsa þessum hörmungum“ Í nýrri skýrslu Amnesty International er greint frá því að samtökin hafi lokið rannsókn sinni á hegðun Ísrael gagnvart Palestínubúum og komist að þeirri niðurstöðu að um þjóðarmorð sé að ræða. Er þetta í fyrsta skipti sem samtökin úrskurða um slíkt. „Mann skortir orð til að lýsa þessum hörmungum sem blasa við manni kvöld eftir kvöld og vonum sannarlega að...