InnlentPíratar falla af þingi miðað við nýjustu könnun Maskínu – Viðreisn og Flokkur fólksins á flugi Viðreisn er orðinn næst stærsti stjórnmálaflokkur Íslands, samkvæmt niðurstöðu nýjustu skoðanakönnunar Maskínu. Þá er Flokkur fólksins einnig í sókn. Píratar falla hins vegar af þingi samkvæmt könnuninni. Samfylkingin mælist vinsælasti stjórnmálaflokkur Íslands í nýjustu skoðanakönnun Maskínu, líkt og hún hefur gert um nokkurt skeið, með 22,2 prósent fylgi en fylgið lækkar svolítið milli mánaða. Næst stærsti flokkurinn er Viðreisn sem...
InnlentOlían breytti dúkku í barn: „Ég hafði frá barnæsku heyrt að kannabis kæmi frá djöflinum“ „Dóttir mín var falleg og dásamleg þegar hún fæddist en hún var örlítið öðruvísi en önnur börn. Hún horfði ekki í augu okkar og grét meira en venjulegt þykir. Þegar hún var aðeins fjörutíu daga gömul fékk hún fyrsta flogakastið. Allur líkami hennar hristist og við foreldrarnir urðum dauðskelkuð,“ segir Norberto Fischer í viðtali við Hampkastið, umræðuþátt Hampfélagsins, en hann...
InnlentBreiðablik Íslandsmeistari – Víkingur klúðraði á lokametrunum Breiðablik varð í gær Íslandsmeistari í knattspyrnu karla eftir 0-3 sigur á Víkingi. Fyrir leikinn nægði Víkingi jafntefli gegn Breiðabliki í lokaleik deildarinnar og fór leikurinn fram á heimavelli Víkings. Breiðablik lét það þó ekki á sig fá og sigraði leikinn örugglega með þremur mörkum gegn engu. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði tvö mörk í leiknum meðan Aron Bjarnason skoraði eitt....
InnlentSkólaverkföll hefjast á morgun – Stefnir í að nemendur verði lengi heima Verkföll munu að öllum líkindum hefjast í átta skólum á leik, grunn og framhaldsskólastigi og einum tónlistarskóla Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa átt í samningaviðræðum í nokkurn tíma en eru að sögn semjenda ekki nærri samkomulagi. Kennarar hafa lýst því yfir að þeir vilji laun þeirra verði metin á sama hátt og laun sérfræðinga á almennum markaði, sem...
InnlentGunnar Bragi sagður fórnarlamb á Klausturbarnum – „Alþingi á að biðja þessa einstaklinga afsökunar“ Einar G. Garðarsson fasteignasali vill að Gunnar Bragi Sveinsson, frambjóðandi Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi og einn svonefndra Klausturkarla, verði beðinn afsökunar á því að orð hans og fleiri þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins voru tekin upp á laun og gerð opinber. Þessi krafa hans kemur fram í aðsendri grein Einars á vefmiðlinum Vísi í dag þar sem sú skoðun höfundar að...
InnlentSlagsmálahundur á slysadeild Eldur kom upp í ruslatunnu í miðborginni. Tekist hafði að slökkva eldinn með slökkvitæki þegar neyðaraðila bar að garði. Rúður voru brotnar í grunnskóla í Vesturbænum. Ekki er upplýst um gerendur. Tilkynnt var um grunnsamlegar mannaferðir í austurborginni. Ekkert bar sjá þegar lögreglu bar að og hinir dularfullu horfnir sporlaust. Nokkuð var um að ökutækjum væri lagt ólöglega á eða...
InnlentHeimilishundur beit ættingja eiganda í handleggi í hverfi 113 Í löggufréttum er þetta helst: Lögreglustöð 1. Tilkynnt um þjófnað á þvotti í hverfi 105. Tilkynnt um skemmdarverk á fótboltavelli í hverfi 108. Tilkynnt um notaðar sprautunálar og annað tengt fíkniefnaneyslu í hverfi 108. Lögreglustöð 2. Aðili handtekinn en hann var undir áhrifum fíkniefna er hann ók vespu um hverfi 221. Umferðaróhapp í hverfi 210. Ekki slys á fólki. Innbrot...
Innlent„Er einokun Háskóla Íslands eðlileg þegar litið er til fjölþjóðasamfélagsins?“ Er ekki einokun Háskóla Íslands óviðunandi? er yfirskrift greinar eftir Helgu Dögg Sverrisdóttur, sem er sjúkraliði og grunnskólakennari. Þar segir: „Af og til tekur frambjóðandi þessa umræðu við fólk, Íslendinga, sem koma að utan eftir nám. Það sem margir þeirra eiga sammerkt er að þeir fá menntun sína ekki metna hér á landi. Hér er um sálfræðinga að ræða, félagsráðgjafa...
InnlentHelmingur grunnskóla á Íslandi bannar símanotkun nemenda Grunnskólar landsins, er svöruðu í könnun, segja að þeir hafi sett sér einhverjar reglur um símanotkun nemenda – en þetta kom fyrst fram á mbl.is. Í 45% grunnskóla á Íslandi eru símar bannaðir; algengast er þó að símanotkun sé leyfð með takmörkunum í skólum. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar er Umboðsmaður barna sendi til allra 174 grunnskóla landsins í...
InnlentStefán Einar hefur ekki áhyggjur af slaufun: „Þeim verður ekki kápan úr því klæðinu, greyjunum“ Stefán Einar Stefánsson blaðamaður segir að „Spurninga-Björn Leví Gunnarsson er ósáttur við þær spurningar sem ég lagði fyrir Lenya Rún, nýjan leiðtoga Pírata í Spursmálum. Rökin eru þau að stjórnmálamenn eigi ekki að þekkja skattprósentur upp á kommur. En af hverju ekki?“ spyr hann og bætir við: Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata. „Þarf skurðlæknir ekki að vita hvort hann eigi...
InnlentHissa á hegðun Kristrúnar: „Synd að búið sé að taka fyrir að Dagur verði ráðherra í ríkisstjórn“ Borgarfulltrúi Pírata – Dóra Björt Guðjónsdóttir – er algjörlega gáttuð á hegðun formanns Samfylkingarinnar, Kristrúnar Frostadóttur. Einkaskilaboð Kristrúnar til kjósanda þess efnis að Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri yrði ekki ráðherra ef Samfylkingin kæmist í ríkisstjórn voru birt í Facebook-grúppu íbúa í Grafarvogi, en þetta kom fram á RÚV. Í skilaboðunum segir Kristrún að Dagur muni eigi verða ráðherra ef...
InnlentVeðrið verður nú mun þægilegra en undanfarið – Frost í innsveitum norðan- og austanlands Lægðin sem hefur verið við völd undanfarið er komin langt norður fyrir land og er henni þökkuð vel unnin störf. Veðrið verður því mun þægilegra en verið hefur; víða verður hæg breytileg átt sem og léttskýjað; stöku él á Suðaustur- og Austurlandi. Þá mun blása all nokkuð austantil á klakanum fram eftir morgni. Víða verður fremur vægt frost í dag:...