Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Olían breytti dúkku í barn: „Ég hafði frá barnæsku heyrt að kannabis kæmi frá djöflinum“

Olían breytti dúkku í barn: „Ég hafði frá barnæsku heyrt að kannabis kæmi frá djöflinum“
Fjöl­skyldan á góðri stundu. Mynd: Aðsend

„Dóttir mín var fal­leg og dásam­leg þegar hún fædd­ist en hún var örlítið öðru­vísi en önnur börn. Hún horfði ekki í augu okkar og grét meira en venju­legt þykir. Þegar hún var aðeins fjöru­tíu daga gömul fékk hún fyrsta floga­kastið. Allur lík­ami hennar hrist­ist og við for­eldr­arnir urðum dauð­skelkuð,“ segir Norberto Fischer í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en hann hélt erindi um dóttur sína Anny á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir fyrr í mán­uð­inum.

Fjöl­skyldan.

Anny var fjög­urra ára þegar hún var greind með sjald­gæfan og alvar­legan floga­veikis­sjúk­dóm. Hún lærði að tala og ganga áður en sjúk­dóm­ur­inn náði yfir­hönd­inni. „Floga­köstin urðu verri og hún breytt­ist hrein­lega í dúkku sem ekki gat hreyft sig, talað eða borðað. Raun­veru­leik­inn varð að okkar verstu martröð.“ 

Læknar stóðu ráða­lausir and­spænis sjúk­dómnum og afleið­ingum hans þrátt fyrir að reyna öll þau lyf sem í boði voru. Norberto og fjöl­skylda hans gáfust ekki upp og fengu von þegar þau lásu grein frá Banda­ríkj­unum og gagn­semi CBD-olíu gegn floga­köstum. Vanda­málið var eitt og það var stórt. Norberto er Bras­il­íu­maður og kanna­bis var með öllu ólög­legt í Brasilíu. „Ég hafði frá barn­æsku heyrt að kanna­bis kæmi frá djöfl­inum og þarna var maður að segja að CBD gæti bjargað dóttur minni. Hún var að deyja í hönd­unum á okkur og við ákváðum að flytja inn CBD-olíu. 

Við vissum að það var ólög­legt og að við gætum lent í fang­elsi en við ákváðum engu að síður að láta vaða. Og við gáfum henni CBD-olíu, settum hana inn fyrir varir hennar og ég grét á þeirri stundu.“ 

Norberto trúði því vart sjálfur en Anny svaf í gegnum nótt­ina án þess að fá floga­kast. Eftir níu vikur voru floga­köstin alfarið hætt og aug­ljóst að CBD-olían var að virka. Dúkkan varð að barni á nýjan leik. 

Tók þá við bar­áttan við brasil­ískt stjórn­kerfi til þess að bjarga lífi Anny. Með lækna sér í liði fengu þau leyfi til að flytja inn CBD-olíu fyrir Anny og vakti það gríð­ar­lega athygli í Brasilíu. Í kjöl­farið var fram­leidd heim­ild­ar­mynd um bar­átt­una, Illegal, sem finna má á mynd­banda­veit­unni YouTube.. „En okkur þótti ekki rétt að við ein hefðu leyfi til þess að flytja inn CBD. Allir sem þyrftu á þessu að halda ættu að eiga sama rétt og þannig hófst bar­áttan fyrir því að opna á þann mögu­leika. Það tók eitt ár og þá var reglum breytt á þá leið að allir sem höfðu upp­á­skrifað leyfi frá lækni gátu flutt CBD til lands­ins.“ 

Í dag er CBD selt í versl­unum í Brasilíu og þarf ekki lyf­seðil til að kaupa slíkar vörur. En bar­átta Norberto skil­aði því einnig að þeir sem þurfa á að halda geta einnig fengið CBD-olíu sem blönduð er með THC, að lækn­is­ráði. Tókst Norberto og fjöl­skyldu hans því að tryggja sjúk­lingum í Brasilíu, landi sem telur 212 millj­ónir manna, það úrræði að nota lyfja­hamp við sjúk­dómum og sjúk­dóms­ein­kennum sínum. Þannig breytti hann heil­brigð­is­þjón­ust­unni í Brasilíu. 

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan https://youtu.be/KQsFFJvc0Js?si=4jEhqJExshZKFXLK en einnig má hlusta á hann á öllum streym­isveitumhttps://open.spotify.com/episode/6EWr59OAG9HcIfIEELotaQ?si=ywE-CA0aTHWBU9ZruA8WTQ. 

Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Norberto, Andri Karel sá um frétta­skrif og Mickael Lakhlifi sá um tækni­mál. 

Nánar má lesa um starf­semi Hamp­fé­lags­ins á heima­síð­unni hamp­felagid.is.

Hér má sjá þátt­inn í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð