InnlentLoga þykir rifrildi Bjarna og Katrínar sérkennilegt: „Eru ekki einhuga í málinu” Logi Einarsson, þingmaður, finnst samskipti Bjarnar og Katrínar sérstök. Þingmaður Samfylkingarinnar Logi Einarsson er hissa á að ríkisstjórnin sé ekki sammála um utanríkisstefnu Íslands. Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hafa verið í deilum um helgina. Snúast deilurnar um hjásetu Íslands í kosningu á vettvangi allherjarþings Sameinuðu þjóðanna um ástandið á Gaza en hjásetan hefur verið harðlega gagnrýnd. Katrín...
InnlentKFUM og KFUK safna ofbeldisupplýsingum um séra Friðrik: „Fjöldahreyfing fólks sem upplifir nú sorg“ KFUM og KFUK hefur sent frá sér yfirlýsingu um séra Friðrik. Sagnfræðingurinn Guðmundur Magnússon hefur sent frá sér nýja ævisögu um Friðrik Friðriksson, en hann var oftast kallaður séra Friðrik, og í henni greinir sagnfræðingurinn frá því að séra Friðrik hafi káfað á 11 ára dreng í sunnudagaskóla. Í bókinni er haft eftir manni á áttræðisaldri að aðrir piltir hefðu...
InnlentSegja skýrslu Vinnueftirlitsins á alvarlegu slysi illa unna:„Hroðvirknislega gert og ófullnægjandi“ Sérfræðingar sem skoðað hafa rannsóknarskýrslu Vinnueftirlitsins, á alvarlegu vinnuslysi í Grenivík í fyrra, segja skýrsluna afar illa unna. Í áratugi hefur Vinnueftirlit ríkisins rannsakað vinnuslys og byggt upp mikla þekkingu á því sviði. Samkvæmt upplýsingum Mannlífs notaðist stofnunin við gátlista sem hafði verið þróaður áratugum saman en þá var spurt staðlaðra spurninga og ákveðnu verklagi fylgt, svo tryggja mætti gæði...
InnlentSegir Katrínu í ofbeldissambandi: „Það má ekki gefast bara upp fyrir illskunni“ Rebekka Guðleifsdóttir hefur sent Katrínu Jakobsdóttur annað opið bréf. Fyrir viku sagði Mannlíf frá opnu bréfi sem ljósmyndarinn Rebekka Guðleifsdóttir sendi á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, um ástandið á Gaza. Þar furðaði hún sig meðal annars á því að íslensk stjórvöld fordæmdu ekki árásir Ísraela á Palestínumenn. Rebekka skrifaði í dag annað opið bréf til forsætisráðherrans. Rebekka Guðleifsdóttir Í nýja bréfinu...
InnlentBjarni Ben segir Katrínu segja ósatt: „Forsætisráðuneytið var upplýst“ Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra Íslands, segist vera framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar Enn og aftur hefur komið upp deilumál í ríkisstjórn landsins. Snúa deilurnar nú um hjásetu Íslands í kosningu á vettvangi allherjarþings Sameinuðu þjóðanna um ástandið á Gaza en hjásetan hefur verið harðlega gagnrýnd. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur gefið það út að ekki hafi verið haft samráð við hana um þessa hjásetu....
InnlentLeynd hvílir yfir meintu árásarmáli hæstaréttarlögmannsins – Lögreglan staðfestir ekki kæru Leyndarhjúpur er yfir meintri líkamsárás Óttars Pálssonar hæstaréttarlögmanns. Mannlíf hefur heimildir fyrir því að verslunarmaðurinn Reynir Berg Þorvaldsson hafi ætlað að leggja fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þann 27. október síðastliðinn. Ekki hefur Mannlíf náð sambandi við Reyni Berg, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Lögreglan segist ekkert geta staðfest, enda bundin trúnaði. Því er ekki hægt að staðfesta hvort kæran...
InnlentDrífa Snædal svarar gagnrýni: „Hjá Stígamótum ríkir algjör trúnaður“ Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir Stígamót ekki skjalfesta nöfn. Í kjölfar frétta um að séra Friðrik Friðriksson hafi leitað á dreng og káfað á honum þegar hann var 11 ára gamall tjáðu sig ýmsir um málið. Drífa Snædal, talskona Stígamóta, var gestur í Kastljósinu fyrir helgi og ræddi séra Friðrik. Þar sagðist hún geta vitnað um það að fleiri brotaþolar...
InnlentBirti átakanlegt myndband frá Gaza:„Samsek grátlegri hjásetu Íslands í atkvæðagreiðslu um vopnahlé“ Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata birti átakanlegt myndband frá Gaza og segir alla stjórnmálamenn á Íslandi samseka á alþjóðavettvangi. Myndbandið sem Lenya Rún birti á X, sýnir björgunarsveitarmann á Gaza brotna algjörlega niður eftir að hafa bjargað barni sem hafði grafist undir rústum í einni af hrottafengnum árásum Ísraelshers á Gaza, í fyrradag. Eftirfarandi færslu skrifaði hún við myndbandið:...
InnlentÞeir sem veiktust alvarlega af Covid-19 gætu enn haft þessi einkenni Þeir einstaklingar sem veiktust alvarlega af Covid-19 eru í meiri hættu að finna fyrir lagngvarandi líkamlegum einkennum en þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er greint frá niðurstöðu nýrrar rannsóknar sem náði til um það bil 65 þúsund einstaklinga í Danmörku, Svíþjóð, Noregi Og á Íslandi. Einkennin sem um ræðir eru mæði, brjóstverkur, svimi, höfuðverkur og orkuleysi. Þá...
39:44InnlentHvað varð um SkuggabörnSverrir og Kristín urðu fyrir örlagaríku innbroti: „Brýtur rúðuna með gaskút og ræðst inn“ Árið 2005 komu samhliða út bókin og heimildarmyndin Skuggabörn. Myndina fjallar um gerð bókarinnar en hana gerðu Jóakim Reynisson og Lýður Árnason í samstarfi við Þórhall Gunnarsson. Efnistökin voru fíkniefnaneysla hérlendis á þessum tíma og meðal annars skyggnst inn í líf einstaklinga sem voru í neyslu. Nú tæpum 20 árum síðar skyggnumst við inn í líf sumra þeirra einstaklinga sem...
InnlentHóta að hætta flokka rusl: „Ég ætla að brenna allan úrgang“ Sumir netverjar hóta því að hætta flokka ef þeir þurfa að greiða fyrir pappírspoka. Í Facebook-hópnum Matartips! eru meðlimir hópsins að ræða endurvinnslu á lífrænu sorpi. Kona að nafni Ágúst Kolbrún byrjar umræðuna um málefni. „Matartips og ekki matartips en ætli þið að halda áfram að flokka þegar þetta tekur í gildi? Finnst fáránlegt að segja okkur að flokka, fara...
InnlentÁ álfaslóð – Jóna segir frá kynnum sínum af álfum á Borgarfirði eystra Jóna Óskarsdóttir sér og skynjar meira en margur og hún var að gefa út bókina Á álfaslóð þar sem hún segir frá kynnum sínum af álfum og álfheimunum á Borgarfirði eystra. Bókin inniheldur bæði frásögn um álfa sem og ljóð eftir Jónu, en bókin er bæði á íslensku og ensku. Um er að ræða sanna frásögn skyggnrar konu af heimsókn...