Þeir einstaklingar sem veiktust alvarlega af Covid-19 eru í meiri hættu að finna fyrir lagngvarandi líkamlegum einkennum en þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er greint frá niðurstöðu nýrrar rannsóknar sem náði til um það bil 65 þúsund einstaklinga í Danmörku, Svíþjóð, Noregi Og á Íslandi.
Einkennin sem um ræðir eru mæði, brjóstverkur, svimi, höfuðverkur og orkuleysi. Þá sýnir rannsóknin að þeir sem voru rúmliggjandi vegna veikindanna í viku eða lengur voru tvöfalt líklegri til þess að finna fyrir langvarandi einkennum sem nefnd eru hér að ofan. Umfjöllunina má lesa hér.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir