InnlentRagnhildur Steinunn þolir ekki leti: „Ég missti mömmu mjög ung og þurfti að þroskast mjög hratt“ Hin afkastamikla og vinsæla sjónvarpskona og framleiðandi, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, var gestur Einars Bárðarsonar í hlaðvarpinu Einmitt. Ragnhildur Steinunn hefur kynnt eða verið viðloðin Söngvakeppnina meira og minna síðan árið 2007; er jafnan með mörg járn í eldinum, enda þolir hún ekki leti. Ragnhildur Steinunn segist alltaf hafa verið næm á umhverfi sitt; fljót að lesa í fólk og stemningu....
InnlentRaggi Sót sextugur: „Það er betra að vera latur og nenna því en að vera duglegur og nenna því ekki“ Stjórnmálamaðurinn Logi Einarsson, sendir vini sínum og fyrrum samherja í hljómsveitinni Skriðjöklum, Ragnari Gunnarssyni – Ragga Sót – skemmtilega afmæliskveðju. Logi Einarsson. Mynd/Hallur Karlsson. „Vinur minn Raggi Sót á stórafmæli í dag. Hann er með allra skemmtilegustu mönnun og ég hefði gjarnan viljað lyfta með honum einni hestaskál í tilefni dagsins en það verður ekki þar sem hann flúði athyglina...
InnlentÍslensku forsetahjónin verða viðstödd er Kalli verður krýndur – Danadrottning mætir ekki Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Eliza Reid forsetafrú, munu ferðast til London í byrjun næsta mánaðar til að vera viðstödd krýningarathöfn Karls III Bretlandskonungs. Engum ráðherrum var boðið á krýninguna; kemur fram í skriflegu svari skrifstofu Forseta Íslands við fyrirspurn fréttastofu Vísis. Kemur fram að krýningarathöfnin fer fram þann 6. maí næstkomandi og þar verða þjóðhöfðingjar heimsins viðstaddir. Boðið...
InnlentKolbrún Halldórsdóttir býður fram krafta sína Varaformaður BHM, formaður Félags leikstjóra á Íslandi og fyrrverandi umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir, hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig fram til embættis formanns BHM, Bandalags háskólamanna. Tilkynnti Kolbrún formönnum aðildarfélaga BHM um þetta í pósti í dag. Friðrik Jónsson, núverandi formaður BHM, greindi frá því fyrir tveimur vikum að hann ætlaði ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu; Friðrik...
InnlentSegir Egil Helgason óhæfan: „Morgunblaðið er náskyldara Sjálfstæðisflokknum en skeggið hökunni“ Björn Birgisson samfélagsrýnir í Grindavík segir Egil Helgason óhæfan til að gegna starfi sínu fyrir Ríkisútvarpið. Björn Birgisson Björn er orðhagur mjög og þegar hann tjáir sig á Facebook er oftar en ekki hlustað þó sumum þyki hann umdeildur. Í nýrri færslu birti hann mynd af Agli Helgasyni þáttastjórnanda á Rúv og orðum hans um Moggabloggið. „Það er margur óþverrinn...
InnlentHelga lést á páskadag Helga Óskarsdóttir, einn af frumkvöðlum Waldorfstefnunnar á Íslandi, er látin. Hún var meðal þeirra sem stofnuðu fyrsta leikskólann sem starfaði eftir stefnunni og var auk þess einn stofnanda Waldorfskólans Sólstafa. Hún lést aðfaranótt páskadags, þann 9 apríl en greint var frá andláti hennar á Facebook síðu Sólstafa. Waldorfstefnan er byggð á speki Rudolf Steiner og gengur út á samspil manna...
InnlentGunnar: „Gjaldþrota stjórnmálafólk grípur alltaf til menningarstríðs til að fela eigin vangetu“ Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skýtur bylmingsfast á Samfylkinguna með því að birta 17 ára gamla auglýsingu frá flokknum. Gunnar Smári spyr af hverju almenningur á Íslandi hafi misst trú á stjórnmálum, í nýrri færslu á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins í dag. Með þeim vangaveltum birtir hann 17 ára gamla auglýsingu frá Samfylkingunni þar sem flokkurinn lofar öllu fögru varðandi Reykjavík. Eitthvað sem...
InnlentVill gera tannréttingar fríar: „Erum enn að mismuna börnum eftir efnahag foreldra þeirra“ Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar vill að tannréttingar verði gerðar ókeypis fyrir börn og biður um þrýsting svo það geti orðið að veruleika. Ágúst Ólafur Ágústsson Þingmaðurinn fyrrverandi skrifaði færslu á Facebook fyrir stundu þar sem hann minnist þess að í dag eru 10 ár liðin frá því að þáverandi velferðaráðherra og þáverandi formaður Tannlæknafélags Íslands skrifuðu undir samninga...
InnlentHringdi á lögreglu vegna veikinda en útkallið endaði með óvæntri uppákomu Lögregla var kölluð til ásamt sjúkraliði í miðborginni í gærkvöldi vegna bráðra veikinda á veitingastað. Þegar komið var á vettvang kom fljótt í ljós að veikindin reyndust minniháttar. Vegfarandi við staðinn reyndist vera ósáttur með viðveru lögreglu og kýldi hann lögreglumann fyrirvaralaust í andlitið. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa lögreglu en verður hann kærður fyrir að hindra lögreglu...
InnlentHalldór sagðist loks hafa fundið morðingja dóttur sinnar – Sást aldrei framar Halldór Halldórsson heimsótti nágranna sinn kvöld eitt í apríl og lá greinilega þungt á honum. Greiddi hann nágrannanum peningaskuld sína við hann og sagðist nú loks hafa fundið morðingja dóttur sinnar. Hvarf hann svo í myrkrið. Systir Halldórs, Anna, bjó með bróður sínum en þegar hún kom heim eftir útstáelsi voru nýkeyptar matvörur í eldhúsinu sem og málning og tveir...
InnlentTveir menn reyndu að brjótast inn hjá konu í morgun: „Voru greinilega á einhverjum efnum“ „Klukkan 10:50 Annar í páskum voru 2 menn að reyna brjótast inn í kjallarann hjá mér á Garðsenda. Ég kom að þeim. Annar í svartri peysu og hinn í ljósgrárri báðir með húfu og sólgleraugu. Ég hringdi í lögregluna. Síðustu helgi voru hér á ferli menn að ganga á bíla í götunni um miðja nótt. Lögreglan hvetur fólk að tilkynna...
InnlentÁhyggjur af nýrri blóðsugu sem numið hefur land á Íslandi: „Þeir ná að fjölga sér á hýslinum“ Dýrafræðingar hafa áhyggjur af mögulegum landnema hér við land. Um er að ræða blóðsjúgandi mítlategund sem nýlega fannst í fyrsta sinn í villtum fuglum hér á landi. Samkvæmt frétt Rúv um málið segja dýrafræðingar að mítlarnir geti valdið miklum skaða nái þeir að berast inn á alifuglabú. Hræ af smyrli barst fyrir nokkrum vikum, tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum, til...