Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Gunnar: „Gjaldþrota stjórnmálafólk grípur alltaf til menningarstríðs til að fela eigin vangetu“

Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Sósíalista­foringinn Gunnar Smári Egilsson skýtur bylmings­fast á Samfylkinguna með því að birta 17 ára gamla auglýsingu frá flokknum.

Gunnar Smári spyr af hverju almenningur á Íslandi hafi misst trú á stjórn­málum, í nýrri færslu á Facebook-síðu Sósíalista­flokksins í dag. Með þeim vanga­veltum birtir hann 17 ára gamla auglýsingu frá Samfylkingunni þar sem flokkurinn lofar öllu fögru varðandi Reykjavík. Eitthvað sem Gunnar Smári segir að Samfylkingin hafi ekki staðið við. Segir hann að á fjögurra ára fresti birti flokkurinn sama loforða­listann, „nánast óbreyttan“ en standi svo ekki við hann. Færslan er í heild sinni hér að neðan.

„Afhverju hefur almenningur á Íslandi misst trú á stjórn­málunum? Er eitthvað að almenningi á Íslandi? Eða er eitthvað alvarlegt að stjórn­málunum á Íslandi?

Traust almennings á Íslandi til þings og sveitar­stjórna, grunn­stoðum hins borgara­lega lýðræðis, er miklu minna en í nágranna­löndum okkar. Þetta sést á hverri mælingunni á eftir annarri. Traustið er svo lítið að vandséð er hvernig Íslendingar ætla að ná að endur­reisa lýðræðið, skapa samfélag þar sem almenningur lítur svo á að hann hafi einhver völd, eitthvað um það að segja hvert samfélagið stefnir.Ég rakst á þessa auglýsingu frá 2006 á Facebook. Næst þegar kosið verður til borgar­stjórnar verður auglýsingin tvítug. Á þeim 20 árum mun Samfylkingin hafa verið í meirihluta­samstarfi í 16 ár og rúma 3 mánuði. Hún hefur því haft nægan tíma til að móta borgina eftir því sem hún hefur lofað borgar­búum.Eins og þið sjáið á listanum hefur flokkurinn ekki gert það, heldur birtist hann á fjögurra ára fresti með sama loforða­listann nánast óbreyttan. Og þegar gengið er á fram­bjóðendur er svarið að flokkurinn sé skárri en Sjálfstæðis­flokkurinn, Reykjavík þó skárri en Garðabær.

Um hvað eru borgarmál í dag? Það er í raun engin leið að greina það. Umræðan er mest eitthvert undarlegt menningar­stríð milli hjólandi og akandi, eins og þetta sé sitthvor hópurinn. Og hvers vegna? Gjald­þrota stjórnmála­fólk grípur alltaf til menningar­stríðs til að fela eigin vangetu, fela að það hefur enga stefnu aðra en að vera í starfi þar sem fylgir bíll og bílstjóri.“

Loforð Sam­fylk­ing­ar­innar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra