Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Vill gera tannréttingar fríar: „Erum enn að mismuna börnum eftir efnahag foreldra þeirra“

Skrautlegar spangir
Skraut­legar spangir

Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar vill að tann­réttingar verði gerðar ókeypis fyrir börn og biður um þrýsting svo það geti orðið að veruleika.

Ágúst Ólafur Ágústs­son

Þing­maðurinn fyrr­verandi skrifaði færslu á Facebook fyrir stundu þar sem hann minnist þess að í dag eru 10 ár liðin frá því að þáverandi velferða­ráðherra og þáverandi formaður Tann­læknafélags Íslands skrifuðu undir samninga um ókeypis tann­lækningar barna. Bætti hann því við að tann­réttingar ættu einnig að vera ókeypis fyrir börn en Samfylkingin hefur um nokkurn tíma talað fyrir slíku á þingi. Færsluna má lesa hér að neðan.

„Í dag eru 10 ár síðan Guðbjartur Hannesson, þáverandi velferðar­ráðherra og Kristín Heimis­dóttir, þáverandi formaður Tann­læknafélag Íslands undir­rituðu samninga um ókeypis tann­lækningar barna. Það var mikið gæfuspor sem skipti fólk raun­verulegu máli en ekki eru öll þingmál þannig. Núna er 5 ára fjármála­áætlun stjórn­valda ennþá ókláruð á Alþingi.

Það væri óskandi ef núverandi þingmenn litu til framtíðar og til barna og tryggðu nú fé í að gera tann­réttingar barna einnig ókeypis. Eins og allir vita geta tann­réttingar barna hæglega kostað meira en milljón og því erum við enn að mismuna börnum eftir efnahag foreldra þeirra þegar kemur að þessari heilbrigðsþjónustu.Eitt veit ég, að ekkert gerist á sjálfu sér á Alþingi og skiptir því allur þrýstingur í þessa átt miklu máli.Hér ættum við öll að geta verið sammála.“

Helga Vala Helga­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar svaraði Ágústi: „Við höldum áfram að leggja málið fram Ágúst – en þurfum greini­lega að komast í stjórn til að þetta verði að veruleika. Amk virðist lítill áhugi hjá stjórnar­liðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra