Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ragnhildur Steinunn þolir ekki leti: „Ég missti mömmu mjög ung og þurfti að þroskast mjög hratt“

Ragnhildur Steinunn.
Ragn­hildur Steinunn.

Hin afkasta­mikla og vinsæla sjónvarps­kona og fram­leiðandi, Ragnhildur Steinunn Jóns­dóttir, var gestur Einars Bárðar­sonar í hlað­varpinu Einmitt.

Ragnhildur Steinunn hefur kynnt eða verið viðloðin Söngva­keppnina meira og minna síðan árið 2007; er jafnan með mörg járn í eldinum, enda þolir hún ekki leti.

Ragnhildur Steinunn segist alltaf hafa verið næm á umhverfi sitt; fljót að lesa í fólk og stemningu.

„Ég missti mömmu mína mjög ung og þurfti að þroskast mjög hratt og vinna úr mínum tilfinningum og föður míns. Ég hef náð að nýta mér þetta og læra af mínum mistökum.“

Á lokaári í sjúkraliða­námi fékk Ragnhildur Steinunn fyrsta tækifærið til að vera kynnir í Söngva­keppninni.

„Ég var í verknámi á Land­spítalanum og þar voru sjúklingarnir alltaf að segja mér að ég væri svo lík þarna stelpunni í Söngva­keppninni. Við gætum verið systur. Ég púllaði þann leik þannig að það væri nú gaman og spurði hvernig þá hvernig hún væri að standa sig.“

Ragnhildur Steinunn segir að lykillinn að því að bæta sig sem manneskja í sjónvarpi sé að horfa á það sem maður hefur gert.

„Ég læri mest af því að klippa efnið sjálf. Ég hef verið að klippa viðtöl fyrir Sjónvarpskeppina fram á nótt. Þetta er ekki þannig að ég mæti bara í smink og svo í útendingu. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir hvað við erum í raun fá að vinna stórt verkefni. Við fimm sem erum í framkvæmda­stjórninni erum mánuð fyrir keppni að vinna öll kvöld. Þetta er bara þannig. Maðurinn minn bara veit það.“

Framundan er sýning þáttaraðar á RÚV sem Ragnhildur Steinunn hefur unnið að undan­farin þrjú ár og nefnist Tvíburar, en sjálf eignaðist hún tvíbura fyrir fjórum árum síðan.

„Ég talaði við meira en 70 tvíbura til að fá sem víðustu innsýn inn í líf tvíbura­foreldra, þ.m.t. heimilis­myndbönd. Sýnt verður frá tvíbura­fæðingu í fyrsta sinn í íslensku sjónvarpi og við fylgjumst m.a. með tvíburaforeldrapari sem mun heilla þjóðina upp úr skónum,“ segir Ragnhildur Steinunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra