InnlentKSÍ tekur ákvörðun um milljarðahöll Garðabæjar í næstu viku – Fær Miðgarður keppnisleyfi? Enn er ekki komið á hreint hvort nýjasta íþróttahöll Garðabæjar, Miðgarður fái leyfi KSÍ sem keppnisvöllur í efstu deildum knattspyrnunnar hjá báðum kynjum. Samskiptastjóri Garðabæjar fullyrti við Mannlíf á dögunum að Miðgarður, nýja íþróttamannvirki Garðabæjar, væri orðinn fullgildur keppnisvöllur fyrir efstu deild kvenna og karlaknattspyrnunnar á Íslandi. Unnar Stefán Sigurðsson, formaður mannvirkjanefndar KSÍ sagði hins vegar í svari til Mannlífs...
InnlentEdda Falak: „Sendi Gunna Nelson á næsta lúser sem fær mig á heilann“ Í gærkvöldi sendi Edda Falak frá sér færslu á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem hún segist ætla að senda Gunnar Nelson á næsta lúser sem fær hana á heilann. Færslan birtist auk þessa í beinni útsendingu í sjónvarpsþættinum Vikan á RÚV. Mynd/Skjáskot Twitter Gunnar Nelson er einn fremsti bardagaíþróttamaður landsins og var hann gestur þáttarins hjá Gísla Marteini. Á framsetningu færslurnar...
InnlentErna Hrönn fór í magaminnkun og missti fimmtíu kíló: „Ég sá ekki fram á lengra líf“ Söngkonan Erna Hrönn Ólafsdóttir fór í magaminnkun fyrir einu og hálfu ári síðan og missti í kjölfarið fimmtíu kíló. Erna Hrönn sem er fjörtíu og eins ár í dag útskýrir hvernig hraðinn í samfélaginu og lífsgæðakapphlaupið hafi ollið því að fyrir tveimur árum síðan hafi verið tekið í taumana hjá henni og hún stoppuð af. Erna segir frá reynslu sinni...
InnlentLugu og stálu – Gera hreint fyrir dyrum sínum undir myllumerkinu afsakið Í kjölfar ásakana Frosta Logasonar á hendur Eddu Falak, um að hafa logið til um starfsreynslu sína, þá hefur hópur fólks nú stigið fram fram undir myllumerkinu afsakið. Þar eru viðurkenndar missagnir og lygar sem fólk hefur gefið út og með þessu er Eddu Falak veittur stuðningur. Fylgjast má með uppljóstrunum og afsökunarbeiðnunum á samfélagsmiðlinum Twitter. Fjölmargir hafa stigið fram...
InnlentTóku á flótta undan lögreglu – Þetta fannst við leit á þeim Á fjórða tímanum í nótt gaf lögregla ökumanni stöðvunarmerki í miðbænum og reyndi ökumaður að stinga af. Eftir skamma eftirför hlupu nokkrir aðilar úr bifreiðinni en þeir náðust allir og voru handteknir í þágu rannsóknar málsins. Kveikjuláslyklar bifreiðarinnar fundust á einum sem hljóp frá bifreiðinni og er hann grunaður um akstur hennar. Þá fundust einnig fíkniefni og hnífur á einum...
InnlentStyður Eddu Falak: „Ykkur er óhætt að trúa því að það er verið að undirbúa áframhaldandi árásir“ Hildur Lilliendahl Viggósdóttir skrifar á Facebook-síðu sinni um mál Eddu Falak. Segir. „Ég er orðin ofsalega þreytt á þessu endalausa „af hverju svarar hún ekki bara? Sannar bara í eitt skipti fyrir öll að eitthvað?“ Tilgangur þessarar aðfarar að Eddu er ekki að komast að neinum sannleik heldur að taka hana niður. Og ef hún svarar, þá kemur bara eitthvað...
InnlentKaupfélagsstjórinn frá Djúpavogi sem hvarf: Fór til Reykjavíkur til að kaupa hús fyrir fjölskylduna Jón Sigurðsson, fimmtugur fyrrum kaupfélagsstjóri austur á Djúpavogi fór til Reykjavíkur árið 1945. Tilgangurinn var að kaupa sér hús svo hann gæti sest þar að með fjölskyldu sinni. En eftir að hann hafði dvalið um skeið í borginni þar sem hann fékk inni hjá nokkrum vinum og kunningjum hvarf Jón. Nánar tiltekið hvarf hann 5. mars það ár. Blessuð sé...
InnlentHallur fékk óvænta heimsókn: „Sennilega einn af fáum sem CIA hefur gert húsleit hjá hér á landi“ Þúsundþjalasmiðurinn Hallur Helgason rifjaði upp gamla tíma er hann hlustaði á útvarpið. Honum segist svo frá. „Var smá upprifjun um heimsókn Nixons og Pompediu í útvarpinu áðan. Ég var sennilega níu ára þegar tveir frakkaklæddir menn bönkuðu upp á í íbúðinni sem við bjuggum í við Álfaskeið 98.“ Þessir menn voru engir venjulegir menn – alls ekki. Hallur segir að...
InnlentGlúmur í veseni í Tékklandi: „Þú færð skoðun en láttu aldrei aftur sjá þig hér á svo skítugum bíl!“ Glúmur Baldvinsson segir skemmtilega frá eins og venjulega; fæddur sagnamaður; kappinn fór með bílinn í skoðun. Segir frá. „Fór með bílinn í skoðun hjá Tékklandi í Hátúni í dag. Styggur maður tók við lyklunum og ég settist niður í biðstofunni og fékk mér kaffi og spjallaði við aðra viðstadda. En ég hafði vart bragðað á kaffinu þegar maðurinn rífur upp...
InnlentBubbi um yfirlýsingu Heimildarinnar: „Hver vill vera áskrifandi á fjölmiðli þar sem lygari vinnur“ Bubbi Morthens tónlistarmaður spyr hver vilji vera áskrifandi að Heimildinni. Eva Hauksdóttir lögmaður birti í dag einhverskonar kort af orðinu „missögn“ en það er orð sem ritstjórn Heimildarinnar notaði í yfirlýsingu sinni varðandi afhjúpun Frosta Logasonar í hlaðvarpsþætti sínum Harmageddon. Þar sagðist Frosti hafa heimildir fyrir því að Edda Falak, blaðamaður Heimildarinnar hafi sagt ósatt til um fyrri störf sín...
InnlentGríðarleg sprenging í Garðabæ – Búið að loka nálægum götum Nú er allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í Garðabæ eftir að hár hvellur heyrðist þar fyrir stundu. Alls óljóst er á þessari stundu hvað olli hvellinum, eða sprengingunni, en gríðarlega mikill reykur er á svæðinu. Slökkviliðið og lögreglan hafa lokað götunni Ásabraut; samkvæmt upplýsingum Mannlífs varð sprengingin/hvellurinn við Eskiás. Engar meiri upplýsingar er að fá að svo stöddu frá...
InnlentDómurinn kom Páli á óvart: „Það er leitt að tjáningarfrelsið tapi fyrir sakborningum“ Í dag var Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og Moggabloggari, dæmdur sekur í meiðyrðamáli Þórðar Snæs Júlíussonar og Arnars Þórs Ingólfssonar gegn honum. Voru ummæli sem hann skrifaði á bloggsíðu sinni dæmd ómerk. Þá var honum gert að greiða þeim 300.000 kr hvorum og 700 þúsund í málskostnað. Ummálin snéru að því að Þórður og Arnar hefðu framið alvarleg hegningarlagabrot með því...