Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bubbi um yfirlýsingu Heimildarinnar: „Hver vill vera áskrifandi á fjölmiðli þar sem lygari vinnur“

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens

Bubbi Morthens tónlistar­maður spyr hver vilji vera áskrifandi að Heimildinni.

Eva Hauks­dóttir lögmaður birti í dag einhverskonar kort af orðinu „missögn“ en það er orð sem ritstjórn Heimildarinnar notaði í yfir­lýsingu sinni varðandi afhjúpun Frosta Logasonar í hlaðvarps­þætti sínum Harmageddon. Þar sagðist Frosti hafa heimildir fyrir því að Edda Falak, blaða­maður Heimildarinnar hafi sagt ósatt til um fyrri störf sín í Danmörku.

Ýmsir skrifa athuga­semdir við kort Evu af orðinu en sumir taka upp málstað Eddu og Heimildarinnar á meðan aðrir fordæma hann; þar á meðal er Bubbi Morthens.

Lísa nokkur skrifaði eftir­farandi athugasemd:

„Mikið er gott að fólk geti farið að sofa rólega aftur. Edda sagði ekki rétt og satt frá um fyrri störf fyrir tveim árum en hefur farið eftir settum reglum í núverandi starfi sem blaða­maður hjá Heimildinni. Málið leyst.“

Þessu er Bubbi ósammála:

„Nei, málið er ónýtt, hver vill vera áskrifandi á fjölmiðli þar sem lygari vinnur sem hefur sjálfur verið í viðtölum við stærstu fjölmiðla landsins og logið, og síðan stígur ritstjórnin fram og þvær viðkomandi með einu orði: Missögn, sem er hvít­þvottur yfir orðinu lygi.“

Eva Hauks­dóttir.

Eva svaraði svo Bubba með sinni þekktu kaldhæðni:

„Allir femínistar landsins vilja vera áskrifendur. Það er almennt viðurkennd afstaða á Íslandi að þær siðferðis­kröfur sem femínistar gera til annarra eigi ekki við um þá sjálfa. Nú útfærum við þá reglu þannig að hún nær einnig til fjölmiðla sem höfða til femínista.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim