Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kaupfélagsstjórinn frá Djúpavogi sem hvarf: Fór til Reykjavíkur til að kaupa hús fyrir fjölskylduna

Örfirisey 1946
Örfirisey 1946

Jón Sigurðsson, fimmtugur fyrrum kaup­félags­stjóri austur á Djúpavogi fór til Reykja­víkur árið 1945. Tilgangurinn var að kaupa sér hús svo hann gæti sest þar að með fjöl­skyldu sinni. En eftir að hann hafði dvalið um skeið í borginni þar sem hann fékk inni hjá nokkrum vinum og kunningjum hvarf Jón. Nánar tiltekið hvarf hann 5. mars það ár.

Blessuð sé minn­ing Jóns

Jón var ekki eini karl­maðurinn sem hafði horfði í Reykjavík um þetta leyti en áður höfðu fjórir aðrir týnst en tveir þeirra fundust látnir. Því miður átti það eftir að reynast örlög Jóns einnig.

Morgun­blaðið fjallað svo um hvarf Jóns:

Einn maðurinn horfinn enn

Maður þessi er Jón Sigurðsson fyrv. kaupfjelagsstjóri á Djúpavogi, og er hans saknað síðan á mánudag 5. þ.m.
Jón Sigurðsson kom hingað til bæjarins fyrir mánuði síðan og bjó hjer hjá ýmsum kunningjum sínum. Síðast er vitað um hann s.l. mánudags­morgun.
Þrátt fyrir eftirgrenslan rannsóknar­lögreglunnar hefir ekki tekist að fregna ferðir hans síðan. 

Jón er 50 ára gamall, fæddur 4. okt. 1894. Hann er meðal­maður á hæð og gildleika með svart hár, sem lítið er farið að grána, skegglaus. Hann var í gráum fötum og gul-gráum rykfrakka, beltis­lausum, og með gráan hatt á höfði. 
Eftir því sem vitað er, var hann peninga­laus, en tjekkhefti á Búnaðar­bankann mun hann hafa haft á sjer.
Rannsóknar­lögreglan biður þá, er kynnu að hafa orðið ferða Jóns varir þann 5. þ.m. eða eftir þann tíma, að tilkynna það þegar.
Á s.l. 7 mánuðum hafa fjórir menn horfið og til tveggja þeirra hefir ekkert spurst, en tveir fundust örendir. Mennirnir eru: Magnús Júlíusson bílstjóri er hvarf 24 ágúst f.á. 
Lík hans rak á Akranesi þann 15. sept. s.l. Halldór Jónsson, til heimilis í Elli­heimilinu,
hvarf þ. 22. des. s.l. Lík hans fanst hjer í bænum 28. des. Hannes Pálsson bifvjelav., hvarf 4. jan. s.l. Til hans hefir ekkert spurst síðan og ekki heldur til Baldurs Guðmunds­sonar,
Garðastr. 2, er hvarf 1. febr. s.l.

Tveimur mánuðum síðar fundu tveir drengir lík Jóns Sigurðs­sonar við hafnar­garðinn sem liggur við Örfirisey. Var líkið skorðað í urðinni við garðinn en engir áverkar voru á líkinu og fötin óskemmd.

Þjóð­viljinn sagði frá líkfundinum:

Lík Jóns Sigurðs­sonar fundið

Lík Jóns Sigurðs­sonar kaup­félags­stjóra frá Djúpavogi, sem hvarf héðan úr bœnum 5. marz s.l., fannst í fyrradag við hafnar­garðinn er liggur austur frá Örfirisey. Tveir drengir fundu líkið, þar sem það var skorðað í urðinni við garðinn. Enginn áverki var á líkinu og fötin óskemmd. Skjöl voru í vösunum, þ. á. m. sparisjóðsávísunarbók, tékkhefti o. fl. smávegis. Peningar fundust engir, enda var talið fullvíst að Jón heitinn hefði enga peninga haft á sér er hann hvarf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim