Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Erna Hrönn fór í magaminnkun og missti fimmtíu kíló: „Ég sá ekki fram á lengra líf“

Erna Hrönn Ólafsdóttir söngkona
Erna Hrönn Ólafs­dóttir söng­kona

Söngkonan Erna Hrönn Ólafs­dóttir fór í maga­minnkun fyrir einu og hálfu ári síðan og missti í kjölfarið fimmtíu kíló. Erna Hrönn sem er fjörtíu og eins ár í dag útskýrir hvernig hraðinn í samfélaginu og lífsgæða­kapphlaupið hafi ollið því að fyrir tveimur árum síðan hafi verið tekið í taumana hjá henni og hún stoppuð af.

Erna segir frá reynslu sinni í einlægu viðtali hjá Felixi Bergsyni í þættinum Fram og til baka.

„Ég hef gert mikið og margt og upplifað ansi marga hluti,“ segir Erna Hrönn og útskýrir hvernig í lok árs 2019, skömmu eftir brúðkaupið hennar, hafi hún kynnst því sem hún kallar lífsbruna. „Kulnun sem tók mig gjör­samlega niður á jörðina,“ segir Erna og útskýrir hvernig í kjölfarið hún hafi komist að í starfs­endur­hæfingu hjá VIRK.

„Ég sá ekki fram á lengra líf,“, tjáir Erna og segir frá þegar hún sat hjá sálfræðingi og útskýrir hvernig henni, á þessum myrka stað, fannst hún hafa upplifað allt sem hún þyrfti. „Það skringilegasta að segja frá er hversu sátt ég var að kveðja lífið.“ Um Ernu Hrönn fer hrollur þegar hún hugsar til baka þar sem að í dag henni þykir fásinna þar sem hún eigi svo margt eftir ólifað. Enda á góðum stað í dag og sátt við lífið og sjálfa sig.

VIRK

Erna fékk inn hjá VIRK rétt fyrir Covid og fékk fyrirmæli ráðgjafa síns um að aðhafast ekkert. Best væri fyrir hana að hvílast og sofa. Á tveimur árum fékk hún tíma til að vinna í sínum málum og styrkja sig andlega, kjarkinn til að klára óuppgerð mál. „Þarna voru mál sem var erfitt að „feisa““,og útskýrir hvernig hún hafi fengið rými til að klára bakkalár­gráðuna sem hún lauk með prýði. Hún lýsir því hvernig ánægjan við að ljúka óuppgerðum hlutum sem setið höfðu á hakanum hafi verið hvati til frekari bóta og ýtt henni til að sjá ljósið.

Efnaskiptaaðgerð og magaermi

„Ég fór í efnaskipta­aðgerð og maga­minnkun, magaermi. Það var svo stór og góð ákvörðun […] í kjölfar á þessum tveimur árum þar sem ég tók mig í gegn var ég komin á einhverja endastöð líkamlega. Það var svo leiðinlegt, þetta dansaði ekki saman. Ég var rosalega orkumikil í huganum á meðan líkamaninn sagði stopp,“ segir Erna Hrönn og útskýrir hvernig hún hafi glímt við yfirþyngd, vefjagigt og lifað á verkja­lyfjum. Orkulaus. Við útskriftina hjá VIRK voru næstu skref örorka, einfald­lega vegna líkamlegra kvilla Ernu.

„Ég ákvað það að það væri ekki mín endastöð,“ segir Erna sem tók upp veskið og ákvað að sækja um að komast í maga­minnkunar­aðgerð og komst að tveimur mánuðum síðar. Aðgerðin var dýr útskýrir hún en segir hana sannarlega hafa verið hverrar krónu virði.

„Því í dag, einu og hálfu ári síðar, er ég búin að missa fimmtíu kíló,“ segir Erna Hrönn og lýsir léttinum ekki einungis líkamlega heldur einnig andlega. Að geta staðið sátt fyrir framan spegilinn eða uppi á sviði og verið sátt með konuna sem þar er.

Óendanlega sátt með lífið segir Erna Hrönn að endingu: „Í dag er ég óstöðvandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim