InnlentHefur þú séð Guðjón? – Lögreglan þarf þína aðstoð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðjóni Knútssyni, sem er 70 ára. Síðast er vitað um ferðir Guðjóns við Bríetartún 30 klukkan sex í fyrradag. Tilkynning lögreglu hljóðar svo: „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðjóni Knútssyni, 70 ára karlmanni. Guðjón er grannvaxinn, um 175 sm. á hæð, gráhærður, með axlarsítt hár og notar gleraugu. Guðjón er klæddur í gráleitar gallabuxur, fjólubláa...
Innlent„Ég hefi aldrei fengið eina einustu krónu í arð frá Icelandair“ Anna Kristjánsdóttir skemmtir lesendum daglega með dagbókinni sinni frá Tenerife, en í dag greinir hún frá því að hún hafi átt hlut í Icelandair frá árinu 2018. Aldrei hafi hún fengið arð frá félaginu. Hún segir að því hafi verið haldið fram í gær að félagið hafi greitt út milljarð í arðgreiðslur á sama tíma og félagið fékk talsverða styrki...
InnlentRíkissáttasemjari óttast verkföll: „Dagurinn í dag skilaði mjög litlu – og eiginlega engu“ Ástráður Haraldsson, settur sáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, segir að viðræður dagsins hafi engu skilað. Samningsnefndir funduðu í allan dag og segist Ástráður vonsvikinn með afrakstur dagsins. Að öllu óbreyttu má því búast við að verkföll hefjist annað kvöld. RÚV greinir frá þessu. „Ég verð því miður að segja að viðræður dagsins hafa ekki skilað okkur mikið fram...
InnlentHannesi gert að láta af störfum: „Það er fagnaðarefni“ Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, óskar sjálfum sér til hamingju með afmælið í pistli sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Hannes verður á morgun sjötugur. Hann skrifar: „Það er fagnaðarefni, að ég skuli verða sjötugur 19. febrúar 2023. Hitt væri óneitanlega miklu verra, að verða ekki sjötugur.“ Hannes harmar þó að þessu fylgi starfslok hans hjá Háskóla Íslands....
InnlentSögð grýla sem hatar homma – Sigríður kennir Samtökunum 78 um verðbólguna Á Twitter er fátt annað rætt í dag en gífurlega vanhugsað tíst Sigríðar Andersen, Sjálfstæðiskonu og fyrrverandi innanríkisráðherra. Í gær skrifaði hún að ein ástæða fyrir verðbólgu undan farið væri styrkveiting til Samtakanna 78. Tístið má sjá hér fyrir neðan. Ástæða verðbólgunnar? Hér er ein:25 milljóna árlegt framlag + 15 milljóna viðbót + 15 milljóna viðbótarviðbót – til félags úti...
InnlentMargir undir áhrifum að keyra í nótt Samkvæmt dagbók lögreglu virðist nóttin hafa farið rólega fram að mestu, fyrir utan að nokkuð mikið var um ölvunarakstur. Alls voru sex stöðvaðir vegna gruns um undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Enginn þeirra gistir fangageymslur og öllum þeirra var sleppt að lokinni sýnatöku. Einn þeirra reyndist án ökuréttinda. Í umdæmdi lögreglustöðvar tvö, sem nær til Garðabæjar og Hafnafjarðar, var tilkynnt...
InnlentGunnari var sagt að pabbi hans hafi yfirgefið hann: „Ég geng ennþá með þá höfnunartilfinningu“ Gunnar Hrafn Jónsson segir samband sitt við Jóhönnu Sigurðardóttur, eiginkonu móður hans, ekki vera til staðar. Segir hann þær hafa sagt sér ósatt um ástæðu þess að faðir hans fór af heimilinu er hann var krakki. „Nei, ég get nú ekki sagt að ég hafi lært nokkuð af henni. Hvorki klækjastjórnmál né nokkuð annað,“ sagði Gunnar Hrafn þegar Reynir Traustason...
InnlentÁttatíu ár liðin frá Þormóðsslysinu: „Eina vonin er, að hjálpin komi fljótt!“ Árið er 1943. Dagurinn 17. febrúar. Veðrið er afar slæmt undan ströndum Reykjanesskagans en vélskipið Þormóður siglir með 24 farþegar og sjö áhafnarmeðlimi, frá Patreksfirði til Reykjavíkur en kemst ekki alla leið. Í dag eru nákvæmlega 80 ár frá einu mannskæðasta sjóslysi Íslandssögunnar. Þormóður var skip frá Bíldudal en af þeim 31 sem fórust voru 22 þeirra frá Bíldudal. Meðal...
InnlentLögreglan leitar að ökumanni sem keyrði á gangandi vegfaranda og keyrði svo í burtu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á gangandi vegfaranda á gatnamótum Hrafnsgötu og Burknagötu í Reykjavík, neðan við Landspítalann á Hringbraut, í gærmorgun, fimmtudaginn 16. febrúar, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 8.29. Fyrrnefndur ökumaður nam staðar á vettvangi og átti orðaskipti við vegfarandann, en ók síðan á brott án þess að skeyta frekar um afdrif hans,...
InnlentUppljóstranir Gunnars Hrafns: Synir Jóhönnu fjarlægðu verk Hannesar Hólmsteins úr ráðherrabústaðnum Gunnar Hrafn Jónsson segir frá spaugilegri bústaðaferð með móður sinni og konu hennar, Jóhönnu Sigurðardóttur í glænýju viðtali Mannlífs. Jónína Leósdóttir rithöfundur og móðir Gunnars Hrafns Jónssonar, fjölmiðlamanns, fyrrum þingmanns og fyrrum fyndnasta manns Íslands, er gift Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrum forsætisráðherra landsins. Í spánýju viðtali Mannlífs segir Gunnar Hrafn frá tveimur fyndnum sögum úr ráðherrabústaðnum á Þingvöllum. Dorrit niðurlægir Ólaf...
InnlentIllugi er afar ánægður: „Mikið eru þau frábær“ Fjölmiðlafjölfræðingurinn Illugi Jökulsson skellti sér í bíó og sá íslensku kvikmyndina Á ferð með mömmu: „Þetta er merkileg mynd. Á einum stað hélt ég eitt augnablik að Hilmar Oddsson leikstjóri væri að missa sig í kómidíunni, en svo seinna að hann væri kominn út á ystu nöf í melódramatík, myndi jafnvel detta út í tilfinningasemi eða töfraraunsæið tæki öll völd.“...
InnlentIndriði er látinn Rithöfundurinn og fyrrverandi skólastjórinn, Indriði Úlfsson, er látinn á 91. aldursári. Var Indriði fæddur þann 3. júní árið 1932 á Héðinshöfða á Tjörnesi; hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 7. febrúar síðastliðinn. Eiginkona Indriða er Helga Þórólfsdóttir, sem fæddist þann 29. janúar árið 1939. Börn Indriða og Helgu eru Úlfar Þór, hagfræðingur fæddur 1959, dáinn 2017, og Ingunn Líney,...